Samvinnan - 01.08.1971, Blaðsíða 47

Samvinnan - 01.08.1971, Blaðsíða 47
mæðra sinna, þótt aldrei nema þar værl náið samband á milli. Dæturnar hafa séð leiðann og uppgjöfina og fundið þann óglaða tómleika, sem knúði mæðurnar svo iðulega til að herða í sífellu takið á börnum sínum. Þær reyndu samtímis að lifa lífi eiginmanns og barna; tíminn var á stundum drepinn með innkaupum, sem leiddu til yfirdrifins áhuga á ýmsum dauðum hlutum sem að sjálfsögðu hrukku svo ekki til að fylla upp í tómið. Ein uppfyllt ósk fæddi strax af sér aðra, en gátum við skilið mæður okkar eða urð- um við bara ergilegar? spyr hún. Það merkilega var, segir hún, að fjölmargar þeirra mæðra, sem höfðu gott og ástúð- legt samband við dætur sínar (og nefnir móður sína sem eitt dæmi um það), þær óskuðu þess ekki heldur, að líf dætranna tæki á sig sömu mynd. Þær vissu, að þær þörfnuðust einhvers meira. En hvar var sú fyrirmynd, sem ungu stúlkurnar gætu stefnt að því að laga sig að? Betty Friedan rifjar upp, að þegar hún var sjálf að alast upp, vissi hún að- eins um örfáar konur, sem stunduðu sjálfstætt starf. Þær voru ekki húsmæður og áttu ekki börn, heldur voru þetta sumsé piparjómfrúr í hefðbundnum stíl. Þá fyrirmynd leizt henni ekki á og þótti ekki fýsilegt að feta í þeirra fótspor, þó að í hópi þeirra væru kennslukonur, sem hún mat mikils, sem kenndu henni að meta og virða eigin skynsemi, nota hana og finna um leið hlutdeild sína í samfé- laginu. Öll bernsku- og æskuárin þekkti hún ekki eina einustu konu, sem gerði hvorttveggja að nota hæfni sína og vits- muni og taka virkan þátt út á við og jafnframt lifa venjulegu heimilislífi með manni og börnum. Hún telur, að sá geigur, sem grípur unga stúlku, þegar hún þarf um tvítugs- aldur og jafnvel fyrr að taka ákvörðun fyrir lífstíð, sé einfaldlega ótti og kvíði gagnvart því að verða fullorðinn, og það á nýjan máta, sem áður hefur ekki komið til greina íyrir stúlkur. Það er hugsanlegt, að ungu stúlkurnar séu uggandi and- spænis nýju frjálsræði til að ákvarða sjálfar líf sitt án handleiðslu annarra og fara þannig inn á nýjar brautir, sem konum hafa ekki staðið opnar fram að þessu. Það er einnig hugsanlegt, að stúlka, sem giftir sig kornung og beinir allri orku sinni að hússtörfum og barna- gæzlu, sé þar með að víkja sér undan því að verða fullorðin, hún veigri sér við því að takast á við spurninguna um sína eigin sjálfsímynd. Höfundur minnist þess, að allmargar af hennar eigin stúdentaárgangi höfðu raunverulegar framtiðaráætlanir um nám og starf, þótt það færi á ýmsa lund, en einnig þess, að þær voru samt taldar öf- undsverðar, sem þá þegar gátu flúið inn í hjónabandið og sloppið við völina og kvölina. Þær, sem þá voru taldar sleppa vel, hafa aftur á móti fengið vandamálið með auknum þunga síðar á ævinni, t. d. um fertugsaldur. Hún tilfærir ýmis dæmi um það, er þessar konur líta yfir farinn veg. Þeim finnst þær raunverulega aldrei hafa lifað eigin persónulegu lífi eða fund- ið sér stað í tilverunni né heldur komlzt að raun um, hvað þær gætu, ef á reyndi; hverjar þær væru. Margar af yngri kynslóðinni hafa hugs- unarlítið gengið á vit hins kvenlega hlut- verks sem eiginkona og móðir, hafa með- tekið forsjá eiginmannsins og ekki gert sér rellu útaf frekara vali, sem væri þeirra eigið val. Þessar konur telur Betty Friedan að líði stórlega undir vandamálinu nafn- lausa, meðvitað og ómeðvitað. Sjálfsímyndin Hún telur, að megininntak hinna kven- legu vandamála nú á dögum sé ekki kyn- ferðislegs eðlis, heldur sé þar á ferð vandamálið um sjálfsímynd — identity — hvers og eins, eða aðlögun einstakrar per- sónu að ákveðnum hugmyndum, hlut- verkum, að persónulegur vöxtur hafi stöðvazt og undanhald eða flótti komið til, sem aftur megi rekja til áhrifa þjóð- sögunnar um konuna. Það hafa alltaf komið upp vandamál um sjálfsímynd mannsins á ýmsum tímamótum og breyt- ingaskeiðum sögunnar, þó að það fyrir- bæri hafi ekki fengið á sig skýra mynd eða verið gefið nafn fyrr en á síðustu tímum. Þetta hefur fyrst og fremst verið skoðað sem vandamál karlmannsins og skilgreint út frá uppeldislegum vanda og vandanum að velja sér svið. Það snýst um þá ákvörðun, hvað hann á að taka sér fyrir hendur, hvað hann á að verða. Þessi leit að sjálfsímynd, ákveðinni skilgrein- ingu á eigin persónuleika, er ekki nýtt fyrirbæri í amerískum þenkimáta, þó að hver kynslóð og hver einstaklingur verði að snúast við því á