Samvinnan - 01.04.1984, Síða 12
Kaflar úr sögu Kaupfélags Borgfirðinga
í tilefni af 80 ára afmæli þess
eftir Gylfa Gröndal
Borgarnes er nauðsynleg
þjónustumiðstöð fyrir sveitina
Árið 1892 kemur fram á sjónar-
sviðið maður, sem þá var
flestum Borgfirðingum ókunn
ur. Þetta er Björn Kristjánsson, sem
síðar varð þekktur kaupmaður í
Reykjavík, bankastjóri, alþingis-
maður og ráðherra. Hann hafði
skrifað blaðagreinar, þar sem hann
lýsti skoðun sinni á því, hvernig kaup-
félagsskapur þyrfti og ætti að vera.
Einnig hafði hann deilt hart á Zöllner
og verslunarrekstur hans hér á landi -
og sú gagnrýni átti eftir að verða
honum dýrkeypt.
Aðeins einn maður í Borgarfjarðar-
héraði þekkti Björn persónulega, en
það var séra Guðmundur Helgason í
Reykholti. Hann gerist talsmaður
þess, að stofnað verði kaupfélag og
kemur því á framfæri, að Björn sé
reiðubúinn til að hafa stjórn þess með
höndum.
Athöfn fylgir orðum, og kaupfélag
er stofnað á fundi að Þingnesi 18.
janúar 1893 og gefið nafnið Kaupfélag
Borgfirðinga. Lög eru samin og
samþykkt, fyrstu kaupfélagslögin í
Borgarfirði, og Björn Kristjánsson er
ráðinn framkvæmdastjóri. Undirlögin
skrifa sem stjórnarmenn: Séra Guð-
mundur Helgason, formaður, Páll J-
Blöndal, læknir í Stafholtsey, og séra
Jóhann Þorsteinsson í Stafholti.
Fyrsta verslunar- og íbúðarhúsið er
byggt í Borgarnesi árið 1877 og fasta- 1
verslun sett þar á stofn, og sjö árum
síðar rís þar annað verslunarhús af
grunni. Þegar hér er komið sögu eru
12
Þórður Pálmason og kona hans, Geirlaug
Jónsdóttir. Myndin er tekin á Ráðhústorginu
í Kaupniannahöfn árið 1948.