Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 35

Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 35
Melbourne, og Koponen, sem stokkið hafði fyrr í sumar 7.32 m. Valkama vann auðveldlega með 7.39 m., ég komst 6.99, en Koponen aðeins 6.84 m. Finnska liðið var allt mætt úti á flug- velli í Helsingfors kl. 6, og varð þar Iöng bið. Eg fór að skoða flugvélina, sem við skyldum fljúga með, og leizt illa á tækið. Oskaði ég mér, að kornin væri önnur hvor hinna nýju véla Flugfélagsins. Vél þessi, sem flutti okkur, var tveggja hreyfla amerísk vöruflutningavél frá „Transair“ flugfélaginu, sem er sænskt félag. Aætlunin var þannig, að fyrst skyldi flogið til Osló og þar teknir Norðmenn og Islendingar. Þar var lent eftir 2V2 stundar flug, Norðmennirnir bættust við hópinn, en engir landar. Var mér sagt, að þeirra væri von í Malmö, þar skvldi lent næst, og teknir Danir (1 maður) og Islcndingar. Það stóð heima, þar hitti ég Hilmar Þorbjörnsson, Valbjörn Þor- láksson og Guðmund Sigurjónsson far- arstjóra. Næst átti að lenda í Múnchen í Þýzkalandi, og þar voru íþróttamenn enn að bætast í hópinn, þeir sem keppt höfðu á Rudolf Ilarbig mótinu, en þar hafði Svavar Markússon unnið aðal- lilaup mótsins, sællar minningar. Þá voru loks allir komnir um borð, nema Svíar. Þeir höfðu háð landskeppni mót Itölum, og sigrað auðveldlega, sömu helgina og ég keppti í Varkans. Þessi ráðstöfun Svía var einn liður í því að gera flutninga alls liðsins ódýrari og auðveldaði framkvæmd ferðarinnar. Súlurnar, sem bera uppi þök hofanna á Akro- polis eru margvíslegar að formi, en allar mjög fagrar. Ráðgert hafði verið að lenda næst í Belgrad, en vegna óveðurs varð nú að fara vestan Alpafjalla. Þessi vöruflutn- niga-hjallur gat aðeins flogið í 12000 feta hæð, og gat því ekki farið beint til Aþenu, einnig vegna þess að eldsneyti entist aðeins til fjögurra tíma flugs. Næsti lendingarstaður var Nissa á Miðjarðarhafsströnd Frakklands. Þar eru í næsta nágrenni tveir frægir staðir, Monte Carlo spilavítið og Monaco, þar sem Rainier fursti býr með fursta- frú Grace Kelly. Dvölin þarna var styttri en margir hefðu viljað, það átti að fara til Róm og gista þar. Horfið hafði verið frá því að þvælast alla Ieið til Aþenu þennan dag, enda komið nálægt miðnætti þegar lagt var frá Nissa. Ljós þessara fjögra borga sáust speglast fagurlega í haffleti Mið- jarðarhafsins, þegar vélin hækkaði flug- ið. Ljósin alls staðar meðfram strönd- inni bentu til þess, að þarna væri nær samfelld byggð. Eftir klukkustundar flug, þegar strendur Italíu sáust framundan í tunglsljósinu, flugum við inn í svo grenjandi vitlaust eldingaveður, að því verður vart með orðum lýst. Elding- arnar jukust jafnt og þétt, og varð brátt albjart sem um hádag. Með þessu hristist vélin, hoppaði og skoppaði, og virtist nánast stjórnlaus. Hjartað var komið fremur neðarlega í mér, og þegar mér varð litið á Hilmar, sem sat við hlið mér, og aðra menn í næstu sætum, sá ég að eins var ástatt með þá. í miðj- um þessum ósköpum finnst mér vélin stingast á endann niður á við og snúast og þveitast um leið, sem er merki um algert stjórnleysi. Hræðslan nær nýjum hápúnti, mér er litið út um gluggann og þar sá ég dökkrauðan bjarma, og heyri rífandi hvin, sem líktist brothljóði. Eins og leiftur þýtur gegn um huga minn: „Eldingarnar hafa kveikt í vél- inni og hún er að hrapa í hafið!!“ Ég var sem lemstraður í sætinu. Vélin rétti sig af, náði að snúa til baka út úr ó- veðrinu, ég áttaði mig smátt og smátt á því að ég var enn á lífi. Rauði bjarm- inn hafði verið siglingaljós vélarinnar, sem lýsti upp haglélið í loftinu um- hverfis vélina, hávaðinn stafaði af snjó- höglunum, sem lömdust á skrokk vélar- innar. Það var dásamleg sjón að sjá eld- ingarnar rása fram og aftur úr fjarlægð. Það var engu líkara en að norðurljós- unurn hefði slegið niður á jörðina, og að þau væru að spegla sig í Miðjarðar- hafinu. Það, að geta séð hamfarir nátt- úruaflanna úr hæfilegri fjarlægð, hvern- Vilhjálmur Einarsson á tefingu á hinum forna leikvangi t Aþenu. ig eldingarnar geystust frain og aftur, lýsandi upp dökkgrænt mánaskin haustkvöldsins, gaf sérstaka unaðs- kennd. Ef til vill voru tilfinningar mínar enn örari vegna þess þakklætis, sem fyllti hjarta mitt yfir því að fá að vera til. Slík reynsla, eins og að horfast í augu við dauðann, þótt það sé aðeins sekundubrot, og þótt það sé við ímynd- aðar lífshættur, en þær eru jafn raun- verulegar fyrir það, gefur hlutaðeigandi aukna tilfinningu fyrir gildi lífsins, og kennir honum að meta það að meiru. Snúið var við svo búið til baka til Nissa, og eftir allt fór það þó svo, að við feng- um að gista í návist Grace Kelly. Næsta dag var farið til Aþenu, og var þá ó- veðrið að mestu gengið yfir. AÞENA. Við ókum að kvöldi frá flugvellin- um inn í borgina og svo áfram 15 km. frá miðbænum út í þorp sem heitir SAMVINNAN 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.