Samvinnan - 01.08.1971, Blaðsíða 38

Samvinnan - 01.08.1971, Blaðsíða 38
David. Riesman. Náin tengsl hafa ævinlega verið milli lög- gjafarvalds og framkvæmdavalds, en sér- staða dómsvaldsins meiri. — Sjálft stjórnarformið hefur þvi einkum tengzt hinum fyrrnefndu tveim þáttum, en dómsvaldið þróazt á sjálfstæðan hátt. — Af hvoru tveggja er mikil saga og verður ekki sögð hér. — Á hitt ber að minna, að Grikkir lögðu í meginatriðum grundvöll- inn að stjórnarforminu með mismunandi tilraunum sínum með ólík stjórnarform. Þeir kynntu fimm gerðir stjórnarforma, þessar: beztumannastjórn svokallaða, aristokrati; einveldis- og konungsstjórn, monarki; harðstjóraveldi, tyranni; fárra- mannaveldi, oligaiki; og loks lýðræði, demokrati. Á arfi Grikkja hefur síðan verið byggt á Vesturlöndum og má segja, að hin fimm stjórnarform hafi hvert um sig átt sína þróunarsögu. Þá hefur einnig verið um að ræða ýmiss konar samteng- ing þessara forma. Einkum og sér í lagi hefur samtenging fárramannaveldis og lýðræðis verið áberandi þáttur í stjórn- málaþróun Vesturlanda. Er ekki fjarri lagi að fullyrða að slík samsteyþa sé hið drottnandi stjórnarform í flestum ríkj- um Vesturlanda. Er þetta vafalaust ein ástæðan fyrir því að hugmyndir og til- gangur lýðræðis hafa verið mjög í sviðs- ljósinu á síðustu árum með vaxandi óánægju þorra manna með þá vægast sagt vafasömu mynd lýðræðis, sem nær alls staðar blasir við. Hið mikla flokks- ræði sem hvarvetna er búið við svo og hagnýting fjármagns til að knýja fram kosningaúrslit bera hinu sama vitni, að raunveruleg lýðræðishugsjón á í vök að verjast. Því er nú víða rætt um að end- urskoða þurfi frá grunni svokallað lýð- ræðisskipulag Vesturlanda, tryggja raun- verulega aðild og þátttöku almennings í stjórn, en haga ekki framkvæmd lýð- ræðisins svo að í því felist valdaafsal og óvirkni alls þorra manna. — Inn í stjórn- málasöguna hefur þáttur dómsvaldsins komið sem sjálfstæð eining þótt í nánum tengslum sé við aðra þróun. Einnig þátt- ur dómsvaldsins hefur tekið á sig mis- munandi búning. Má þar greina ólíkar grundvallarhugmyndir og forsendur. Aug- ljós eru fjögur ólík stig, og skipta þau að nokkru sögu réttarfars og dómsvalds í sjálfstæða kafla. Hin fjögur stig eru sem hér segir: hefndarstigið, þegar dómur og refsing átti að vera margföld á við sök og yfirtroðslur; þá kom endurgjaldsstigið, þegar leitað skyldi jafnvægis í sekt og dómi; síðan upphófst betrunar- og upp- eldisstigið, þegar tilgangur dómsins var að umbreyta og endurhæfa afbrotamann- inn og reyna á þann hátt að tryggja lög- hlýðni og virðingu fyrir réttindum og skyldum. Loks er svo að nefna það stig, sem nú virðist vera að taka á sig ákveðn- ari mynd, en það er i því fólgið að breyta ytri aðstæðum, jafna kjör manna og að- stöðu, svo að hvorki misræmi í kjörum og afkomu né misskipting gæða leiði til lögbrota og óhæfuverka. Það er þetta síð- asta viðhorf sem tengist meir og ákveðn- ar þeim hugmyndum um breytingu lýð- ræðisins sem áður er vikið að og gerir allt aðrar og meiri kröfur fyrir hönd alls almennings en áður hafa verið settar fram. Mikil kvika og háværar kröfur gera þennan þátt félags- og menningarlífsins harla áberandi, enda á hans vegum sett fram fullyrðingin að stjórnskipun og réttarfar Vesturlanda hafi allt til þessa dags grundvallazt á meira og minna dul- búnu ofbeldi, sem næsta auðvelt sé að kalla fram í sinni nöktustu og óhrjáleg- ustu mynd. Hin minnstu frávik í skoð- unum eða hegðun leiði sjálfar forsend- urnar og grundvöllinn í ljós og sýni fram á svo ekki verði um villzt, að þar skipi valdbeiting og ofbeldi fyrirferðarmikið rúm. Hafa þessar fullyrðingar leitt til endurmats á menningu hins hvíta manns og framlagi. Heimilið Samfélagið, staða kynjanna svo og stjórnskipunin lúta öll að hinum stóru heildum. Að