Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Síða 19
13
mikið og mundi þó geta komið meiru til leiðar hjer,
þar sem barizt væri fyrir sannarlega góðu máli.
Jafnvel þó hjer sje gengið, að mestu, framhjá að ræða
um samvinnumenntun í almennri merkingu orðsins, er
þó eitt atriði, sem eigi má láta hjá líða að drepa á nú
þegar. Það er sjermenntun starfsmanna samvinnufjelag-
anna. Enn þá hefir hver samvinnumaður orðið að brjóta
ísinn fyrir sig, afla sjer menntunar sjálfur, eða hjá öðr-
um, innanlands eða utan. Lítil og sjálfsögð byrjun er
það, ef haldið verður námsskeið á Akureyri nú í vetur
í sambandi við Kaupfjelag Eyfirðinga. En betur má ef
duga skal. *
Sumir menn benda á Verzlunarskóla íslands, í þessu
máli, en það er hin mesta fásinna. Hann er allt of háð-
ur kaupmönnum til að geta verið svo hlutlaus sem þarf.
Nægir í þessu efni að benda á, að bæði núverandi skóla-
stjóri og fyrirrennari hans hafa rekið heildsöluverzlun,
samhliða kennslunni. Þar að auki þarf að ala starfsmenn
kaupfjelaganna upp í allt öðru andrúmslopti en því, »að
hlera við símann og bíða eptir verðbreytingum«. í stuttu
máli: Sarnvinnufjelögin verða að hafa skóla fyrir starfs-
menn sína. Hann yrði auðvitað í Reykjavík, og undir
yfirstjórn formanns heildsölunnar. Skólinn þyrfti ekki að
vera stór; mætti taka menn inn annaðhvort ár, og kenna
í tvo vetur. inngöngu ættu ekki að fá fleiri en sambands-
fjelögin þyrftu og vildu hafa fyrir starfsmenn síðar meir.
Sennilega væri kappnóg að útskrifa 4 — 5 annaðhvort ár.
Kennslan ætti að vera bókleg og verkleg, miðuð við
kröfur þær, sem samvinnufjelögin hljóta að gera til starfs-
manna sinna. Nemendur ættu að þekkja, út í æsar, allt
fyrirkomulag heildsölunnar og hafa fengið nokkra verk-
lega æfingu við að starfa í kaupíjelagi því, sem rísa mun
* Þegar þetta var ritað mun höf. greinarinnar eigi hafa vitað að
ákveðið er að halda hið áminnsta námsskeið, sbr. auglýsing í
ýmsum blöðum og Tímar., IV. h. f. á.
s.j.