Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Page 21

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Page 21
STÚDENTABLAÐ 13 sum hinna þungu efna, eins og t. d. blý, hafa að geyma mikla orku, sem losna myndi ef hægt væri að kljúfa kjarna efnisins. Blýkjarnarnir eru þó svo stöðugir, að litlar líkur eru til þess að hægt verði að fá þá til þess að klofna í stór- um stíl. Aftur á móti eru úraníumkjarnar svo óstöðugir, að engin vandkvæði eru á því að fá þá til að klofna og framleiða mikla orku. Úraníumkjörnum má líkja við snjóskafla hátt í bröttum fjallahlíðum, sem lítið þarf við að koma til þess að þeir fari af stað og myndi snjóskriður niður hlíðarnar. Drunurnar frá einni snjóskriðu geta jafnvel komið öðrum af stað. Blýkjörnum mætti þá líkja við snjóskafla, sem lægju litlu neðar í hlíðunum, en væru svo fastir að stóra sprengju þyrfti í hvern þeirra til að koma honum af stað. Ein snjóskriða myndi þá aldrei draga aðrar með sér. Raunverulega er kjarnaklofningu hjá úraní- um haldið við fyrir milligöngu nevtróna, en það eru agnir, sem losna úr atómkjörnum við ýmsar kjarnabreytingar, þar á meðal kjarnaklofn- ingu. Nevtrónan hefur enga rafhleðslu og á því auðvelt með að komast inn í atómkjarna. Trufl- un sú, sem nevtrónan veldur í úraníumkjarn- anum nægir til þess að koma af stað klofningu, en við það myndast nokkrar nevtrónur, sem aftur rekast á aðra úraníumkjarna og svo koll af kolli. Úraníumklofning er nú orðin vel þekkt kjarnabreyting, sem bæði getur gengið hratt sem sprenging og hægt, að geðþótta þeirra, sem því stjórna. Þegar er tekið að nota hana til orkuvinnslu í stórum stíl, og á hún þar ef- laust mikla framtíð fyrir sér. Þess ber þó að gæta, að hér er ekki fengin nein óþrjótandi orkulind, því að úraníumnámur eru takmark- aðar. Sama gildir um þóríum, sem einnig má nota á svipaðan hátt og úraníum. Efni þessi eru þó veruleg viðbót við orkuforða þann, sem kol og olía hafa að geyma. Kjarnorkuver geta reynzt einkar vel í stórum skipum, sem sigla á milli fjarlægra hafna, vegna þess að ckki þarf að taka með eldsneyti og auka má farm- inn að sama skapi. Einnig geta þau komið sér vel í afskekktum byggðarlögum, þar sem erfitt er um aðflutninga. Mikið óhagræði er að geisl- un þeirri, sem kjarnabreytingunum fylgir, en vegna hennar verða þykkir varnarveggir að umlykja orkuverið. Með því er útilokað, að hægt sé að nota orkugjafa af þessu tagi í lítil farartæki. Enda þótt alla þá orku, sem við notum, megi rekja til kjarnorku í einhverri mynd, þá er þó engan veginn svo, að bein notkun kjarnork- unnar þurfi að vera eina von mannkynsins um næga orku í framtíðinni. Til glöggvunar skulu hér gefnar nokkrar tölur varðandi orkuþörf og orkugjafa, en til þess að forðast mjög háar tölur er orkan talin í þungaeiningum: Orkunotkun mannkynsins ..................... Raforka frá vatnsvirkjunum ................. Orka allra virkjanlegra fallvatna........... Orka sjávarfalla............................ Jarðhiti.................................... Orka sólarljóssins, sem fellur á yfirborð jarðar Orka bundin í kolum og olíu ................ Orka einnar úraníumsprengju ................ Orka einnar vetnissprengju ................. Orka frá vatnsvirkjunum á íslandi .......... Orka virkjanlegra fallvatna á Islandi ...... Jarðhiti hagnýttur á íslandi ............... Orka hvera og lauga á Islandi .............. Orka síðasta Helkugoss ..................... um 1 tonn á ári 12 kg á ári 250 kg á ári um 0.5 tonn á ári 6 tonn á ári 30.000 tonn á ári nokkur hundruð til nokkur þúsund tonn um 1 g um 1 kg 30 g á ári 1,4 kg á ári 20* g á ári 1 kg á ári 20 kg Af þessu er ljóst, að virkjanir fallvatna geta ekki fullnægt orkuþörf mannkynsins. Orka sjávarfalla verður ekki hagnýtt nema að mjög litlu leyti. Sama gildir um jarðhitann. Eini stöðugi orkugjafinn, sem getur fullnægt orku- þörf mannkynsins, er sólarljósið, en geislaorka sú, sem fellur á 10.000 ferkílómetra myndi nokkurnveginn samsvara núverandi orkuþörf. Gallinn er að orkan er mjög dreifð og því erfitt að hagnýta hana beint. Líklegt má þó teljast,

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.