Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Page 30

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Page 30
24 nauðsynjavörum, einkanlega matvörum —, sem borgar- arnir með þurfa, en sem eigi er nægilega mikið framleitt af í landinu sjálfu. Þessu er þá ýmist úthlutað eptir viss- um reglum eða geymt til komandi tíma. Að hafa hemil á óhóflegu verðlagi á nauðsynjavöru hjá vörusölum og kaupsýslumönnum og setja í því skyni þingskipaðar eða stjórnskipaðar nefndir manna, sem hafa fullt vald til þess að lækka verðið á þeim vörutegund- um, sem menn kvarta um að sje óhóflega hátt. Nefndir þessar útvega sjer þá nauðsynlegar upplýsingar í hverju einstöku tilfelli, og færa verðið hæfilega niður, ef það reynist of hátt, eptir tilkostnaði og eðlilegri aðstöðu seljanda. Að leggja bráðabirgðarskatta á allan óvanalegan fram- leiðslu- og kaupsýslugróða og stóreignir einstakra manna, til þess að auka tekjur ríkisins, svo af meiru sje aðtaka til varnar út á við og umbótaráðstafana á hag almenn- ings innanlands. Að veita dýrtiðaruppbót opinberum starfsmönnum rík- isins og starfsmönnum sveita- og bæjarfjelaga á líkan hátt og ýms frjáls fjelög gera, ótilknúin, gagnvart sínum starfsmönnum. Að veita beina dýrtiðarhjálp, þar sem neyðin er mest meðal alþýðunnar, og Ijetta þar af eða lækka greiðslur til almennra þarfa. í styrjaldarlöndunum sjálfum eru afskipti ríkisstjórn- anna margfalt víðtækari og aflmeiri af þeim högum al- mennings og viðskiptum, sem áður hafa verið hlutlaus látin. Mun kveða langmest að slíku á Pýzkalandi, eins og eðlilegt er, af því hernaðaraðferð bandamanna stefnir að því að svelta miðríkin og einangra þau svo sem unnt er. Kveður svo ramt að þessu, að alþjóðareglur eru þrásinn- um brotnar eins og við höfum fengið að kenna á. í svonefndum »hlutlausu« löndum hjer í álfu hefir orð- ið að grípa til þeirra óvenjulegu ráðstafana sem að fram- an eru nefndar, með fleiru, sem þar er eigi til greint.

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.