Stúdentablaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 44
36
STUDENTABLAÐ
t---------------------------------------------------------------------------------
Hannes Pétursson, stud. mag.:
I helli Loka
Hin döh\a naðra hátt úr himinrjáfri
hangir með opnu gini. — Þolinmceði
þú sem nú alein eiturdropa bœgir
frá allri jörð, mun s\ál þín barmafull?
Vá býr í lofti, naðran sígur neðar;
nú er s\ál þín full.
Hún sígur hægt, úr dimmum hvofti drýpur
hið dö\\a eitur. Þú sem heldur vörð
um turna þá sem dapurt dymblum hringja
í dauðahljóðum rústum fornra torga,
já, þolinmœði, grunn var s\ál þín gjörð.
/
A morgun slœr þú eitri þessu út.
Enn mun því falla dropi í sár þín, jörð,
ógróin sár þín, undir s\óga og borga.
hægt sé að halda því fram að henni sé treyst-
andi til að verja frelsi og lýðræði í heiminum,
þ. á. m. Islandi. Það er skoðun okkar að gjamm
borgarlegra sjálfshyggjubraskara þar sem öll-
um meðulum er beitt til að blekkja lýðinn með
því að sverta sameignarstefnuna og sigurför
hennar meðal þjóða sé auðvirðilegur málflutn-
ingur og nálgast enda svívirðingu í garð viti
borins fólks að bera á borð fyrir það rússa-
grýlu og útjöskuð vígorð Hitlers og Göbbels
um „baráttu gegn kommúnismanum" og „járn-
tjald“, sem heilgan sannleik til að réttlæta með
afsal landsréttinda.
Nú alveg nýlega höfum við séð í verki ein-
ingu vinstri aflanna á þingi verklýðssamtak-
anna, Alþýðusambands Islands. Og í átt til
einingar skal stefna, einingu alþýðu gegn ís-
lenzku auðvaldi með bandarískan her að bak-
hjarli. Sinn skerf verða vinstri stúdentar að
leggja til, þar munar um hvern mann. Mismun-
andi viðhorf til mála er minna varða þurfa
ekki að hindra samfylkingu um stærsta mál
okkar í dag: Sleitulausa, óhvikula baráttu gegn
herstöðvum á íslandi. Öll önnur mál eru sem
hégómi í samanburði við það. Auknar friðar-
horfur í heiminum hafa skapað hér aukna her-
virkjagerð. Gegn slíkri ósvinnu verðum við að
fylkja liði. Takið þátt, stúdentar, í undirskrifta-
söfnun er nú fer fram gegn hersetunni. Með
samstilltu átaki getur íslenzka þjóðin, þótt
vopnlaus sé, hrundið bandaríska hernum úr
landi. Hugumstórir og bjartsýnir menn munu
vinna sigur gegn her gráum fyrir járnum og
lítilsigldum landstjórnarmönnum er hafa kosið
að skríða í skjól við stál hermannalýðs. Við
munum vinna sigur af því að alþýðan mótar
stefnuna. Við erum alls megnugir af því að
verklýðshreyfingin er aflgjafinn.