Samvinnan - 01.08.1971, Blaðsíða 4
hnjóða í helga dóma (sbr. 2.
hefti, bls. 52 og 53); verður
þetta bæði klúrt og kjánalegt.
Það eru áreiðanlega takmörk
fyrir því, hvað boðlegt er að
gera að „leikföngum' í blek-
iðjunni.
Eitt af því, sem nú er hvað
efst á baugi í heiminum, eru
frásagnir af mengun. Og þessi
mengun er ekki einungis á ferli
umhverfis verksmiðjur og bíla.
Og þó af öðrum toga sé spunn-
in, á hún líka til að læðast inn
i sálir manna og bókmenntir.
Og samkvæmt því, sem ég hef
áður sagt, finnst mér Sam-
vinnan ekki ætíð hafa nógu
heilnæmt loft í kringum sig.
Ef til vill þykir þetta benda
til skorts á frjálsri hugsun.
Það má vel vera. En hins vil ég
geta, að ég reyni alltaf að tína
arfann frá blómunum, þegar
hann sækir að.
Með kveðju og heillaóskum
til Samvinnunnar.
Björn Jakobsson.
Iðunnar
skór
Reykjavík, 14. ágúst 1971
Hr ritstjóri.
í þriðja tölublaði Samvinn-
unnar í ár er bréf frá Hólm-
steini Helgasyni á Raufarhöfn.
Raunar er hann elskulegur afi
minn, en látum það einu gilda.
Mér þætti vænt um að mega
svara honum i blaði þínu, og
þá aðeins i sambandi við um-
mæli hans um atómljóð svo-
kölluð. Þetta er að sjálfsögðu
ekki persónulegt; fremur „kyn-
slóðalegt":
Kæri afi, umsögn þín um nú-
tímaljóðlist hefst svo: „Eitt er
það enn sem alltof oft hefir
sézt á síðum Samvinnunnar,
og það er það sem kallast
„ljóð“, en eru engin ljóð á ís-
lenzkan mælikvarða . . .“ Ég
leyfi mér að taka þessi orð þín
sem umsögn um öll atómljóð,
ekki aðeins þau, sem birtast á
síðum Samvinnunnar.
Hvað eru atómljóð?
Eru öll nútímaljóð atómljóð?
Ef svo er, mun aðkallandi að
flokka þau betur. Þó tæpast geti
það kallazt heilbrigt að draga
skáld í dilka eins og hverja
aðra sauði, eftir verkum þeirra.
Það er kannski ótrúlegt fyrir
þá sem ekki hafa kynnt sér
nútímaljóð, að íslenzk skáld
hafi aldrei verið sundurleitari
og ólíkari hvert öðru heldur en
einmitt nú. Þó er þetta stað-
reynd.
Eða sérðu engan mun á með-
Q1
CO
C
cn
Cæða-
pröf
Áður en CUDO-rúðan útskrifast frá verksmiðjunni
gengur hún undir gæðapróf.
Er samsetning glerjanna þétt?
Þolir hún snögga hitabreytingu án þess að springa?
(Falleinkunn: undir 30° á klst.).
Fullnægir hún ströngustu kröfum verkfræðinga
CUDO-eftirlitsins í Þýzkalandi?
Ef svo er ekki, hjálpar hvorki bezta véldregið gler,
tvöföld einangrun (gegn kulda og hávaða) eða
erlend tækni.
CUDO-rúðan gengur undir gæðapróf til þess að geta
staðizt íslenzka veðráttu.
TVÖFALT CUDOGLER; YÐAR ÖRYGGI.
CUDO
CUDOGLER HF SKÚLAGÖTU 26,SlMI 20650
4