nýjan hátt. í Ameríku hefur ævinlega verið gengið út frá því, að menn horfðu vonglaðir til framtíðar- innar, og þróunin hefur alla tíð verið svo hröð, að sjálfsímynd mannsins á hverjum tíma hefur ekki getað staðið í stað. Með hverri kynslóð eru fjölmargir karlmenn, sem ekki geta farið að dæmi feðra sinna og hafa þarafleiðandi fundið sig skorta visst öryggi og haldreipi í tilverunni. Stefið um unga manninn, sem getur ekki snúið við heim á leið, og leit hans að nýrri sjálfsímynd hafa amerískir rit- höfundar fjallað ýtarlega um, og í Amer- íku hefur það ævinlega verið talið sjálf- sagt og eðlilegt, að karlmenn yrðu að taka út vöxt síns persónuleika með nokkrum þrengingum og sársauka. Bóndasonurinn, sem fer til borgarinnar; sonur verkakonunnar, sem verður lærður maður; Abraham Lincoln, sem lærði að lesa af sjálfum sér; þetta hefur alltaf snúizt um eitthvað meira en fátæka drenginn, sem verður rikur og voldugur. Þetta hefur falið í sér verulegan hluta af inntaki hins ameríska lífsdraums. Margir hafa dæmzt úr leik og ekki feng- ið að velja vegna fátæktar, kynþáttar eða þjóðfélagsstéttar, en vandamálið hef- ur ekki verið, hvað þeir myndu velja, ef allar aðstæður leyfðu þeim að eiga völina. Unga manninum er kennt, að hann verði i tæka tíð að velja sér lífsstarf, og það heldur fyrr en síðar, eigi hann ekki alveg að heltast úr lestinni. Þessi leið hvers og eins til að finna sína sjálfsímynd hefur samt á síðustu tímum orðið örðugri og örðugri. Æ fleiri ungir menn koma ekki auga á nein fordæmi, hvorki með kyn- slóð feðra sinna né annarsstaðar. Gamlir áfangar hafa verið lagðir að baki, en nægilega skýr kennileiti fyrir nýja áfanga hafa ekki verið mörkuð, svo menn geti beint sjónum sínum þangað. Þessi vandi skýrrar sjálfsímyndar í heimi nútímans brennur á mjög vaxandi fjölda manna, sem tekst ekki að finna lífi sínu þau markmið, sem megni að leysa skapandi orku þeirra og hæfileika úr læðingi. Hvernig er nú hægt að útskýra það, spyr Betty Friedan, að sérfræðingar og fræðimenn hafa ekki beint athygli sinni að samskonar vandamálum hjá konum? Bæði gamlar erfðavenjur og þjóðsagan um konuna aðhyllast lífsmunstur, sem gerir ekki ráð fyrir neinum þeim per- sónulega vexti kvennanna, sem nái að leiða til skýrrar sjálfsímyndar. „Örlög konunnar mótast af því, hvernig hún er úr garði gerð frá náttúrunnar hendi, og sjálfsímynd konunnar ákvarðast af hinu líffræðilega hlutverki hennar", segja for- svarsmenn þjóðsögunnar. „Er þetta nú rétt?“ spyr höfundur og segir ennfremur: Þeim fer sífjölgandi konunum, sem eru eins og að ranka við sér úr djúpum dá- svefni, spyrjandi: Hvar er ég? Hvað er ég eiginlega að gera hér? í fyrsta skipti, sem sögur fara af, eru konurnar að byrja að gera sér grein fyrir því, að þær standa á einskonar vegamótum, frammi fyrir þeim vanda að finna eigin skýra sjálfs- ímynd. Einnig fyrri kynslóðum var þessi vandi á höndum, og hann hefur farið vaxandi með hverri nýrri kynslóð. Hann mun ekki leysast fyrr en nútímakonur eða dætur þeirra taka að feta nýjar og ótroðnar slóðir, ekki fyrr en þær skapa með lífi sínu og fordæmi þá nýju ímynd, sem margar nútímakonur vantar svo til- finnanlega. Þáttaskil Betty Friedan lætur í ljós þá skoðun sína, að við séum staddar á tímamótum, er marki þáttaskil varðandi persónulega þroskabraut konunnar, á leiðinni burtu frá þeirri stöðnun og þeim andlega van- þroska, sem hefur fengið heitið kvenleiki, áleiðis til fullmótaðrar skýrrar sjálfs- ímyndar. Hún telur, að það hafi vissu- lega verið nauðsynlegt að brjótast gegn- um örðugt vaxtarskeið sjálfsímyndar fyr- ir 100 árum, og það sé jafnnauðsynlegt nú á dögum, einfaldlega til þess að verða fullgildir einstaklingar. Það, sem knúði konur fyrir meira en 100 árum til að leggja út á hina þyrnum stráðu braut kvenréttindabaráttunnar, var einmitt þörfin fyrir nýja sjálfsímynd. Athafnir þeirra fólu í sér uppreisn, öfluga afneitun hinnar viðteknu kvenlegu í- myndar þeirra daga. Hin ástríðufulla, hug- sjónaríka barátta þeirra var borin uppi af þessari þörf fyrir ímynd nýs hlutverks á áður óþekktum slóðum. Brautin var örðugri en þær gerðu sér í hugarlund; þær bar stundum af leið og tóku hliðar- spor inní blindgötur, en söguleg nauð- syn þess að marka nýja braut, ný þátta- skil, var engu að síður staðreynd. Vandamál skýrrar sjálfsímyndar kvenn- anna var í þá daga nýtt fyrirbæri, og 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.