Samvinnan - 01.12.1957, Síða 49
fyrsta sætið, að fram fóru aukastökk til
þess að skera úr um röðina. Valbjörn,
sem fyrr hafði sýnt mesta öryggi stang-
arstökkvaranna, varð nú að stökkva af
stöng, sem hann hafði aldrei snert áð-
ur, og tapaði naumlega, varð þar með
annar í röðinni.
Þrístökkskeppnin fór frani síðasta
daginn, samtímis og stangarstökkið.
Byrjað var kl. 5 og var þá enn mikill
hiti. Norman, sem hafði keppt á Italíu í
landskeppninni, var forsjálli en við
hinir. Hann „hitaði upp“, (svo kalla í-
þróttamenn undirbúningsæfingar, sem
gerðar eru fyrir keppni) í öðrum bún-
ingi en þeim, sem hann ætlaði að keppa
í. Við Járvi rennbleyttum okkar bún-
inga í svita, og höfðurn ekkert til skipt-
anna.
Mér fannst ég allur eitthvað svo
slappur og máttlaus rétt fyrir keppnina.
Það var svipuð kennd og einkennt hafði
flestar keppnir sumarsins. Aðspurðir
hafa margir spekingar sagt, að þetta
sýni, að ég kunni nú betur en áður að
„slappa af“, útiloka mig frá hugsunum
um komandi átök, og sé að geyma eða
stafla upp orku til seinni tíma, og komi
það út á þennan hátt.
Skilyrði voru ekki hagstæð, nema að
hlý golan stóð í bakið. Hinar fjaður-
magnslausu leirbrautir voru „dauðar“ en
harðar, og „brekkan“ var lítið eitt í
fangið. Sakir þess, hve völlurinn er mjór,
voru áhorfendur rétt við keppendur á
báða bóga, mér fannst ég vera urn-
kringdur á allar hliðar.
Fyrsta stökkið heppnaðist ekki vel,
ég stökk upp aftan við plankann. Ann-
að var betra, nú kom sér vel stál-hællinn
frá Valkama, á hinum hörðu brautum,
sem gáfu hnykk við hverja lendingu. í
þriðja stökki komst ég 15.95 m, bezti
árangur rninn í sumar. Eg fékk auk þess
svo slæman hnykk, að eitthvað laskað-
ist í baki mér, og fann ég illilega til í
síðunni. Iþróttalæknirinn sagði mér, að
þetta væri meinlaust sina- eða vöðva-
slit. Eg hafði ekki enn sætt mig við að
kornast ekki 16 m í sumar. Aldrei hafði
vindurinn verið svo hagstæður, en þó
löglegur. Þetta var líka örugglega síð-
asta keppni sumarsins. „Get ég stokkið
meira?“ spurði ég lækninn. „Jú,“ sagði
hann brosandi, „en ég býst ekki við því
að það þýði mikið, og verkurinn bara
eykst“.
Nú vann ég eitt mitt mesta íþrótta-
afrek: Ég sleppti tveim næstu umferð-
um, vitandi að það allra-síðasta varð að
duga, og þrátt fyrir eymdina komst ég
15.92 m.
Norðurlandablöðin báru óspart lof á
íslenzku sveitina. Á þrjá menn fengust
22 stig, Norðmenn með 10 menn fengu
23 stig. Flestir fullyrtu að ísland hefði
haft bezta liðið „eftir stærð“.
Keppninni lyktaði með yfirburðasigri
Norðurlanda, 243 stig móti 177. Dásam-
legu ævintýri var lokið. Við höfðum
keppt á Aþenuleikvanginuni, og eigum
enga ósk heitari en þá, að „Norðrið“
rnegi á ný verða sameinað sem oftast
mót Balkan, Bandaríkjunum, Rússlandi
eða hverju því ríki sem hefur svipaðan
styrkleika i frjálsum íþróttum.
Vilhjálmur Einarsson.
Kvöldstundir...
