Andvari - 01.01.1984, Page 59
ANDVARI
VILMUNDUR JÓNSSON
57
smitsæfður, sœfður: dauðhreinsaður
taugakröm: beri-beri (af B-vítamínsskorti)
veira: virus (líkt eftir enskum framburði orðsins)
visna: taugasjúkdómur í sauðfé
þel: þunn, gljáandi himna (klæðir innan brjósthol, kviðarhol, hjarta (hjarta-
þel), æðar (æðaþel), liði (liðaþel))
þvagáll: þvagpípa (liggur frá nýra niður í þvagblöðru)
œða, œðubólga: æðahimna (i auga), æðahimnubólga
örvit: lægsta stig greindarskorts
afturkast: feedback
Austurlönd fjœr í stað fjarlægari Austurlönd
Austurlönd nær í stað nálægari Austurlönd
ber: manifest
blikhraði: instantaneous velocity
fólginn: latent
forvörður: konservator
framagosi: stræber
gjóska: gosefni
götuviti: umferðarljós
játur: positiv
lyndislestur: physiognomy
neitur: negativ
rafdráttur: electrophoresis
staðtölur: statistik
tandurhreinn: pyrogenfri
virkur: aktiv
þolur: passiv
Mér er hvergi nærri fullkunnugt, hver nýyrði Vilmundar hafa unnið sér
þegnrétt í máli lækna, svo sem í greinum í Læknablaðinu og öðrum skrif-
um þeirra á islenzku, og verður engin tilraun gerð hér til að kanna það.
Þess var getið í upphafi, að Vilmundur hafi stundum hvíslað hugmyndum
að fremstu rithöfundum okkar og þær borið „blómlegan ávöxt“. Nú er sitthvað
að vita þetta frá fyrstu hendi og að geta sannað það svart á hvitu, og verður hér
því aðeins nefnt eitt dæmi um nafngift á bók, sem vel má eiga heima í þessum
þætti. Er sú frásögn því tilvaldari sem hún bregður jafnframt upp ljóslifandi
mynd af Vilmundi. Guðmundur G. Hagalín skýrir frá því í Virkum dögum
f2. útg., ártalslaus, bls. 598), að hann hafi árangurslaust leitað að útgefanda
að bókinni, meðan hún var í fæðingu. Orðrétt segir hann: „Svo hringdi ég þá
hl Vilmundar landlæknis, sagði honum, hvar komið væri sögu Sæmundar —