Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Side 44

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Side 44
36 STUDENTABLAÐ t--------------------------------------------------------------------------------- Hannes Pétursson, stud. mag.: I helli Loka Hin döh\a naðra hátt úr himinrjáfri hangir með opnu gini. — Þolinmceði þú sem nú alein eiturdropa bœgir frá allri jörð, mun s\ál þín barmafull? Vá býr í lofti, naðran sígur neðar; nú er s\ál þín full. Hún sígur hægt, úr dimmum hvofti drýpur hið dö\\a eitur. Þú sem heldur vörð um turna þá sem dapurt dymblum hringja í dauðahljóðum rústum fornra torga, já, þolinmœði, grunn var s\ál þín gjörð. / A morgun slœr þú eitri þessu út. Enn mun því falla dropi í sár þín, jörð, ógróin sár þín, undir s\óga og borga. hægt sé að halda því fram að henni sé treyst- andi til að verja frelsi og lýðræði í heiminum, þ. á. m. Islandi. Það er skoðun okkar að gjamm borgarlegra sjálfshyggjubraskara þar sem öll- um meðulum er beitt til að blekkja lýðinn með því að sverta sameignarstefnuna og sigurför hennar meðal þjóða sé auðvirðilegur málflutn- ingur og nálgast enda svívirðingu í garð viti borins fólks að bera á borð fyrir það rússa- grýlu og útjöskuð vígorð Hitlers og Göbbels um „baráttu gegn kommúnismanum" og „járn- tjald“, sem heilgan sannleik til að réttlæta með afsal landsréttinda. Nú alveg nýlega höfum við séð í verki ein- ingu vinstri aflanna á þingi verklýðssamtak- anna, Alþýðusambands Islands. Og í átt til einingar skal stefna, einingu alþýðu gegn ís- lenzku auðvaldi með bandarískan her að bak- hjarli. Sinn skerf verða vinstri stúdentar að leggja til, þar munar um hvern mann. Mismun- andi viðhorf til mála er minna varða þurfa ekki að hindra samfylkingu um stærsta mál okkar í dag: Sleitulausa, óhvikula baráttu gegn herstöðvum á íslandi. Öll önnur mál eru sem hégómi í samanburði við það. Auknar friðar- horfur í heiminum hafa skapað hér aukna her- virkjagerð. Gegn slíkri ósvinnu verðum við að fylkja liði. Takið þátt, stúdentar, í undirskrifta- söfnun er nú fer fram gegn hersetunni. Með samstilltu átaki getur íslenzka þjóðin, þótt vopnlaus sé, hrundið bandaríska hernum úr landi. Hugumstórir og bjartsýnir menn munu vinna sigur gegn her gráum fyrir járnum og lítilsigldum landstjórnarmönnum er hafa kosið að skríða í skjól við stál hermannalýðs. Við munum vinna sigur af því að alþýðan mótar stefnuna. Við erum alls megnugir af því að verklýðshreyfingin er aflgjafinn.

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.