Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Page 32

Samvinnan - 01.12.1957, Page 32
Angelo setti hestslíkanið d stólpa og hugsaði sig um. fyrr en í kvöld,“ svaraði Pino. „En þú veizt, að eitt sinn samdi ég leikrit fyrir brúðuleikhús. Ég átti þá undurfagra brúðu og hún var stjarna flokksins, hún hafði rjóðar kinnar og drifhvítan barm og augu hennar voru úr dökku, tæru gleri. Hún líktist Lucreziu.“ Þegar gamli maðurinn leit á Angelo eftir nokkra stund, sá hann að bros lék um varir hans. „Um hvað ertu að hugsa, Angelo?“ „Ég var að hugsa um þessi litlu tæki, sem við nefnum orð, og sem við verðum að komast af með í þessu lífi. Ég var að hugsa um það, hvernig það getur gjör- breytt tilveru okkar, að hafa stöðuskipti á orðum í hversdagslegri setningu. Því að þegar þú laukst máli þínu áðan hugs- aði ég: Getur það verið? — Og síðan: Það getur verið.“ Þeir ræddu nú um stund um aðra hluti og til þess að gleðja Pino lét Angelo tal- ið berast að brúðuleikhúsinu. En annað slagið hvarf brosið af ásjónu gamla mannsins og þunglyndið tók sér sæti þar á ný. „En heyrðu mig nú, Pino,“ sagði vin- ur hans. „I dag ert þú sjö árum nær Paradís en þegar við hittumst síðast. Þar muntu hitta á ný bæði leikbrúðurn- ar þínar og konuna fögru — því að mér skilst, að þú sért Demas, ræninginn á krossinum, sem heitin var Paradísar- vist.“ „Þarna kemurðu með nokkuð, sem ég hef lengi brotið heilann um,“ sagði Pino og klóraði sér í höfðinu með sínum tveimur fingrum hægri handar. „Ég trúi því vissulega að ég sé stórsyndarinn, sem lausnarinn veitti þá von. — En hvernig fór það eiginlega með ræningj- ann á krossinum? „f dag skaltu vera með mér í Paradís, sagði frelsarinn við hann. En þegar De- mas birtist við hlið Paradísar að kvöldi föstudagsins langa, var Kristur þar ekki, eins og þú veizt, og það liðu fjörutíu dagar áður en hann kom þangað í allri sinni dýrð. Óliklegt er að hinn ungi Himnakonungur hafi á þeim dögum stórra viðburða getað liaft hugann við þetta heimboð. Ég veit líka betur en flestir aðrir hve hikandi og órólegur fá- tæklega klæddur gesturinn muni hafa nálgazt hið gullna hlið. „Og ég hef hugsað um það,“ hélt Pino áfram, „hver muni hafa verið á verði innan við hliðið þegar Demas kom að því, með heimild til að hleypa honum inn. Klettur kirkjunnar, hinn mikli fiski- maður Pétur, sat á þeirri stundu í hnipri að húsabaki æðsta prestsins, fjær Para- dís en nokkru sinni fyrr eða síðar. María Magdalena, sem Demas þekkti frá Jerúsalem, grétt í sitt síða hár og hafði þá ekki tekið þá ákvörðun að ganga til grafarinnar. Hinir vingjarnlegu dýrling- ar, sem við þekkjum nú, heilagur Fran- cis og Antóníus og hin Ijúfa Katrín, komu ekki á hið himneska svið fyrr en mörgum öldum síðar. Hin heilaga guðs- móðir hefði skilið allt það, sem bjó í hjarta Demasar á þessari stundu, en hún var þá ekki orðin Drottning Himnanna. Hún hefði sjálf komið að hliðinu með engaliði sínu, — en jafnvel hennar hug- prúða hjarta gat ekki þolað meira en því var boðið þetta föstudagskvöld. „En ég hef hugsað mér, að eftir langa stund hafi litlu börnin, sem Heródes lét taka af lífi í Betlehem, komið hlaupandi og þyrpzt í kring um komumanninn. Ef- laust hafa þau brosað að þessum vesal- ing, sem þarna lá, brotinn á handleggj- um og fótum. Kannski hafa þau bent á hann með litlu fingrunum sínum, eins og börn gera við ókunnuga flækinga. En að lokum hlupu tvö þeirra inn til Heil- agrar Onnu, hinnar blessuðu ömmu Krists, og sögðu henni frá komumann- inum. Og þegar hún kom að hliðinu og talaði til hans, skildist Demasi, hversu öll viðhorf eru öðruvísi á himni en á jörðu, því að jafnvel eftir atburði þessa langa föstudagskvölds var hún mild og björt sem kertaljós. Ég hef hugsað mér eftirfarandi sam- tal á milli þeirra: „Komdu inn, segir konan, komdu inn, góði maður. Við áttum von á þér, en dóttursonur minn hefur tafizt, því að hann þurfti að skreppa sem snöggvast niður til Heljar. „Ó, náðuga frú, svarar Demas í djúpri blygðan, það hefur orðið einhver mis- skilningur, eins og ég óttaðist. Það mun vera þar niðurfrá, sem ég á að fá að sjá hann einu sinni enn. Má ég gerast svo djarfur að spyrja yður til vegar, því að ég kýs ekki á neitt betra hlutskipti en að vera þar sem hann er. „Kemur ekki til mála, segir hin lieil- aga Anna. Þú átt að gera eins og þér var sagt. Sjálfa fýsir mig mjög að hafa tal af einhverjum, sem hefur séð hann ný- lega. „Ó, náðuga frú, segir Demas aftur. Hvernig má slíkur sem ég tala við yður um það, sem engin orð fá lýst? „Ég veit það, ég veit það, segir gamla konan. Hver skyldi vita það betur en ég? Góði maður, þér sáuð hann ekki þeg- ar hann var að læra að ganga. Ég hélt sjálf í aðra litlu hendina hans og móðir hans í hina. Aldrei hef ég séð barn jafn líkt móður sinni. Já, það er eins og þér segið, því verður ekki með orðum lýst. „Og svo tekur hin heilaga Anna í hönd hans, eins og hún hafði tekið í hönd lausnarans þegar hann var lítið barn. og leiðir hann inn fyrir hlið Paradísar. Og handleggir hans og fætur eru ekki leng- ur brotnir.“ Angelo brosti að frásögn vinar síns. „Já, ef ég hefði enn brúðuleikhúsið mitt,“ andvarpaði Pino, „þá setti ég þetta á svið. Yrði það ekki dásamlegt? — En þú, ferð þú til Paradísar, Angelo? Eigum við eftir að hittast þar og ræðast við eins og við gerum nú?“ Það leið löng stund áður en Angelo fann svarið við þessari spurningu. Hann tók eitt litla hestslíkanið og setti það upp á stólpa, ögn til vinstri. „Maðurinn er meira en einn maður,“ 32 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.