Samvinnan - 01.10.1971, Side 61
Hrærið eggjarauður, mjöl og mjólk saman í potti og hitið, hrærið vel
í á meðan. Látið rifinn ost og smjör út í þegar suðan kemur upp. Kælið.
Fletjið deigið út og klæðið smámót (linsumót) með því. Setjið 1 tsk af
kremi í hvert mót. Látið deiglok yfir kremið og festið samskeytin vel.
Bakið við 200 gráðu hita í um 12 mín.
OSTAKEX MEÐ KREMI
Fletjið deigið út um 2 mm þykkt og mótið (með kexmóti) í kringlóttar
meðalstórar kökur, sem eru bakaðar við um 200 gráðu hita í um 8 mín.
Kælt.
Kr em :
1 góðostur
2 msk rjómi
1 msk tómatsósa (tómatkraftur)
paprika
Hrærið ostinn vel með rjóma, tómatsósu og papriku. Leggið kexkökurn-
ar tvær og tvær 'saman með kreminu og skreytið með rifnum osti.
KÖKUR
Súkkulaðikaka
200 g smjör eða smjörlíki
% dl sykur
50 g súkkulaði
5 dl hveiti
Súkkulaðikrem
2 msk hveiti
% dl sykur
3 eggjarauður
50 g rifið súkkulaði
2lÆ dl mjólk
Vanilludropar, konjak eða sherry
1—2 dl rjómi (þeyttur)
Bananakryddkaka
150 g smjörlíki
250 g sykur eða púðursykur
2 egg
250 g hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk salt
1 tsk engifer
1 tsk negull
2 tsk kanill
2 dl rúsínur
2 meðalstórir bananar
Hrærið smjörlíkið lint og síðan vel með sykrinum og eggjunum. Sigtið
hveiti, krydd og lyftiduft. Blandið því síðan varlega saman við ásamt
rúsínunum og mörðum banönum. Smyrjið mótið og stráið í það brauö-
mylsnu. Bakið kökuna við um 200 gráðu hita í 50—60 mín. Látið kökuna
kólna í mótinu.
SUNNUDAGSMATSEÐILL (fyrir 4)
Steiktir rifjabitar m/bökuðum kartöflum
2 rifjasíður
Kryddlögur:
1 dl matarolía
1 dl vatn, 3 súputeningar
safi úr tveim sítrónum
2— 3 tsk salt
%—1 tsk heill pipar (malaður)
1 tsk salvie eða/og merian
3— 4 tsk ensk sósa
12 meðalstórar kartöflur
Látið saga síðurnar niður í meðalstóra bita og leggið þá í kryddlöginn
í um % klst. Kartöflurnar eru burstaðar úr köldu vatni og flysjaðar ef
vill, síðan er skorið í þær með jöfnu millibili. Raðað í smurða ofnskúffu.
Rifbitunum raðað á ristina sem síðan er sett yfir skúffuna. Steikt við
um 200 gráðu hita í um 50 mín og penslað öðru hvoru með því sem eftir
er af kryddleginum.
Gott er að glóðarsteikja rifbitana á sama hátt, en það tekur ekki nema
nokkrar mínútur á hvorri hlið. Kartöflurnar eru þá glóðarsteiktar í
sneiðum, þær eru fyrst penslaðar með olíu, því næst steiktar um 5 mín
og síðast saltaðar.
Borið fram með hráu grænmetissalati.
Hrærið smjörið lint og síðan með sykrinum. Bætið bræddu súkkulaðinu
í smátt og smátt. Hrærið sigtuðu hveitinu saman við og skiptið deiginu
í fjóra hluta. Smyrjið smjörpappír og teiknið á hann hringi sem eru
20 sm í þvermál. Fletjið síðan deigið út á papppírnum í kringlóttar
kökur. Hafið smjörpappír yfir deiginu meðan þið fletjið það út. Takið
pappírinn ofan af og bakið síðan við um 190 gráðu hita í 15 mín. Kælið
botnana áður en þið takið pappírinn af.
Kremið: Hrærið hveiti, sykur, rifið súkkulaði og mjólk saman í potti.
Hitið að suðu og hrærið stöðugt í á meðan. Kælið kremið og hrærið í
öðru hverju. Blandið þeyttum rjóma og dropum eða víni saman við.
Leggið botnana saman með kreminu og smyrjið kremi ofan á. Skreytið
með niðursoðnum aprikósum eða mandarínum og hnetukjörnum eða
söxuðum möndlum.
Franskur
súkkulaöibúðungur
100 g suðusúkkulaði
2 tsk neskaffi
8 blöð matarlím
4 dl mjólk
70 g sykur
3 egg
% tsk vanilla
3 dl rjómi
Bræðið súkkulaðið við hægan hita í vatnsbaði. Hrærið kaffiduftinu og
vanillunni saman við. Leggið matarlímið í bleyti og bræðið það í
mjólkinni, sem áður hefur verið hituð að suðu. Hrærið mjólkinni síðan
saman við súkkulaðið. Þeytið eggjarauður og sykur vel saman, blandið
súkkulaðimjólkinni saman við og kælið. Þegar það fer að þykkna er
þeyttum hvítum og þeyttum rjóma blandað saman við.
Ltáið í skolað mót og kælt. Þegar búðingurinn er stífur, er honum
hvolft á fat og skreyttur með þeyttum rjóma ef vill.
61