Samvinnan - 01.08.1971, Blaðsíða 37

Samvinnan - 01.08.1971, Blaðsíða 37
Alexis Gomte de Tocqueville. koma við sögu. Þá byltingu atvinnulifs- ins, sem nú er að færast i algleyming og mun á næstu áratugum breyta samfélags- skipaninni, nefna sumir iðnbyltinguna síðari, tölvubyltinguna eða stjórnunar- byltinguna. Hin síðari iðnbylting gerir kleift að endurskipuleggja atvinnulífið, breyta framleiðsluháttunum og létta af mönnunum oki tilbreytingarlauss erfiðis, bæði líkamlegs og andlegs. Við þetta auk- ast að sama skapi tækifæri manna til sjálfstjáningar og tóm gefst til að leggja meiri rækt við sköpunarhæfileika. Fyrir þvi hafa nafngiftir hins nýja samfélags- forms, sem i vændum er, orðið nokkuð mismunandi. Sumir kalla það stjórnun- arsamfélagið, aðrir menntunarsamfélag- ið, og enn eru þeir til, sem tala um menningarsamfélagið. En öllum er ljóst, að hið nýja samfélagsform hlýtur að hafa i för með sér örlagaríkar breytingar bæði félagslegar og menningarlegar. Staða kynjanna Annað, sem vekja ber sérstaka athygli Carl Gustav Jung. á, snertir meir hina innri skipan mann- félagsins, þótt áhrifanna muni einnig gæta í því ytra. Þetta er staða kynjanna og snertir þannig verkaskiptinguna i samfélaginu, valdahlutföll svo og félags- lega stefnumótun hverju nafni sem nefn- ist. Það er næsta útbreidd skoðun meðal félagsfræðinga að staða kynjanna hafi tekið verulegum breytingum frá því að menn hófu feril sinn sem vitibornar ver- ur, svo sem og hitt er augljóst að staða þeirra er harla mismunandi í þeim sam- félögum, sem nú eru við lýði. — Sérstæð- ar og harla áhrifamiklar hafa orðið þær fullyrðingar svissneska lögfræðingsins og sagnfræðingsins Johanns Jakobs Bachofens, er hann kom fram með um miðja 19. öldina, að upphafleg staða kynj- anna hafi verið sú, að konan hafi gegnt forystuhlutverki. Ráð samfélagsins hafi þá í verulegum atriðum verið í hennar hendi. Upprunaleg stjórnskipan samfé- lagsins hafi því verið sú sem kölluð er mæðraveldi, matriarkat. Um aldaraðir hafi sú skipan haldizt og megi sjá þessa glögg merki í fornum sögnum og fornum átrúnaði ekki síður, þar sem hlutur gyðj- anna var mun meiri en hlutur guðanna, kvenveran naut forréttinda og áréttaði yfirburði sína með margvíslegu móti. Telur Bachofen að greina megi þrjú ólik tímaskeið i sögu mannkynsins og snerti þau öll tilfinningalífið og þá alveg sérstakiega ástalífið. Fyrst telur hann, að verið hafi skeið hinna frjálsu og ó- heftu ásta, þegar mestu máli hafi skipt að tryggja timgun og stöðugan vöxt kyn- stofnsins. — Það skeið nefnist ástmeyja- skeiðið, heteru-tímabilið. Ákveðinn hópur eða stétt kvenna gerði ástalifið að sér- sviði sínu, jafnhliða hófst örugg þróun að treysta grundvöll heimilislifs og upp- eldis. — Næst kom sjálft skeið mæðra- veldisins, hjúskaparskeiðið, þegar festa og tryggð urðu meginforsendur og mest upp úr því lagt að láta þá eiginleika njóta sín. — En staða kynjanna átti eftir að breytast í aldanna rás. Konan missti forystu sína og forréttindi. í stað mæðraveldis, matriarkats, upp- hófst feðraveldi, patriarkat, hið þriðja timaskeið mannkynsins. Það er sú skipan mála, sem bezt er þekkt, enda hefur feðraveldið verið stjórnskipan þess tima, sem greinilegastar og öruggastar sagna- heimildir eru til um. Á þeim langa tíma hefur einnig verið um aðgreind skeið að ræða, þótt ekki muni frekar frá þeim greint hér. Á hitt má benda, að feðraveld- ið hefur lagt minni áherzlu á mótun og þróun tilfinningalífsins, en þeim mun meiri á sérstöðu og yfirburði