Samvinnan - 01.12.1957, Page 47
skipafjölda heimsins og lágra flutnings-
gjalda og sumpart af óvenjulega lágu
verði á járni, stáli og öðrum málmum á
heimsmarkaðinum.
Á fullveldisdaginn, þann 1. desember
1926, var hið nýja skip sett á flot hjá
Flydedokken. Fór sú athöfn hátíðlega
fram. Grethe Nielsen, dóttir Emils Niel-
sens framkvæmdastjóra, skírði skipið.
Hlaut það nafnið „Brúarfoss“.
Jafnframt því, að rætt var um og und-
irbúin kaup á kæliskipi, var hafinn und-
irbúningur að byggingu frystihúsa. Það
voru kaupfélögin og sláturfélögin, sem
önnuðust þær framkvæmdir. Var tals-
vert kapp milli félaganna um bvggingu
húsanna, en vegna fjárskorts var ekki
hægt að fullnægja öllum óskum manna í
þessu efni. Sambandið hafði forystu þess-
ara mála og tókst að ná samningum við
félögin um að fylgja fyrirfram gerðri
áætlun um byggingu frystihúsa, og var
þeirri áætlun fylgt að mestu.
Frystihúsin voru lítil, en vönduð að
allri gerð. Var ekkert hús svo stórt, að
það tæki alla haustslátrun viðkomandi
héraða. Varð því að gera ráð fyrir, að
hægt yrði að taka a.m.k. einn skipsfarm
af kjöti á meðan stóð á haustslátrun og
þá helzt tæma húsin, svo hægt væri að
fvlla þau á ný áður en slátrun Iyki.
„Brúarfoss“ fór í fyrstu ferð sína með
frosið og kælt kjöt haustið 1927. Lagði
skipið af stað frá Reykjavík 27. sept. og
lestaði frosið kjöt í Reykjavík, Hvamms-
tanga og Akureyri, alls 16.462 skrokka,
en ófrosið kjöt á Húsavík og Reyðar-
firði, alls 1918 skrokka. Guðmundur Vil-
hjálmsson seldi kjötið á meðan skipið
var á útleið. Verðið var til muna hærra
en á saltkjöti, enda var nú lagt allt kapp
á að fjölga frystihúsum. Þetta fyrsta
haust voru aðeins til 3 frystihús, sem
gátu fryst kjöt til útflutnings, en næstu
3—4 árin bættust 9 hús við. Með þess-
um húsakosti var hægt að frysta allt að
% af dilkakjötsframleiðslunni með því
að „tvíhlaða“ í hvert frystihús á haust-
in. Haldið var áfram að byggja frystihús
alls staðar þar sem aðstaða leyfði og
nauðsyn krafði. Því nær öll kaupfélög og
sláturfélög, sem aðstöðu höfðu til út-
flutnings á kjöti, voru búin að koma sér
upp frystihúsum fyrir 1940. Sala á freð-
kjöti til Danmerkur og Svíþjóðar hófst
1930 og var talsverð sala á íslenzku freð-
kjöti í þessum löndum næstu 10 árin.1)
Júlíus Júliníusson var ráðinn skip-
J) Alls voru fluttir út 1927—1939, að báðum
árum meðtöldum, um 1.360.000 frosnir dilka-
skrokkar.
stjóri á „Brúarfoss“. Þetta var alveg sér-
stakt lán fyrir útflytjendur, því þó öll
meðferð væri vönduð eftir föngum í
frystihúsunum, meðal annars fengnir
þrír sérfræðingar frá Englandi árið eftir
að útflutningur hófst, sem ferðuðust
milli frystihúsanna til að leiðbeina og
kenna meðferð á kjöti í sláturhúsum og
frystihúsum, þá hefði það ekki komið að
fullum notum, ef kjötið hefði sætt mis-
jafnri meðferð í flutningum. En Júlíus
skipstjóri, sem var orðlagt snyrtimenni
í allri umgengni á skipum þeim, sem
hann stjórnaði, lét sér alveg sérstaklega
annt um kjötflutningana, langt umfram
það, sem hægt var að krefjast af hon-
um. Sem dæmi um árvekni hans vil ég
geta um eitt atvik, sem sýnir þetta ljós-
lega. í fyrstu ferð „Brúarfoss“ á haust-
in lögðu kaupfélagsstjórar mjög mikla
áherzlu á að koma sem mestu af kjöti
með skipinu. Svo var það einu sinni. að
kappgjarn kaupfélagsstjóri var að láta
skipa út kjöti, að skipstjóri lætur stöðva
lestunina, þegar komið er nálægt því, að
útskipun ætti að vera lokið. Hann skoð-
ar svo kjötið, sem síðast var komið með
að skipshlið og þykir það linfrosið, og
skipti það engum togum, að hann neit-
aði að taka við því. Hér áttu matsmenn
að vera á verði, en hafði yfirsézt.
