Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Blaðsíða 18

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Blaðsíða 18
12 fjelögunutn og fæla þar með burtu helztu stuðnings- mennina. Svo ramt kveður að þessu, að sumir blaða- menn, sem álíta samvinnuhreifinguna hið mesta happ fyrir þjóðina, geta þó ekki lagt henni liðsyrði opinber- lega, nema með því að eyðileggja blaðafyrirtækin sjálf. En auðvitað er hjer um hina mestu meinloku að ræða frá hálfu samvinnumanna. Þeir hafa glatað krónunni með því að spara eyrinn. þeir hafa ekki tímt að aug- lýsa eða styðja neitt blað, svo að það gæti staðið með þeim. Og fyrir þessa meinloku hafa þau kastað hinum áhrifamiklu blöðum í opna arma kaupmannanna og þau aptur lagt hina ósjálfstæðari menn í landinu undir kaup- mannahælinn. Engin hreifing, sem vill verða vinsæl og voldug, get- ur komizt af án útbreiddra blaða. Og þessi allsherjar- lög gilda jafnt í samvinnumálum sem annarstaðar. Ef kaupfjelagsmenn ætla sjer að sigra kaupmannavaldið, má ekki vanrækja þessa hlið. Sennilega mundi nægja, fyrst um sinn, að hafa ein þrjú vikublöð á bandi samvinnu- manna, ef þau væru vel valin og útbreidd meðal allrar alþýðu í sveitum og kauptúnum. Pað yrði verk sam- bandsstjórnar, er til kæmi, að semja við stuðningsblöð- in og ákveða, hvernig vinna skyldi. Að líkindum yrði um tvennskonar stuðning að ræða, frá blaðanna hálfu: aug- lýsingar og greinar um gildi samvinnunnar. Auglýsingar eru bersýnilega jafnnauðsynlegar kaupfjelögum sem kaup- mönnum, með því að þau sækjast einnig eptir því að fá sem mesta ábyggilega viðskiptaveltu. Hinni aðferðinni eru menn óvanari hjer á landi, nefnilega greinum, sem í raun og veru eru auglýsingar, en sýnast ekki vera það, en einmitt þær mundú eiga bezt við, eins og hjer stend- ur á. Það er töluvert algengt erlendis, að voldug verzl- unarhús hafa ákveðið rúm í hverju einasta tölublaði ein- hvers stórblaðsins og láta vel ritfæra menn fylla dálkinn daglega með Ijettlæsilegum greinum um ágæti þeirrar verzlunar, sem hlut á að máli. Petta ráð er mjög áhrifa-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.