(Framh. af bls. 43).
rétta, ein þeirra stjórnar verkinu með
ákveðnu og öruggu fasi, það er hús-
mæðrakennarinn, frk. Guðrún Kristins-
dóttir. „Þið hellið svo rjómanum yfir
„freistinguna“ á tilsettum tíma,“ segir
hún um leið og hún hverfur út úr eld-
húsinu og gengur til sviðsins, þar sem
hún næsta klukkutímann sýnir tilbúning
á sömu réttum og þær voru að matreiða
í eldhúsinu. Hvað átti hún við með
„freistingunni"? Það skaltu nú sjálfur
sjá og heyra. Komdu fram og hlustaðu
á hana. Og sýnikennslan er hafin. Á
borði uppi á sviðinu ægir sarnan bollum
og skálum, fötum og diskum, flöskum og
hnífum og jafnvel skærum, að ógleymdri
síldinni. Guðrún byrjar á byrjuninni,
fyrst sýnir hún hvernig flaka á síldina.
Þá er komið að síldarréttunum sjálfum
og kemur þá í ljós, til hvers öll þessi ílát
voru; í þeim er alls konar krydd og mat-
væli, sem nota skal með síldinni. Mér
kemur í hug sagan um naglann í súp-
unni, en var það ekki líka hin bezta
súpa, þegar allt kom til alls? Hún sýnir
tilbúning livers réttarins á fætur öðrum.
Konurnar fylgjast um leið með í bækl-
ingnum, þar eru sömu réttir skráðir: það
er sýrð síld, síld í þrenns konar sósu,
„síldarauga“, „freistingin hans Jóns
míns“, síldarsalat og að lokum „sólar-
lag“. Það á vel við að enda á „sólarlag-
inu“. Guðrún fær sínar þakkir frá frún-
um og um leið og hún lýkur máli sínu
býður hún þeim að smakka á réttunum,
sem lagaðir voru frammi í eldhúsinu.
Réttirnir eru bornir inn. Konurnar koma
í röð og taka hver sinn pappadiskinn,
trégaffalinn, handþurrkuna og hrökk-
brauðsbitann, en síðan skammta stúlk-
urnar á diskana þeirra. Þær fá einnig
maltflösku með sér í sætið, það er betra
að renna réttunum niður með því.
I hliðarsalnum hefur verið lagt á borð
fyrir konurnar. Getur þar að líta lokk-
andi kökur og rjúkandi kaffikönnur. Það
er ekki amalegt að fá sér kaffisopa svona
í Iokin. Konurnar kunna vel að meta
það. Hér er glatt á hjalla, og enginn læt-
ur sitt eftir liggja. Fer svo að lokum, að
margir hafa látið til sín heyra, og mikil
ánægja ríkir með fundinn.
Konurnar fara hver heim til sín. í eld-
húsinu er verið að ganga frá og koma
öllu á sinn stað aftur. Framundan eru
margir fundir og því ekki til setunnar
boðið. Bílnum er ekið að eldhúsdyrun-
um, töskum, kössum og körfum komið
fyrir á sínum stað. Betra er að ganga frá
því núna, heldur en að hefja næsta dag
með því. Klukkan er að verða tvö, þegar
allt er búið, og þeir, sem að fundinum
stóðu, geta gengið til náða. Það er stafa-
logn, fjörðurinn spegilsléttur, algjör kvrrð
í bænurn og yfir honum gnæfir Hólma-
tindur upp úr rökkrinu og stendur sinn
eilífa vörð. Á leiðinni heirn til kaupfé-
lagsstjórans, þar sem ég gisti, hvarflar
hugurinn til næstu daga og funda. Fram-
undan er Borgarfjörður eystri, Seyðis-
fjörður, Vopnafjörður og Þórshöfn, en
þar verður siðasti fundurinn á Austur-
landi. I Vestmannaeyjum verður líka
fundur, en að honum loknum verða ekki
fleiri slíkir í ár. Margt á eftir að ske á
langri leið, og þótt ferðin sé oft seinfar-
in og þreytandi, þá er hún skemmtileg
samt og lærdómsrík. Heima bíður konan
mín og börnin, en ég hef það líka á til-
finningunni, að „konurnar mínar“ úti
um allt land bíði þess, að ég komi til
þeirra aftur með fleiri slíka fundi.
Orlygur Hálfdanarson
frá Viðey.
— Nei takk, ég sá þegar hún bjó það til. —
SAMVINNAN 49