Samvinnan - 01.08.1971, Page 2

Samvinnan - 01.08.1971, Page 2
III Þcr fóíkf oiktr t(V99ÍA9or h|ó okkur Hinn 1. september voru liðin 25 ár frá því að Samvinnutryggingar hófu starfsemi sína. Bjartsýni og stór- hugur rikti við stofnun félagsins og fullyrða má, að flestar óskir og vonir hafa rætzt. Viðskiptavinum fjölgar stöðugt og margbreytileg verkefni vaxa dag frá degi. Nauðsynlegar nýjungar hafa verið teknar upp og áföllum verið mætt með festu og öryggi. Meginstefnan er og hefur verið hagkvæmar tryggingar og sanngjarnt tjónauppgjör. Á þessum tímamótum er því ástæða til að gleðjast yfir þeim árangri, sem náðst hefur, og horfa björtum augum til framtíðarinnar. Félagið er enn ungt að árum, og framundan eru manndómsárin. Á því aldursskeiði má vænta beztra afreka, þegar undirstaðan hefur verið lögð af kostgæfni og með ákveðið takmark í huga. Á þessum tímamótum sendum við ölium viðskiptamönnum okkar beztu árnaðaróskir. SAMYINNUTRYGGINGAR

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.