Samvinnan - 01.04.1984, Blaðsíða 22
Tölvan
Hún stendur hérna á borðinu
grá og galdri líkust,
svo gljáð með stóran skjá.
Með alla sína takka
á tölustafaborði,
sem taka í notkun má.
Ef lesa kanntu á letrið
má leyndardóma sjá.
Þá hurfu bústnar bækur
af borðum mínum allar,
mér leist ei létt um vik.
Nú kúra þær inni í kompu,
á kili fellur ryk.
Hver veit ég reyndi að vanda
mitt verk, - hvert pennastrik?
Og tilveran, sem forðum
var feiknalega einföld
en frjáls, - er tæknivædd,
þó ýmsum undrum gædd.
Ef kyssirðu fagra konu
má kanna, hvar hún er fædd.
Stundum finnst mér viskan
sem hún veltir upp á skjáinn
vera tveggja vina tal,
og hljóð, sem þóttu hávær
eru heldur rólegt mal.
En allavega er hún
úr átt sem koma skal.
Pálmi Eyjólfsson.
■jr -y'v ~u Æ-System 36“ heitir
# /\/i tölvubúnaðurinn
„J J—J -L YJ sem Samvinnu-
skólinn á Bifröst tekur til notkunar í
haust. Þessi fullkomnu tæki eru bylting
í starfsemi skólans, og ný viðhorf skap-
ast í starfsfrœðslunámskeiðum hans
fyrir samvinnuhreyfinguna. Nýlega
hafa hagstæðir samningar tekist um
þessi tölvukaup við umboðsmenn IBM
á íslandi.
Nú í sumar verða allar kennslustofur
og kennsluhúsgögn Samvinnuskólans
endurnýjuð. Bókasafn Samvinnuskól-
ans er í endurmótun, og í haust verða
matvœlageymslur mötuneytis Sam-
vinnuskólans endurbyggðar.
Samvinnuskólinn er í mjög auknum
mæli að taka myndbönd í notkun jafnt
í reglulegri kennslu sem á starfs-
frœðslunámskeiðunum.
Næsta vetur verður sú nýjung í
kennslu Samvinnuskólans að heila
viku munu nemendur sjálfir starfrækja
tilraunafyrirtæki til þess að öðlast
raunhlíta reynslu af atvinnurekstri.
Þetta kom meðal annars fram í yfir-
litsræðu skólastjóra Samvinnuskólans
á Bifröst, Jóns Sigurðssonar, við
skólaslit 1. maí síðastliðinn, en þá lauk
66. skólaári Samvinnuskólans og 29.
árinu á Bifröst í Norðurárdal.
122 nemendur stunduðu nám við
Samvinnuskólann í vetur og luki 38
Samvinnuskólaprófi. í hópi nemend-
anna voru 45 í Framhaldsdeild Sam-
vinnuskólans sem starfar í Reykjavík,
og af þeim gengust 22 undir stúdents-
próf nú í vor.
Við skólaslit nú höfðu alls 7.101 sótt
starfsfræðslunámskeið Samvinnuskól-
ans frá því að þeim var hrundið af stað
1977, en nú í vetur höfðu þar af 343
sótt slík námskeið skólans. Nú í vor
verða 38 námskeið á 36 stöðum í öllurn
landshlutum auk Bifrastar.
Hér á eftir fer niðurlagskafli skóla-
slitaræðu Jóns Sigurðssonar skóla-
stjóra, er hann ávarpaði brautskráða
nemendur:
• Skelfing alræðisríkisins
„Nú hefur árið 1984 runnið nokkuð af
skeiði sínu. Löngum hafa menn haft
illan bifur á þessu ártali. Breski rit-
höfundurinn og hugsjóna- og baráttu-
maðurinn Eric Blair, sem tók sér höf-
undarnafnið George Orwell, gerði
þetta ártal að tákni um alræði skelfing-
arinnar og hatursins með skáldsögu
sem út kom á árunum eftir heimsstyrj-
öldina og alkunn er orðin.
Skáldsagan um 1984 fjallar um það
hversu farnast þegar mannlegir hæfí'
leikar, vitsmunir og yfirburðir leiðast
afvega. Þegar illskan ræður ríkjum en
22