Samvinnan - 01.08.1971, Síða 68
SAMVINNUFÉLÖG OG LÝÐRÆDI
menn
KOSNIR
AOALFUNDUR SAMBANDSINS
mim
Framkvæmdastjorn og forstjór
Loggilt. endursk
mammrn
Endurskoöendur
Stjorn Sambandsins
Myndin sýnir skipulag Sambands-
ins í einföldum, glöggum dráttum.
Kjarni þessa skipulags er lýðræðis-
legur kosningaréttur og almenn fé-
lagsréttindi hinna geysimörgu ein-
staklinga um allt land sem mynda
kaupfélögin og eiga þau.
Æðsta vald í málefnum Samþands-
ins hefur árlegur fulltrúafundur,
aðalfundur. Hann sitja fulltrúar frá
öllum kaupfélögum innan Sam-
bandsins, sem eru kjörnir heima
fyrir á aðalfundum hvers félags fyr-
ir sig.
★
Á aðalfundi flytja stjórnarformaður
og forstjóri ýtarlegar skýrslur um
hag og rekstur Sambandsins, auk
þess er prentuð ársskýrsla lögð
fram. Umræður eru frjálsar. og
hverjum manni heimil gagnrýni.
Sambandið starfar fyrir opnum tjöld-
um, og skýrslur þess eru opinberar
almenningi utan kaupfélaganna sem
innan þeirra.
★
Skipulag Sambandsins er eftirmynd
af lýðræðisfyrirkomulagi hinna ein-
stöku kaupfélaga, enda er Sam-
bandið ekki annað en umboðsfyr-
irtæki kaupfélaganna og eign þeirra.
Hinn almenni félagsmaður, sem
myndar kaupfélögin, er sá, sem
endanlegt vald hefur í félögunum
og Sambandinu gegnum fulltrúa
sína á aðalfundum og kjörna starfs-
Færið yður í nyt lýðræðis- og jafn-
réttisskipulag samvinnufélaga og
Sambandsins. Sem félagi í þeim
eigið þér fyllsta kost á að tryggja
yðar eigin hag, því að þér eruð um
leið eigandi þeirra.
Kjörnir fulltruar
frá kaupfélögum
SKIPULAG SAMBANDSINS
D □□
Samband íslenzkra samvinnufélaga
fmmnm
umnmn
Rúmlega 30 þús. landsmanna
eiga fulltrúa á aóalfundi.