Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Side 15

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Side 15
STÚDENTABLAÐ 7 fíjörn Hennannsson, stud. jtir. Stjórnir stúdendaráðs 1953—54 jón Hnefill Aðalsleinsson, stud. theol. Brynleifur Steingrímsson, stud. med. Sigurður V. Ftiðþjófsson, stud. mag. Sigurður Guðmundsson, stttd. med. arstofnanir þjóðveldisins enn við lýði. Það hnigu því fáar aðrar stoðir undir jarlsdæmi á Islandi á því herrans ári 1262 en það lið, sem Gissur jarl gat boðið út, og sveit jarls hefur varla verið þétt skipuð þá, úr því að hann þurfti að fara bónarveg að þingheimi. Af tryggð við Gissur er ákvæðið um jarlinn tekið inn í sáttmálann, en greinirinn aftan við titilinn virðist gefa til kynna, að bændur ætli að létta á fóðrum, þegar Gissur fellur frá. Héðan í frá leituðust Islendingar við að neyta þess, að höfð- ingi þeirra sat víðs fjarri og átti löngum óhægt um vik að vanda mjög um siðu manna, meðan honum tókst ekki að koma hér erlendum höfð- ingjum til yfirsóknar. Með Gamla sáttmála hefst því alþingi og aðrar fornar stjórnarstofn- anir til nýs vegs og virðingar hjá fólki. En við verðum að hafa það hugfast, að nú hefst við- námstímabil í íslenzkri sögu, stjórnarfarsleg grósku- og þroskaskeið eru liðin; þjóðin eyðir orku sinni í andspyrnu gegn erlendum yfir- gangi og þroskar baráttuleikni sína, en reisn sjálfstjórnar og sjálfræðis er að mestu horfin.

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.