Stúdentablaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 36
28
STUDENTABLAÐ
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON, stud. oecon.:
Efnahagslegt sjálfstœði
Islands
Þegar rætt er um sjálfstæði þjóðar, er tíðast
átt við hið stjórnarfarslega sjálfstæði eingöngu.
Það vill gleymast, að ýmsir aðrir þættir sjálf-
stæðisins, svo sem hið efnahagslega og menn-
ingarlega sjálfstæði, geta engu síður verið
mikilsverðir. Fyrir smáþjóð eins og okkur Is-
lendinga, hlýtur þó hinn efna-
hagslegi þáttur að skipta miklu
máli. Smáþjóð, er ekki getur
staðið á eigin fótum fjárhags-
lega, getur ekki til lengdar
varðveitt sjálfstæði sitt.
Hin síðustu ár hefur oft ver-
ið bent á þá ógn, er sjálfstæði
landsins stafi af setu erlends
hers í landinu. Það hefur okki
fyrst og fremst verið bent á þá
hættu, er efnahagslífi landsins
sé búin, ef hið erlenda herlið
heldur áfram að soga til sín
hættulega mikinn hluta vinnu-
afls þjóðarinnar, heldur þau á-
hrif, er fjölmennt erlent her-
lið hljóti að hafa á menningu
og tungu smáþjóðar. Það
hefur ekki verið bent eins
rækilega á þá hættu, er sjálf-
stæði landsins stafi af ríkjandi stefnu í efna-
hagsmálum þjóðarinnar. I baráttu gegn dvöl
erlends hers í landinu hefur það viljað gleym-
ast, að sjálfstæði landsins er ekki síður hætta
búin af betlipólitík í efnahagsmálum þjóðar-
innar. Arið 1950 varð mikil stefnubreyting í
efnahagsmálum Islendinga. Stefnan hafði verið
sú að hafa sem mestan hemil á innflutningn-
um, flytja aðeins eða fyrst og fremst til lands-
ins þær vörur, er ekki væri unnt að framleiða
í landinu sjálfu, en láta hinar mæta afgangi.
Hlúð var að hinum unga íslenzka iðnaði til
þess að auka fjölbreytni atvinnuveganna og
spara þjóðinni erlendan gjaldeyri. Þetta var
stefna fátækrar þjóðar, sem ekki gat leyft sér
óhóf í meðferð fjármuna sinna og eyddi því
ekki dýrmætum gjaldeyri í innflutnings óhófs-
vara.
í marz 1950 urðu stjórnar-
skipti í landinu. Arin 1947—
1949 hafði setið að völdum í
landinu samsteypustjórn Al-
þýðuflokksins, Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokks-
ins undir forsæti Stefáns Jóh.
Stefánssonar. Sú stjórn fór frá
í árslok 1949, og tók þá fyrst
um sinn við stjórnartaumun-
um minnihlutastjórn Sjálf-
stæðisflokksins, eða þar til í
marz 1950, að stjórnarmyndun
tókst með Framsóknarflokkn-
um og Sjálfstæðisflokknum
undir forsæti Steingríms Stein-
þórssonar. Hin nýja stjórn boð-
aði þegar stefnubreytingu í
efnahagsmálum. Kvað stjórnin
það eitt höfuðmarkmið sitt að
gera innflutningsverzlunina
„frjálsa“ og afnema allar hömlur á innflutningi
til landsins. Stefnu þessa framkvæmdi stjórnin
síðan að verulegu leyti. Að vísu voru ekki öll
innflutningshöft afnumin, en nóg til þess að
líkast var sem allar flóðgáttir erlends vöruflóðs
hefðu verið opnaðar. Margs konar óhófs- og
luxusvarningur tók að streyma til landsins og
hafinn var innflutningur á erlendum iðnaðar-
vörum, sem unnt var að framleiða í landinu
sjálfu. Varð hinn ungi og veiki íslenzki iðnað-
ur fyrir miklu og þungu áfalli. Á sama tíma
jókst útflutningurinn ekkert. Hlaut því út-
Björgvin Guðmunásson.