Samvinnan - 01.08.1971, Blaðsíða 45

Samvinnan - 01.08.1971, Blaðsíða 45
fellið seint á árinu 1966. Þar með var lok- ið fyrsta átaki íslendinga til að taka þennan þátt samgöngumálanna í sínar hendur. Þrjú ný skip í ár Nokkrum mánuðum eftir að Hamra- fellið hafði kvatt ísland, kom greinilega í ljós, að sinnuleysi eða óvild stjórnvalda i garð þessa þáttar íslenzks efnahagsör- yggis og atvinnusjálfstæðis varð að gjalda dýru verði. Aftur kom til átaka við Miðjarðarhafsbotn. í júní 1967 brauzt út svokallað sex-daga-stríð. Afleiðingarn- ar hafa orðið þær, að um það bil fjögur ár hafa flutningsgj öld á olíum verið mjög há og stundum hærri en á stríðsárunum. Þótt hlutur íslendinga i olíuneyzlu sé smár, hlýtur það að hafa glatt erlenda skipaeigendur, að íslendingar voru að öllu leyti upp á aðra komnir í þessu efni, þannig að mikill hagnaður af flutningun- um rann i þeirra vasa, en varð ekki eftir hjá íslendingum sjálfum. Saga Hamrafells er kapítuli út af fyrir sig í sögu skipareksturs samvinnumanna og annarra íslendinga — og vissulega dapurlegur endir hans. Nokkru áður en Hamrafellið hvarf af vettvangi, eignuð- ust Sambandið og Olíufélagið lítið oliu- skip, Stapafell, sem kom til landsins árið 1962. Hvassafellið var selt árið 1964, en það sama ár var Mælifell keypt. Nú er verið að smíða tvö skip fyrir Sambandið. Annað þeirra, frystiskip, hef- ur þegar verið sjósett og nefnt Skaftafell. Það verður afhent í september. Hitt er almennt flutningaskip og verður afhent í desember næstkomandi. Þetta afmælis- ár skipareksturs SÍS verður því minnis- stætt að því leyti, að i flotann bætast þrjú ný skip. Langferðir Á þessu 25 ára skeiði hafa orðið margs konar breytingar á flutningaþörfum ís- lendinga. Kol, salt og sement eru ekki lengur meginverkefnin. Hins vegar hafa áburður og fóðurbætir orðið allfyrirferð- armiklir liðir í flutningunum, en vænta má að innan tveggja ára verði áburður- inn að meginhluta framleiddur í land- inu sjálfu. Á fyrstu árum Skipadeildar voru Mið- jarðarhafsferðir tíðar, en þangað var þá fluttur saltfiskur. Einnig var síldarút- flutningur — síldarmjöl og saltsíld — verulegur þáttur útflutningsins. Skipin fóru stundum skemmtilegar ferðir, sem vöktu athygli á sínum tíma, til dæmis saltfiskferðir til Brasiliu og skreiðarferð- ir til Nígeríu, sem voru lengstu ferðir íslenzkra skipa. Áhafnir skipanna hafa yfirleitt reynzt þeim vanda vaxnar að sigla erlendis, en samt hefur á því borið, að íslendingar eru óvanir að vera langdvölum fjarri heima- högum. Er þess ekki að vænta, að við getum með árangri tekið þátt í sam- keppni á heimsmarkaði nema breyting verði á í þessu efni. Öðrum illa treystandi Á síðustu árum hefur hafís valdið mikl- um erfiðleikum, ekki sízt við rekstur Sam- bandsskipanna, sem gegna því megin- hlutverki að sigla til liðlega 50 hafna kringum landið. Því er ekki að neita, að siglingar á þessar hafnir eru oft ákaf- lega erfiðar og reyna mjög á hæfileika skipstjórnarmanna. Hafnarskilyrði eru víða mjög slæm og stundum hefur verið teflt á tæpasta vað til að koma vörum á áfangastað. Hefur þetta oft og tíðum leitt til skemmda og tjóna á skipum, sem aft- ur hefur haft áhrif á rekstursafkomu Skipadeildar. Um það er þó ekki að fást. Skipunum var ætlað þetta hlutverk, og því verða þau að sinna svo vel sem að- stæður framast léyfa. Reynslan hefur fært okkur heim sann- inn um það, að fyrir þjóðfélagið í heild er ákaflega mikilsvert, að kaupskipaflot- inn sé hæfur til að gegna ætlunarverki sínu. Framleiðsluhættir hérlendis eru sveiflukenndir, og stundum kemur fyrir að verkefnin eru meiri en svo, að inn- lendi skipastóllinn valdi þeim. Þarf þá að grípa til erlendra leiguskipa. Oft hef- ur það komið áþreifanlega í ljós, að er- lendir skipaeigendur hafa glöggt auga fyrir því, hverjar eru þarfir íslendinga, og hækka gjarna flutningsgjöldin til hins ýtrasta þegar sá gállinn er á þeim. Þar við bætist, að þeir hafa ekki áhuga á að sigla til íslands í skammdeginu eða á timum þegar allra veðra er von. Þá leita þeir gjarna á sólríkari og veðurblíðari mið. Það er því á engan að treysta til fulls í þessu efni nema eigin framtak og fyrirhyggju. + Á árinu 1970 flutti Skipadeild SÍS samtals 343.137 smálestir með eigin skipum, sameignarskipum og leiguskipum, og var það 20.000 smálestum meira en árið 1969. Eigin skip fluttu samtals 108.196 smálestir árið 1970. Leiguskip fluttu samtals 26.889 smálestir árið 1970. Olíuflutningaskipin Litlafell og Stapafell fluttu 194.848 smálestir 1970. Eigin skip, sameignarskip og leiguskip Skipadeildar fóru samtals 351 ferð á árinu 1970 (leiguskipin fóru 39 ferðir) með 1355 viðkomum á 55 innlendum höfnum og 232 viðkomum í 22 löndum. 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.