Andvari - 01.01.1904, Page 23
Þættir úr jarðfræði Islands.
Eptir
Þorváld Thoroddsen.
f
4. Ahrif sjóarins á strendur Islands.
Það er svipmikil sjón að líta af hafi upp til Vest-
fjarða í góðu veðri. Kolsvartar hamragirðingar rísa úr
sæ, þverhnýptir höfðar og hvassar hyrnur teigja sig
liver fram fyrir aðra, hinar næstu hrikalegar og kulda-
iegar, hinar fjarri blóar og blíðlegar, ])ví tibráin bregður
blæju um höfða og nes. Gufukuggurinn brunar fram
lijá Bjargtöngum og klýfur lognöldurnar bláar og breið-
ar, allt iðar af svartfugli, máfum, kríum og ritum; hér
og hvar gjósa upp bvalamekkir, kolsvörtum búkum
skýtur úr sæ og steypast í sama vetfangi þunglamalega í
djúpið; síldatorfurnar vaða ofansjáfar, en steinbítirnir
bryðja öðurnar á mararbotni; jieir láta ekki sjá sig, en
bíða síns vitjunartíma. Allt er á kviki og hreyfingu,
hamratröllin ein standa föstum fótum, pó brimsúgurinn
leiki uin fætur þeirra; þau horfa glottandi út á sæinn
°S lita smáum augum á gufuskelina, sem fram hjá fer;
svona hafa þau horft á Geirmund heljarskinn og Björn
Jórsalafara, á Þórð kakala og Geirmund góða. Menn-