Samvinnan - 01.08.1971, Page 16

Samvinnan - 01.08.1971, Page 16
Jón Aðalsteinn Jónsson: íslenzk hreintungustefna orðið fram yfir nýgervinga sem af einhverjum ástæðum féllu ekki í smekk manna. Niðurstöður Við skulum nú að lokum reyna að draga saman í stuttu máli nokkur meginatriði. Víkj- um fyrst að málfræðinni. Þar er brýnust nauðsyn að fá kenn- urum í hendur betri bækur handa öllum skólastigum. Til- gangslaust er að bíða þess að einhverjir menn rísi upp og semji þvílíkar bækur ótilkvadd- ir. Þar þarf fræðslumálastjórn- in og samtök kennara að skipu- leggja starfið. Æskilegast væri að þar væru að verki sérfræð- ingar með næga þekkingu á nútímamálfræði og reyndir kennarar. Þessum mönnum verður að skapa starfsaðstöðu til að vinna að samningu nýrra kennslubóka samkvæmt áætl- un sem gerð sé helzt fyrir öll skólastigin svo að samræmi fá- ist í kennsluna fram að stúd- entsprófi. Án nýrra kennslu- bóka er ekki von til að veruleg breyting geti orðið á málfræði- kennslu í skólunum. í annan stað þarf athugunar við hvort ekki sé jafnbrýn nauðsyn að breyta um viðhorf til kennslu í málnotkun og túlkun á rituðu máli. Þar er ég hræddur um að allt of lítil áherzla hafi verið á það lögð í skólum landsins að gera nem- endum grein fyrir mismunandi tegundum máls, gera þeim ljóst að það sem getur verið rétt og skynsamlegt í einu samhengi, einum stíl, er ótækt á öðrum stað. Reglustrekkingur sem sker öll fyrirbæri málsins nið- ur við sama trog getur aldrei leyst neinn vanda; hann getur hins vegar leitt út í hreinar fjarstæður, komið mönnum til að berja höfðinu við steininn og afneita málbreytingum sem hafa verið lifandi mál öldum saman. Auðvelt ætti að vera að benda nemendum á fjölbreyti- leik málsins bæði út frá bók- menntum og frá lifandi máli. Einfalt er að sýna fram á stað- bundin sérkenni í framburði og staðbundnar merkingar ýmsra algengra orða. Sé nemendum samtímis gert ljóst að í þessum tilvikum eru afbrigðin jafn- rétthá, eitt er ekki réttara en annað, þó að eitt kunni að vera upprunalegra, þá er mikið unn- ið. Sama sjónarmiði má þá beita við ýmsar málbreytingar sem eru ekki viðurkenndar í eldra ritmáli: þær skulu ekki fordæmdar skilyrðislaust, þeg- ar þær eru orðnar algengar i mæltu máli. Engin ástæða er til að banna tvímyndir í mörg- um tilvikum; þær geta sem bezt átt heima hver i sínum stíl, sínu samhengi. Með þessu er ég engan veginn að mæla þvi bót að alls konar ambögur séu látnar afskiptalausar, síð- ur en svo. En menn verða að vega og meta hvað séu mál- spjöll og hvað ekki. Menn geta skrifað þrautleiðinlegan og klúðurslegan stíl þó að þar finnist hvorki nein málfræðileg villa samkvæmt skólareglum né nokkur frávik frá lögboðinni stafsetningu. Hinsvegar er til að menn geti skrifað ágætlega þó að þeir kunni hvorki staf- setningu né málfræði. Reglur eru að vísu þarflegar til að tryggja samræmi í bókmáli og auðvelda skilning, en þær eru engin trygging fyrir góðum stíl, og séu menn hræddir við þær, þori ekki að skrifa eins og þeim er eðlilegast, þá eru þær til beinnar bölvunar. Meginsjónarmið mitt er það að menn eigi að temja sér hóf- semi í þessum málum. Ég trúi hvorki á stranga hreintungu- stefnu né algjört aðhaldsleysi. En grundvöllur allrar afstöðu til málsins og málbreytinga verður að vera staðgóð þekking á þróun málsins; þar duga nú- verandi kennslubækur skammt. Sé ráðizt á svonefndar málvill- ur, verða menn að vita hvers eðlis þær eru áður en lagt er út í bardagann, annars er hætt við að menn lendi í viðureign við vindmyllur. Reglustrekk- ingur og einstrengingsháttur leiðir til þess eins að breikka bilið milli talmáls og ritmáls, og felur auk þess í sér þann háska að menn fari að skrifa steindautt og sviplaust mál af tómri hræðslu við að brjóta einhverjar reglur, raunveru- legar eða ímyndaðar. Menn skyldu aldrei gleyma því að málfræðireglur skólabóka eru leiddar af málinu eins og það birtist í bókum, þær eru aðeins lýsing á ákveðnu málkerfi, en skapa hvorki mál né stíl. Góður stíll verður ekki til nema hann taki mið af málvenju samtíðar sinnar, og það eins þótt hann sé í órjúfanlegum tengslum við eldri bókmenntir. Einmitt þetta virðist mér sé kjarni málsins: