Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 31

Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 31
raun til að mæla, en ekkert hljóð kom út yfir varir hans. Svo hvíslaði liann að lokum: „Eg get það ekki.“ Þjónustustúlka kom nú til þeirra, rjóð og brosandi, með bakka sem á var vín, brauð og ostur og kalt hænsnakjöt. Ang- elo hellti víni í staup handa sér og vini sínum. Gamli maðurinn var augsýnilega hungraður, en hann át og drakk með hægð þess manns, sem er hættur að geta flýtt sér. „Og þú, Angelo," sagði hann, þegar þeir voru aftur orðnir einir. „Hvað hefur drifið á daga þína?“ Það kom nú í hlut Angelos að segja sögu sína, þessi sjö ár, sem liðin voru síðan þeir sáust síðast. Hann sagði Pino frá þeim listaverkum, sem hann hafði gert, frá mikilsverðum tilboðum, sem hann hafði fengið um skreytingu halla fyrir konungborna og kardínála, um lærisveinana, sem þyrptust til hans, og frá börnunum sínum. Þegar hann þagn- aði leit Pino á hann, og þannig sátu þeir lengi og horfðust þegjandi í augu. Ang- elo fannst einkennilegt að sitja þannig aftur andspænis honum. „Já, sjáðu til, Pino,“ sagði hann loks með hægð, „allt þetta, listaverkin, fög- ur og elskuleg eiginkona, yndisleg börn, frægð, vinir, auðæfi, eru hamingja mannsins, — hamingja mín. En þú veizt, að til eru lækir, sem á leið sinni hverfa og streyma neðanjarðar um skeið, en þar sem þeir streyma undir, vaxa blómleg- ustu trén og fegurstu rósarunnarnir. Þannig liggur hulinn straumur undir hamingju minni, og við þig get ég talað um hann. Straumurinn er leyndarmálið, sem Lucrezia býr yfir og dylur fyrir mér. Eg veit ekki hvað gerðist, nóttina sem ég dvaldi í fangaklefanum. Hún hefur aldrei minnzt á þá nótt. Oft hef ég beð- ið eftir þeim orðum af hennar vörum, er leystu þá gátu. A brúðkaupsnótt okk- ar vænti ég þeirra, en straumurinn rann djúpt undir hvílu okkar. Dag einn þeg- ar við vorum á gangi niður við strönd- ina, staðnæmdist hún og starði á mig. Þá hélt ég það kæmi. En hún hefur aldr- ei talað þau orð. Þrýstnar, rjóðar varir hennar hafa innsiglað leyndarmálið. Fyrstu árin fannst mér stundum að ég kynni að verða bani hennar, ef hún ryfi ekki þessa þögn. Nú hef ég komizt að þeirra niðurstöðu, að ég eigi enga kröfu til leyndarmálsins, því að öll tilvera konunnar er leyndar- mál, sem á að varðveitast. Og hvert leyndarmál verður hluti af henni sjálfri, einir töfrar í viðbót, hulinn fjársjóður. Það er sagt, að tré það, sem morðingi dysjar hinn myrta undir, visni og deyi, en að það tré, sem stúlka dysjar barn sitt undir, beri aukin blómstur og full- komnari ávexti en önnur tré, — tréð breytir hinum dulda glæp, vegna dulinn- ar ástarsorgar, i ljúffengan ávöxt. Eg má ekki krefjast þess, að hún, að heldur, segi mér hvað undir trénu leynist.“ Angelo hafði hlé á máli sínu um stund og horfði út yfir dalinn. „Eg hef einnig hugsað,“ sagði hann svo, „að á þeirri stundu, sem ég spyrði Lucreziu: Hvað gerðist nóttina, sem Le- onidas Allori kom til þín í húsi víngarðs- eigandans? Segðu mér það, því að ég kvelst af óvissunni. Komst meistarinn þá að því, að við höfðum svikið hann? — Eg hef hugsað mér, að þá myndi hún líta á mig með skæru augun dökk af sorg og svara: Svo þú hefur vitað, í öll þessi ár, að meistari þinn kom til mín þessa nótt, og aldrei sagt mér frá því. í öll þessi ár, dag og nótt, hefur þú leynt því fyrir mér og jafnvel kossar mínir hafa ekki megnað að opna varir þínar. — Ef til vill myndi hún þá hafa yfirgefið mig, eða orðið áfram hjá mér aðeins vegna barnanna eða vegna frægðar minnar og auðæfa. En hún hefði aldrei framar orð- ið hin hamingjusama, brosandi, hýra eig- inkona mín. Og mér hefur skilizt, að hún hefði haft rétt fyrir sér. — Þannig renna tveir huldir straumar undir hamingju okkar.“ Pino leit sem snöggvast á vin sinn og síðan á fjöllin í fjarska, og það Ieið nokk- ur stund áður en hann tók til máls. — „Hvernig er það?“ spurði hann. „Getur þú sofið núna?“ „Sofið?“ hafði Angelo upp eftir hon- um, eins og hann áttaði sig ekki á því, við hvað hann ætti. — „Æ, já, þú manst eftir því, þegar ég gat ekki sofið. — Já, þakka þér fyrir, nú get ég sofið.“ Aftur varð þögn. „Nei!“ sagði Pino allt í einu. „Þú hef- ur rangt fyrir þér. Það vill svo til, að ég veit það. — Maður, sem hefði áhyggjur af þessu, — þín vegna, — hefði getað spurt Lucreziu, — þín vegna, —: Hvað gerðist, nóttina sem elskhugi þinn lagði líf sitt að veði fyrir læriföður sinn? Komst þá hinn rnikli listamaður að því, að þið tvö, sem hann unni heitast, og hverra örlögum hann hafði stjórnað eins og ég leikbrúðunum mínum, — komst hann að því, að þið höfðuð svikið hann? Brast þá hans stóra hjarta? Eða stóð hann undir reiðarslaginu í trausti á lög- mál hins gullna hluta, þótt hann riðaði? — Hún myndi þá hafa litið á spyrjand- ann svo hreinum augum, að hann hefði skammast sín fyrir að efast um sann- leiksgildi orða hennar eitt andartak, og svarað honum: Mér þykir leitt að ég get ekki sagt þér það, en ég man það ekki. Ég hef gleymt því.“ „Er það meining þín,“ spurði Angelo lágri röddu, „að þú hafir spurt hana að því?“ „Ég hef aldrei litið konu þína augum SflMVINNAN 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.