Þá var það og, að á miklu valt fvrir
kaupfélögin að Iosna við sem mest af
kjötinu í sláturstíð. „Brúarfoss“ varð að
lesta á 10—12 höfnum frá Reykjavík
norður urn land til Reyðarfjarðar. í þau
14 ár, sem Júlíus skpistjóri annaðizt
þessa flutninga, man ég ekki eftir að það
kæmi nema einu sinni fyrir, að liann vrði
að sigla framhjá útskipunarhöfn vegna
óveðurs, en svo lánlega tókst til, að
hann gat komið við og tekið kjötið á
þessari höfn degi síðar, og hafði þá tekið
farm á næstu höfn í millitíðinni. — I’að
er sagt um Odd Ófeigsson á Mel í Mið-
firði, sem var mikið í kaupferðum, að
„hann var farsælli en aðrir menn“. Ég
held ekki, að á neinn sé hallað þó sagt
sé um Júlíus skipstjóra, að hann hafi
verið farsælli en aðrir menn, eða sú er
mín reynsla.
Ég lét þess getið í upphafi þessarar
greinar, að tilkoma „Brúarfoss“ hefði
valdið miklum breytingum í íslenzkum
framleiðsluháttum. Væri réttara að orða
það svo, að hér hefði orðið atvinnubylt-
ing. Hún var að vísu hægfara fyrst fram-
an af, einkum í meðferð sjávarafurða.
En þegar góð reynsla var fengin um út-
flutning á frosnu kjöti, var árið 1930
hafizt handa um tilraunasendingar á
frosnum fiski til útlanda. Þó hægt væri
af stað farið, þá slitnaði þráðurinn aldrei.
Nú er freðfiskur Iang veigamesta út-
flutningsvara íslendinga, og því nær allt
kjöt, sem selt er til neyzlu innanlands og
utan, er nú fryst, og fyrir frosið kjöt er
áreiðanlega ótæmandi markaður í ná-
grannalöndum okkar, hvað mikið sem
við þurfum að flytja út af þeirri vöru.
Og upphafið að þessari mikilsverðu
þróun má rekja til kaupanna á „Brúar-
fossi“.
Reykjavík, júlí 1957
Jón Árnason.
Norrænn sigur...
(Framh af bls. 36).
valla Aþenuborg, sem liggur á láglend-
inu umhverfis hæðina, og teygir sig upp
í hlíðar og dalverpi fjarlægra fjalla.
Eitt er að sjá Akrópólis neðan úr
borginni, annað, enn áhrífameira, er að
ganga hinar grá-hvítu máðu klappir á
hæðinni sjálfri, virða fyrir sér hofin ná-
lægt, hinn svipmikla og hreina dóriska
byggingastíl, og að sjá borgina við fæt-
ur sér þegar horft var lengra.
KEPPNIN.
Vegna hitans á daginn var horfið að
því að keppa eftir kl. 8 á kvöldin. Var
þá kveikt á ágætum ljóskösturum og
keppt við rafmagnsljós. Ekki mun ég
fjölyrða um keppnina, því svo ítarlegar
fréttir hafa þegar borizt frá henni.
Ferðin heppnaðist frábærlega fyrir
okkur, Hilmar vann 100 m. hlaupið,
varð annar í 200 m hlaupi, tók auk
þess þátt í tveim boðhlaupum, sem bæði
unnust. Valbjörn varð fyrir því óláni að
brjóta stöngina sína í annari tilraun á
4,40. Ilann var svo jafn öðrum með
— Reyndu nú að líta á björtu hliðarnar — eftir
16 tíma verðurðu kominn í rúmið aftur.
SAMVINNAN 47