Fréttablaðið - 19.09.2009, Page 73
LAUGARDAGUR 19. september 2009 45
Í nýjasta hefti tímaritsins Life &
Style er greint frá því að Lindsay
Lohan sé furðu dugleg að bjóða
yngri systur sinni með sér út á
lífið. Það væri ekki í frásögur
færandi nema fyrir þær sakir að
systir Lindsay, fyrirsætan Ali
Lohan, er aðeins fimmtán ára
gömul.
Systurnar eyða miklum tíma
í félagsskap hvor annarrar og
nú er það orðið svo að Lindsay
er farin að bjóða Ali með sér
á skemmtistaði í Los Angeles.
„Lindsay virtist ekki vera að
passa mikið upp á Ali. Hún kom
fram við hana eins og hún væri
ein af vinkonum hennar. Þær
reyktu eins og strompar og döns-
uðu langt fram eftir,“ var haft
eftir gesti skemmtistaðarins
Crown Bar í Los Angeles. Þegar
faðir stúlknanna var spurður út
í þetta svaraði hann því að hann
væri ánægður með það að syst-
urnar væru svo nánar.
Lohan slæm
fyrirmynd
Sænski plötusnúðurinn Kleer-
up spilar á tónleikaröðinni Rétt-
um sem verður haldin í Reykja-
vík 23. til 26. september. Kleerup
er rísandi stjarna í heimalandi
sínu og jafnframt þekktur fyrir
kynni sín af fjölda fyrirsæta og
fegurðardísa. Núna á hann von
á barni með sænska plötusnúðn-
um Sonju Berggren. Lag hans
With Every Heartbeat sem var
sungið af Robyn komst í toppsæti
breska vinsældalistans. Hann
hefur einnig unnið með Cyndi
Lauper og Lykke Li á ferli sínum.
Kleerup er einnig þekktur sem
meðlimur hljómsveitarinnar The
Meat Boys.
Glaumgosi í
Réttum
KLEERUP Sænski plötusnúðurinn spilar
á tónleikaröðinni Réttum sem hefst á
næstunni.
SYSTUR Lindsay og Ali Lohan djamma
saman. NORDICPHOTOS/GETTY
Á heimasíðu Bjarkar Guðmunds-
dóttur var nýverið tekið upp á
þeirri nýbreytni að sýna nýtt
myndband með annarri tónlistar-
konu. Sú er Lundúnamærin Mica
Levi sem kallar sig Micachu og
hefur verið að gera það gott með
hljómsveit sinni, The Shapes, og
plötunni Jewellery sem kom út
í mars. Björk hefur þegar farið
fögrum orðum um Micachu í fjöl-
miðlum. Hún hefur meðal annars
sagt að hún fíli það hvernig Mic a-
chu nálgast hlutina með „gerðu
það sjálf“-viðhorfi pönksins.
Micachu & The Shapes er ein
þeirra erlendu sveita sem leika
á Iceland Airwaves í október. Á
Bjarkarsíðunni er ýjað að því að
umfjöllunin tengist þeirri heim-
sókn. Má kannski búast við sam-
starfi Bjarkar og Micachu? Af
Björk er það annars að frétta að
hún vinnur nú að nýrri plötu,
meðal annars úti í Púertó Ríkó.
Alls óljóst er hvenær þessi plata
kemur í plötubúðirnar. - drg
Björk fílar Micachu
KOMA Á AIRWAVES Micachu & The
Shapes.
Níunda plata sænsku eitís-rokkaranna í Europe,
Last Look at Eden, kemur út á mánudaginn.
Europe sló í gegn með laginu The Final Count-
down árið 1986 en hætti störfum 1992 eftir tíu ára
sigurgöngu og tuttugu milljóna plötusölu. Hún
sneri síðan aftur á sjónarsviðið fyrir sex árum,
enn með söngvarann Joey Tempest í farar-
broddi. Hann er orðinn 46 ára og býr í Lond-
on með breskri eiginkonu sinni og ungum
syni. „Við
höfum
gengið í
gegnum ýmislegt.
Okkur dreymdi
frá upphafi um að spila rokk og ról úti
um allan heim og núna erum við enn þá
að gera það,“ sagði Tempest í viðtali
við BBC. „Við erum svipaðir náung-
ar og þegar við vorum unglingar. Það
er frábær tilfinning.“ Hann segist
ekkert skammast sín fyrir hártísk-
una á níunda áratugnum. „Við vorum mjög ungir og
vorum eitt stærsta bandið á MTV. Eiginlega langaði
mig bara að líta út eins og Robert Plant.“
Tempest samdi píanóstefið við The Final
Countdown þegar hann var í menntaskóla.
Hann fékk lánað hljómborð hjá eina strákn-
um í skólanum sem átti slíkt hljóðfæri
og fór með það heim. „Ég prófaði nokkra
hljóma og samdi síðan þetta stef. Mér
fannst það mjög sérstakt og geymdi það
í skúffunni minni, allt þar til við gáfum
út þriðju plötuna okkar mörgum árum
seinna,“ sagði hann. Viðtökurnar voru
rosalegar og lagið er vafalítið eitt það
vinsælasta sem kom út á níunda áratugn-
um.
Europe með sína níundu plötu
JOEY TEMPEST Sænsku rokkararnir í Europe eru
mættir aftur með sína níundu plötu í farteskinu.
NORDICPHOTOS/GETTY