Samvinnan - 01.04.1984, Blaðsíða 10

Samvinnan - 01.04.1984, Blaðsíða 10
Valur Arnþórsson svarar spurningum Samvinnunnar Skipulag Sambandsins hefur ekki þróast markvisst síðustu ár í samræmi við undangengnar breytingar á rekstrinum. ábendingar og tillögur. Mér er þessi ályktun efst í huga á þessari stundu varðandi landbúnaðarvandann, og þess vegna langar mig til að birta hana hér orðrétta: „Meðal þróaðra þjóða er hvarvetna lögð höfuðáhersla á öfluga innlenda matvælaframleiðslu sem eina af forsendum sjálfstæðis og öryggis hvers lands. Nágrannaþjóðir okkar hafa talið rétt að vernda landbúnað sinn með margvíslegum aðgerðum og greiða niður búvöruverð til neytenda. Ekki getur talist raunhæft að íslendingar skeri sig úr hvað þetta snertir. Því telur fundurinn að sú umræða um landbúnaðarmál, sem að undan- förnu hefur borið hæst í fjölmiðlum og á hinu háa Alþingi sé á villigötum. Þessi umræða hefur einkennst af yfir- boðum um það hvernig skera má land- búnaðarframleiðsluna sem mest niður á sem skemmstum tíma og órök- studdum fullyrðingum um háan vinnslu- og dreifingarkostnð. í þessa umræðu skortir veigamikil rök til þess að hægt sé að marka þá stefnu sem landi og þjóð er fyrir bestu. Ekki má líta á landbúnaðinn sem einkamál bænda og vinnslustöðva þeirra því augljóst er að skyndilegur samdráttur í búvöruframleiðslu nú myndi valda verulegu atvinnuleysi og því koma enn þyngra niður á þéttbýli en dreifbýli. Til að meta þessi áhrif af raunsæi þarf að safna upplýsingum, t.d. um starfsmannafjölda og verð- mætamyndun í búvöruiðnaði. Því skorar fundurinn á ríkisstjórn- ina að láta nú þegar gera löngu ákveðna úttekt á þjóðhagslegu gildi landbúnaðarins. Með niðurstöður slíkrar úttektar að leiðarljósi þurfa þeir sem málið varðar, neytendur, starfsfólk í búvöruiðnaði og bændur, að taka höndum saman og marka ábyrga og öfgalausa stefnu um framtíð landbúnaðar á íslandi, þannig að þörfum markaðarins verði mætt sem best á hverjum tíma.“ •Markvissari rekstur Sambandsins Fyrr á þessu ári var nýtt skipulag Sam- bandsins kynnt fyrir samvinnustarfs- mönnum og almenningi. Ein breyt- ingin er sú, að níu manna fram- kvœmdastjórn er lögð niður, ráðinn aðstoðarforstjóri, og framvegis ræður forstjóri upp á eigin spýtur fram- kvæmdastjóra Sambandsins en ekki Sambandsstjórn. Fœrist ekki meira vald á færri hendur með þessari breyt- ingu? Nei, alls ekki. Hér er aðeins um að ræða nýtt skipulag sem miðar að því að gera rekstur Sambandsins markvissari og reyna að virkja hvern starfskraft betur þannig að hann fái notið sín sem best. í þessu sambandi ber að hafa í huga, að öll lýðræðislega skipulögð samtök hljóta að búa við vissa miðstýringu. Hjá samvinnuhreyfingunni er á sama hátt og hjá Alþingi og ríkisstjórn að sjálfsögðu veruleg samþjöppun valds, en valdinu er síðan dreift út aftur til félagsmanna í gegnum hina ýmsu lýð- ræðislegu farvegi. Ástæðan fyrir þessum skipulags- breytingum er fyrst og fremst sú, að Sambandið hefur á undanförnum ára- tugum þróast úr því að hafa með höndum tiltölulega einfaldan rekstur í það að verða eitt stærsta og umfangs- mesta fyrirtæki landsins með mjög fjölþætta starfsemi. Skipulag Sam- bandsins hefur hins vegar ekki þróast markvisst síðustu ár í samræmi við undangengnar breytingar á rekstrin- um, og þess vegna ákvað stjórn Sam- bandsins á fundi sínum í apríl 1983 að skipa sérstaka nefnd til að fjalla um málið. Hún hóf störf fljótlega og litlu síðar var ákveðið að ráða norskt ráð- gjafafyrirtæki á sviði stjórnunar, Ásbjörn Habberstad a/s, til að vinna að tillögum að nýju skipulagi Sam- bandsins. í upphafi var megináherslan lögð á að skilgreina markmið Sambandsins ásamt því að leggja mat á helstu áhersluþætti og leiðir í rekstrinum. Forsendur nýs skipulags byggja þess vegna á tengingu við markmið og leiðir í hinum ýmsu starfsgreinum Sambandsins. Sambandsstjórn samþykkti á fundi sínum 30. mars síðastliðinn tillögur ráðgjafafyrirtækisins og skipulags- nefndarinnar - og síðan var hið nýja skipulag kynnt. Þar sem hluti af skipulagstil- lögunum útheimtir breytingar á sam- þykktum Sambandsins og umfjöllun aðalfundar, er gert ráð fyrir að nýja skipulagið komi ekki að fullu til fram- kvæmda fyrr en 1. júlí næstkomandi. • Aukin áhrif kjörinna fulltrúa Starf stjórnarformanns Sambandsins verður fullt starfmeð tíð og tíma sam- kvæmt nýja skipulaginu. Telurðu að sú breyting sé til bóta? Já, það er rétt að í hinu nýja skipu- lagi er gert ráð fyrir því að starf stjórn- arformanns muni þróast í fullt starf að málefnum Sambandsins og samvinnu- hreyfingarinnar - og ég tel að það sé til bóta. Tilgangur þessarar breytingar er að auka þátttöku og áhrif lýðræðislega kjörinna fulltrúa á stjórnun Sam- 10

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.