Samvinnan - 01.12.1957, Page 38
7'ii dœyraátifttinfar
tA(Th
DlMi
— Ég hugsa að það sé eitthvað að lömpunum og
svo hefur dagskráin verið léleg undanfarið, ef
þér vilduð vera svo góður að lagfcera hana um
leið.
— Hann ku vera svo afskaplega hneddur um kon-
una sina. —
11) Sagan af Sherlock Holmes
Sherlock Holmes er sjálfsagt frægasti leyni-
lögreglumaður sögunnar eða öllu heldur bók-
menntasögunnar. En svo raunveruleg hefur
þessi meistaralega sögupersóna Arthur Conan
Doyle's orðið, að margir halda, að hann sé eða
hafi verið af holdi og blóði. í ensku blaði var
nýlega frá því sagt, að enn þann dag í dag fái
Shorlock Holmes mikinn fjölda bréfa frá að-
dáendum. Sumir leita þar ráða hjá honum með
ýmisleg vandræði og fjöldi af kvenfólki býðst
til að sjá um húsverkin fyrir hann. Eftir þvi
sem eftirfarandi saga segir, fékk Sherlock
Holmes fljótlega verkefni hinum megin, en
eins og vanalega var það mjög auðvelt fyrir
hann að leysa það. Sagan er svona:
Þegar Sherlock Holmes kom til Himnarikis
tók Sankti Pétur á móti honum og bað hann í
guðs bænum að hjálpa sér. Vandræðin voru
þau, að Adam og Eva urðu svo þreytt á rit-
handasöfnurum, að þau breyttu á sér andlitun-
um og hurfu í englaskarann. Nú þurfti Pétur
endilega að ná tali af þeim, en þau svöruðu
ekki köllum hans. Bað hann Sherlock Holmes
nú að finna þau fyrir sig.
Eftir fáa daga kom Sherlock Holmes með
Adam og Evu og andlit þeirra voru enn ó-
þekkjanleg. Þegar þau höfðu játað, sneri Sankti
Pétur sér undrandi að Sherlock Holmes og
spurði: „Hvernig í ósköpunum fórstu að því að
finna þau, herra Holmes?" — „Auðvelt, í raun
og veru mjög auðvelt", svaraði Sherlock Holmes.
Spurningin er: Hvernig fór Sherlock Holmes
að því að þekkja Adam og Evu?
£t7w á t>b. Sl
1) Það tilheyrir jólunum og skammdeginu að
fást við hverskonar dægrastyttingar. Fyrir þá,
sem hafa gaman af að leggja sig í líma við
gátur og þrautir, er hér verkefni. Menn hafa
lengi fengist við þá list að búa til margskonar
þrautir úr einhverjum hlutum eða einungis
strikum. Góð dægrastytting fyrnist aldrei frem-
ur en góð saga eða snjöll vísa.
Þessar myndaþrautir, sem hér birtast eru
mjög léttar að undanskilinni þeirri hér að of-
an (nr. 1) enda er hún gamalfræg.
Eins og sjá má, er þetta ílangur ferhyrningur,
sem skiptist í 5 reiti. Allur galdurinn er að
draga eitt samfellt strik, sem sker hverja hlið
hvers einstaks reits aðeins einu sinni. Það er
alveg sama hvar strikið byrjar eða endar.
2) Það er tlmaspursmál, sem hér er á ferðinni.
Myndunum er hér raðað eftir tímaröð, A, B, C
og D, en það er ekki rétt. Með því að athuga
myndirnar nákvæmlega á að vera mjög auðvelt
að raða þeim í rétta röð og það má ekki taka
lengri tíma en eina mínútu.
3) Hér er fangelsi, sem er byggt eins og völ-
undarhús, en ólíkt öðrum fangelsum að því
leyti, að það er opið. Fangaklefinn er merktur
með X. Þaðan er ein opin leið, sem síðan
greinist á fjölda vegu. Fanginn er frjáls ferða
sinna, ef hann kemst út. Vilt þú, lesandi góð-
ur, setja þig í spor fangans og reyna að komast
út. Útgangur er, eins og sjá má, aðeins á einum
stað.
38 SAMVINNAN