Samvinnan - 01.04.1984, Side 42
Sjón er sögu ríkari
um. Enn fremur var konunum kennt
að búa til myndir með því að klippa út
og líma blöð á pappaplötur. En þá
kom óvænt babb í bátinn: Ein konan
bjó til fallegri myndir en grannkonur
hennar. Myndirnar hennar seldust.
Þá urðu hinar konurnar afbrýðisamar.
Gat verið, að þessi eina stallsystir
þeirra hefði fengið einhvern sérstakan
verndargrip frá galdralækninum, svo
að kaupendurnir sjái aðeins mynd-
irnar hennar? Pressuðu blöðin hennar
hurfu, myndirnar voru skemmdar fyrir
henni. Hún gekk berserksgang, en allt
kom fyrir ekki. Enginn má við
margnum, og að lokum gafst hún upp.
- Ný verkkunnáta er að sjálfsögðu góð
og blessuð, en hún hrekkur skammt,
á meðan fáfræðin og hjátrúin sitja í
hásætum sínum og magna ýmsan
mannlegan breyskleika, eins og t. d.
öfund og nábúakryt.
• Hvað vítuin við um þetta fólk?
Þó að allt efni þessarar bókar sé harla
nærgöngult og ágengt við lesandann,
jafnast líklega ekkert á við örstuttan
kafla, sem hefst á bls. 127 og lýkur á
bls. 131. Nokkrar afríkanskar konur
eru komnar til Noregs, og það er eins
og við manninn mælt, á samri stundu
eru norsk blöð, útvarp og sjónvarp
barmafull af hneykslun yfir þeirri villi-
mennsku, sem viðgengst í löndum
þessara kvenna, að umskera telpur.
Fyrirsagnirnar eru stórar, og
umskurðinum er lýst í máli og
myndum. Afríkönsku konunum þykja
þetta að vonum ekki góðar viðtökur.
Þær segja sem svo: Hvað vitið þið um
þetta? Hvenær urðuð þið sérfræðingar
í þessu máli? Þið hljótið að vita, að
afríkönsk kvennasamtök hafa barist á
móti þessu í meira en mannsaldur. Þær
segja einnig, að þegar þær komi heim
af alþjóðaráðstefnum, séu þær
spurðar: Voruð þið að gera okkur að
athlægi á Vesturlöndum.
Með öðrum orðum: þegar konur á
Vesturlöndum töldu sig vera að hjálpa
kynsystrum sínum í hinum svokallaða
þriðja heimi, þá voru þær að spilla
stórlega fyrir þeim á „heimavígstöðv-
unum“. Þetta leiðir huga okkar að
stóru og alvarlegu vandamáli, og nær-
göngular spurningar vakna. Hvað
vitum við eiginlega um aðstæður í
hinum fjarlægustu löndum? Er það
réttlætanlegt, að við séum að blanda
okkur inn í eða gerast dómarar um siði
og háttu þjóða, sem eru jafn ólíkir
okkar siðum eins og hörundslitur
þessa fólks er ólíkur okkar, - bókstaf-
lega eins og svart og hvítt?
Og afríkönsku konurnar segja sitt af
hverju, sem hæft er við að láti sið-
prúðum húsfreyjum á Vesturlöndum
ókunnuglega í eyrum. Þær láta meðal
annars eftirfarandi athugasemdir
flakka:
Hvar var systrasamstaðan eftir
heimsstyrjaldirnar? Milljónir ungra
manna féllu. Milljónir ungra kvenna
urðu mannlausar.... dettur ykkur
aldrei í hug að deila manninum, sem
þið búið með, með einhverri af með-
systrum ykkar? Hvað mynduð þið
segja, ef við í Afríku og Asíu hæfum
fjársöfnun fyrir þessum málstað ef við
vildum losa þessar konur við
einstæðingsskapinn.... Hvar mynduð
þið segja?
Já, hvað myndu menn segja, ef þeim
væri, í nafni réttlætis og bræðralags,
sagt að þverbrjóta þær siðareglur, sem
þeir hafa byggt upp og lifað eftir alla
ævi? Og ekki einungis á þessu sviði,
heldur fjölmörgum öðrum. -
Afríkönsku konurnar segja, að það
ættu að vera mannréttindi að búa með
einstaklingi af hinu kyninu. „En þið
hreyfið hvorki hönd né fót til að hjálpa
þessum milljónum kvenna. Þvert á
móti verjið þið karlmanninn, sem þið
fenguð, með kjafti og klóm“.
Það er nú svo. Er siðferði Vestur-
landabúa, - og það sem þeir hafa
kallað skírlífi sitt, - er það þá kannski
ekki eina rétta viðhorfið, þegar öllu er
á botninn hvolft?
• Svona tuttugu börn - minnst
Eins og nærri má geta eru gestgjafar
frú Bruusgaard álíka hissa á við-
horfum hennar eins og hún er á siðum
þeirra og háttum. Þegar hún segir
þeim, að maðurinn sinn hafi fengið sig
fyrir ekki neitt, en ekki þurft að kaupa
sig, lækkar hún svo í áliti hjá þeim, að
hún flýtir sér að bæta því við, að hann
gefi sér alltaf peninga fyrir fötum og
mat, svo að hún þurfi ekki að vinna á
akrinum. Hún þorir varla að segja
þeim, að hann hafi aldrei barið sig, svo
að þær missi ekki allt álit á honum! Þær
spyrja undrandi, hvort hann eigi ekki
nema eina konu, og hver sjái þá um
hann á meðan hún er í burtu. Það
vekur aðeins góðlátlegan hlátur
þeirra, þegar hún lýsir því yfir, að
hann muni geta séð um sig sjálfur. -
Þegar hún segist eiga tvö börn, er
svarið sem hún fær þetta: Veslingurinn
litli. Guð hefur ekki verið þér góður.
En berist talið að því, hvað gestgjafar
hennar telji eðlilega fjölskyldustærð,
er sagt: Svona tuttugu börn ef hægt er
að gefa þeim að borða! Til eru þeir,
sem láta ekki við það sitja að vorkenna
Opel er vestur-þýskur
fram í felgur. Þér nægir
ekkert minna, þegar þú
velur fjölskyldubílinn.
BIFREIDADEILD SAMBANDSINS
HÖFÐABAKKA 9 SIMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM
42