Samvinnan - 01.04.1984, Síða 8
Marka þarf ábyrga
og öfgalausa stefnu
um framtíð landbún
aðar á Islandi
Valur
Arnþórsson
kaupfélagsstjóri
og stjórnar-
formaður
Sambandsins
svarar
spurningum
Samvinnunnar
• Hreinustu öfugmæli
Segja má, að vorið sé mesti annatími
samvinnumanna. Þá eru deildafundir
og síðan aðalfundir kaupfélaga haldnir
um land allt og loks er aðalfundur
Sambandsins um miðjan júni. Af því
tilefni vaknar spurningin: Er lýðrœðið
innan samvinnuhreyfingarinnar nógu
virkt?
Ég svara þeirri spurningu hiklaust ját-
andi. Og ég er sannfærður um að það
svar er rétt, ekki síst á vorin, þegar ég
hef setið hvern fundinn á fætur öðrum,
þar sem samvinnumenn hafa fjöl-
mennt til að reifa mikilvægustu mál
líðandi stundar og ráða ráðum sínum.
í mínum eyrum hljómar sú fullyrðing
að lýðræðið innan samvinnuhreyfing-
arinnar sé óvirkt eins og hreinustu
öfugmæli, og ég hygg að sama gildi um
aðra samvinnumenn sem þekkja sam-
vinnustarfið af eigin raun og vita
hvernig hreyfingin er uppbyggð.
Kaupfélögin, sem eru rúmlega 40
talsins, eru algjörlega sjálfstæð félög
fólksins í hverju byggðarlagi eða hér-
aði. Þau eiga Samband íslenskra sam-
vinnufélaga sameiginlega og kjósa
fulltrúana á aðalfund þess, en æðsta
vald í málefnum Sambandsins er í
höndum hans.
Við íslendingar búum eins og kunn-
ugt er við blandað hagkerfi, þar sem
saman fer ríkisrekstur í verulegum
mæli, ýmiss konar einkarekstur í formi
hlutafélaga og sameignarfélaga - og
síðast en ekki síst samvinnufélög.
Lýðræðisskipulag er íslendingum í
blóð borið frá fornu fari, og það má
fullyrða að samvinnuskipulagið falli
lang best að lýðræðishugmyndum
íslendinga af þeim rekstursformum
sem við lýði eru í landinu.
Ríkisreksturinn er í raun ákaflega
ólýðræðislegur og fjarri fólkinu.
í einkarekstri og hlutafélögum
ræður fjármagnið ferðinni og
almenningur hefur engin bein áhrif á
stefnumótun og starfsaðferðir þessara
rekstursforma.
Samvinnufélögin eru hins vegar
Aðalfundur KKA var haldinn í Sam-
komuhúsinu á Akureyri dagana 5. og
6. maí sl„ og eins og emlramer var
fundarsókn góð eða 24.f fullfrúar af
257, sem réll átlu til fundarsetu.
y v , ttlii f -n N 'PiÍT * J wk
r.J m IL
8