hins vitræna svo og ágæti krafta og valds. — Nú bendir margt til þess að dagar feðraveldisins eins og það hefur verið á umliðnum öldum séu á enda og nýskipan mála harla nærri. — Breyting á stöðu konunnar virðist óhjá- kvæmileg, enda þegar orðin að veruleika i veigamiklum atriðum. Sú breyting hefur í för með sér endurmat á mörgum sviðum og ekkert liklegra en það marki ný og sérstæð tímamót. Það er ljóst, að breyt- ingarnar muni ekki aðeins ná til valda- hlutfallanna í samfélaginu með jafnrétti kvennanna viðurkenndu og tryggðu. Breytingarnar munu einnig ná til hugs- unarháttar og tilfinningalífs með mikilli kviku og umbrotum. í því sambandi mætti vekja athygli á hugmyndum austurrísk- ungverska sálkönnuðarins Wilhelms Reichs, sem hélt því fram, að vitundarlíf manna byggi yfir þrem mismunandi lög- um, er ættu upphaf sitt í þróun mæðra- og feðraveldanna svo og átökum, er af umskiptunum frá einu til annars hefur leitt. Efsta lag vitundarlífsins telur Reich vera sátta- og samtengingarlag, er gegnir því hlutverki að gera líf manna þolan- legt, sætta við þá skipan mála sem orðið hefur i aldanna rás. Það vitundarlag er því í eðli sínu næsta viðkvæmt. Þarf lítið til að raska jafnvægi þess og valda alvar- legum truflunum, sem haft geta hinar ör- lagaríkustu afleiðingar í för með sér. Fari svo, að hið efsta sátta- og samtengingar- lag vitundarlífsins gangi úr skorðum, kemur hið næsta lag í ljós, umturnunar- lagið, sem varð til þegar feðraveldinu var komið á með mikilli valdbeitingu og miklu offorsi. Umturnunarlagið er hið ömurlegasta með óteljandi sálflækjum og tilfinningahnútum, og er hlutskipti þess manns dapurlegt, sem verður að þola nauðir þess. Það var að áliti Reichs þetta lag, sem Freud uppgötvaði er hann hóf sálkönnun sina, og nefndi hann lagið und- irvitund eða dulvitund. Hins vegar náði hann ekki að komast niður til þriðja og neðsta lags vitundarlífsins. Það lag ein- kennist af miklu samræmi, mikilli fagn- aðarvitund og unaðartilfinningu. Þetta neðsta lag mótaðist á tíma mæðraveldis- ins og er heillarikasti og ágætasti arfur mannkynsins. Takist að ná tengslum við þá uppsprettulind fagnaðar og lífsham- ingju verður líf mannsins annað, fegurra og stórbrotnara frá sálfræðilegu sjónar- miði séð en það er nú. — Skoðanir og kenningar Wilhelms Reichs hafa á allra síðustu árunum verið meir í sviðsljósinu en áður, og þeirra gætir með ýmsu móti í félagslegum og menningarlegum viðhorf- um á okkar tímum. — Það er ekki aðeins hin svokallaða kynlífsbylting, sem mótazt hefur fyrir áhrif frá Reich, bein eða óbein. Hið sama má að vissu leyti segja um rauðsokkahreyfinguna, sem tekið hefur stöðu kynjanna til algers end- urmats með það fyrir augum að koma á nýrri og eðlilegri skipan en nú er. Stjórnarfarið Hið þriðja sem miklu veldur um fé- lagslegar og menningarlegar breytingar og taka ber fullt tillit til er sjálft stjórn- arfarið, en það mótast í nánum tengslum við samfélagsformið, sem áður hefur ver- ið gerð grein fyrir, svo og stöðu kynjanna, sem ennfremur hefur verið vikið að. Stjórnarformið tekur samt öllu öðru fremur til þáttar valdsins, dreifingar þess og sundurgreiningar. Stjórnarfarslega er venja að tala um þrenns konar vald: lög- gjafarvald, dómsvald og framk ,æmda- vald. Á allra síðustu árum hefur sú hug- mynd skotið upp kollinum að til þurfi að koma fjórða grein valdsins, skipulagn- ingarvaldið, sem tryggi meiri heildaryfir- sýn í áætlunum og framtíðarmótun. — 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.