þessu leyti eiga þau þrjú atriði sammerkt, enda mála sannast að þau grípa með ýmsu móti hvert inn í annað og leiða af sér heildarhugmyndir, sem taka til þeirra allra nokkuð jöfnum höndum. Þessu er að mörgu leyti ólíkt farið um hið fjórða atriði, sem eðlilegt er að taka til meðferðar og átta sig nokkuð á, áður en farið er að leiða hug- ann að félagslegum og menningarlegum viðhorfum, sem haft geta áhrif á stöðu samvinnusamtakanna á íslandi árið 2000. Þetta atriði er staða heimilisins og hver breyting er fyrirsjáanleg á aðild þess og eðli á næstu áratugum. — Orðið „heimili" mun að öllum líkindum þýða „hinn litli heimur" og gefur það hugtak nokkuð til kynna hversu á þessa sérstæðu stofnun hefur verið litið. Heimili var stofnun, sem gerði mönnum mögulegt að tengjast hin- um stóra heimi, mannlífinu sjálfu, og átta sig á tilveru sinni, hæfileikum og áhuga- efnum. Heimili var verndarreitur fjöl- skyldunnar, og þar fékk fjölskylduhug- myndin inntak sitt og ytri búning. Það er ljóst, að heimili og fjölskylda sem sjálfstæðar einingar í samfélaginu hafa á liðnum öldum verið með ýmsu móti. Er ekki tilgangurinn hér að gera því efni nein teljandi skil. Á hitt er sjálfsagt að benda, að frá síðustu aldamótum hafa fyrst og fremst þrjár fjölskyldu- og heim- ilishugmyndir mótað sögu og samfélag Vesturlanda eða eru að móta hana. — Um aldamót voru heimili Vesturlanda yfir- leitt mjög stór. Þetta átti þó einkum og sér í lagi við um heimili sveitanna. í þorpum, bæjum og borgum var þá þegar önnur þróun að hefjast. Hin stóru heim- ili Vesturlanda voru samsett á ýmsan hátt. Þó mun það ævinlega hafa verið svo, að ætt skipaði öndvegi og þar mynd- aði ættarfjölskylda kjarna heimilisins. Margar kynslóðir sömu ættar voru á heimilinu; mun þannig ekki óalgengt að allt að fjórum kynslóðum hafi slegið þar saman, þótt algengara kunni að hafa ver- ið að kynslóðirnar væru þrjár: börn, for- eldrar, afi og amma. Auk ættmenna var svo á hinum stóru heimilum margt vinnuhjúa, og gat þar einnig verið um aðrar fjölskyldur að ræða, gift fólk með börn sín. Þannig voru oft nokkrar fjöl- skyldur innan ramma hinna stóru heim- ila, sem algeng voru á Vesturlöndum um aldamót. — En eftir því sem fólkinu fækkaði í sveitunum og byggð óx að sama skapi í borgum, þá breyttist heimilisskip- anin. Heimilin minnkuðu. Fjölskyldu- kjarninn varð minni en áður. Það varð sjaldgæfara að fleiri kynslóðir byggju saman, og til undantekninga heyrði, að fleiri fjölskyldur væru saman um heim- ili. Algengast var að börn og foreldrar mynduðu i senn fjölskyldu og heimili. Þegar svo þar við bættist að barnafjöld- inn minnkaði og það gerðist æ tíðara að foreldrar óskuðu aðeins eftir að eignast eitt eða tvö börn, var ljóst að um ger- breytingu heimila og fjölskyldna var að ræða. Þetta nýja fjölskylduform breytti einnig uppeldisaðstöðu barnanna, gerði uppeldið i senn einhæfara og fátæklegra. Umönnun og aðhlynning, sem verið hafði í höndum eldri kynslóðanna, var nú lögð foreldrum á herðar, en þeir voru engu síður en áður hafði verið með hugann fullan af eigin áhugaefnum, enda flestir önnum kafnir við að koma fótum undir sig og treysta stöðu sína í samfélagi, sem lagði megináherzlu á samkeppni og ýtti miskunnarlaust undir metnað og yfir- burðalöngun. Það heimilisform sem þann- ig hafði skapazt var því í eðli sinu mjög veikt og viðkvæmt. Þegar svo hitt bættist við, að staða kynjanna tók að raskast og aðild konunnar í samfélaginu að aukast, konan tók að sækja meir og meir út á vinnumarkaðinn, var ljóst að festa heim- ilisins eins og það hafði áður verið var með öllu horfin. Hinar örsmáu fjölskyldu- einingar, foreldrar og börn, gátu ekki við þær aðstæður, sem fyrir hendi voru, myndað heimili, sem rækt gæti hlutverk 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.