að skóla- kennsla i íslenzkri tungu geri þessum sjónarmiðum jafnhátt undir höfði: samhenginu við eldri málsstig eins og þau birt- ast i bókmenntum okkar frá upphafi, og lifrænum tengsl- um við samtíðarmál eins og það er talað af alþýðu manna. Jakob Benediktsson. Þegar ritstjóri Samvinnunn- ar fór þess á leit við mig, að ég ritaði í þetta hefti um hina svo- nefndu hreintungustefnu móð- urmálsins, mun hann ekki hafa gert það af því, að ég geti öðr- um fremur talizt sérstakur fulltrúi þeirrar stefnu. Ég hygg, að ástæðan sé sú, að á siðast- liðnum vetri ræddi ég nokkuð um þetta mál — að gefnu til- efni — í þættinum íslenzkt mál í Ríkisútvarpinu. Á síðari árum hefur sem sé bryddað á þeirri skoðun, að munur á tal- máli og ritmáli sé að verða of mikill í íslenzku og það jafn- vel svo, að sumir þori tæplega að tjá sig á prenti. Hefur því og verið haldið fram, að hér eigi ekki lítinn þátt í einstreng- ingsleg móðurmálskennsla í skólum landsins. Enda þótt ég hafi vissulega ekki ætlað mér að rita um þessa hluti í blöð, vil ég ekki skorast undan eindregnum til- mælum ritstjóra blaðsins, enda skilst mér, að i þessu hefti birt- ist greinar um íslenzkt mál, þar sem margs konar sjónarmið munu koma fram. Þeim mun síður vil ég láta þetta tækifæri ónotað, þar sem ýmsir „nýj- ungamenn" reyna að læða því inn meðal almennings, að þessi hreintungustefna sé að mestu komin fram á síðustu áratug- um og það fyrir tilstuðlan mis- viturra og oft þröngsýnna móð- urmálskennara. Þegar þetta er haft i huga, er einsætt að íhuga, hver var af- staða fyrri tíma manna til mál- verndar og andæfingar gegn erlendum tökuorðum. Hér vil ég benda lesendum á grein eft- ir Árna Böðvarsson cand. mag., sem birtist í ritinu Þættir um íslenzkt mál og kom út 1964. Verður hér stuðzt við ýmislegt úr þessari grein Árna, sem hann nefnir: Viðhorf íslend- inga til móðurmálsins fyrr og síðar. Eins og alþjóð veit, hefur samband milli fornmáls og ný- máls íslendinga aldrei rofnað með öllu, enda þótt bæði fram- burður og orðaforði hafi breytzt nokkuð í tímans rás. Þetta lítt rofna samhengi hefur mjög stuðlað að varðveizlu íslenzks þjóðernis. Hin sérstæða ís- lenzka bókmenning, sem hófst á 11. öld, veldur hér miklu um. Ekki eru heimildir fjölskrúð- ugar um viðhorf íslendinga til tungu sinnar fram að siðskipt- um, en þá urðu miklar breyt- ingar í íslenzku þjóðlífi, bæði í andlegum og veraldlegum efnum. Prentverk flyzt inn í landið um þessar mundir og farið er að prenta bækur á ís- lenzku. Þegar hér er komið, er orð- inn verulegur munur á máli íslendinga og frænda þeirra, Norðmanna og Dana, enda höfðu hinir síðarnefndu fjar- lægzt mjög sameiginlega tungu með fjölda tökuorða úr erlend- um málum, einkum úr þýzku. Aftur á móti gerðu órofatengsl íslendinga við fornmenntir sín- ar og eins fjarlægð frá öðrum þjóðum það ógerlegt fyrir hina dönsku herraþjóð að láta ís- lendinga fá biblíu og annað guðsorð á dönsku máli, eins og þeir gátu gert við Norðmenn. Hér skildi milli feigs og ófeigs, enda týndu frændur okkar í Noregi sínu gamla máli alger- lega á næstu öldum, nema að því leyti sem það lifði í af- skekktum mállýzkum og þá smám saman ærið blandað. ís- lendingar fengu aftur Nýja testamentið á íslenzku þegar 1540 og biblíuna 1584. Hinn lúterski rétttrúnaður reyndi strax í upphafi að út- rýma kaþólskum helgikvæðum. Af því leiddi, að fyrstu bisk- upar í lúterskum sið þýddu sálma á móðurmál okkar og þá auðvitað úr því máli, sem rétt- trúnaðurinn kom, þ. e. þýzku. Alkunna er, að þessar sálma- þýðingar eru einn hinn versti leirburður, sem komið hefur út á íslenzku, enda ofbauð mönn- um svo, að andófs gætti þegar í stað. Ekki er rúm til að fjölyrða um þetta í þessari grein, en þó verður ekki komizt hjá að minnast á menn eins og Guð- brand biskup Þorláksson og Arngrím Jónsson lærða. Guð- brandur biskup varð umsvifa- mestur í íslenzku menningarlífi fyrir og eftir 1600, enda stýrði hann einu prentsmiðju lands- ins. Má fara nærri um það, hversu slíkur maður gat áorkað um meðferð tungunnar. Varð það íslenzkunni til happs, að hann hóf upp merki hinnar fornu tungu og freistaði þess 16

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.