Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Qupperneq 22

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Qupperneq 22
14 STÚDENTABLAÐ SKÚLI BENEDIKTSSON, stud. theol., formaður stúdentaráðs. Sjálfstœðisbaráttan og stádentar í dag minnast háskólastúdentar hins mikil- væga og langþráða sigurs, er vannst í sjálf- stæðisbaráttu íslenzku þjóðarinnar 1. desember 1918. Fyrsta desember er ekki minnst neins lokaáfanga í sjálfstæðisbaráttunni, sá dagur er í sögu okkar táknrænn fyrir ævarandi bar- áttu hinnar íslenzku smáþjóðar fyrir fullveldi sínu og sjálfstæði. Þann dag ber stúdentum að gera hvort tveggja, líta yfir farinn veg og hyggja að framtíðinni. I dag minnumst við aldagamallar baráttu frumherjanna og unninna sigra. I dag íhugum við og ræðum ástand og horfur í sjálfstæðismálunum, setjum fram stefnu okkar og kröfur um algert sjálfstæði og fullveldi. Fyrsti desember er baráttudagur að áliti allra þeirra Islendinga, sem telja, að íslenzka þjóðin verði sjálf að standa vörð um fullveldi sitt. Sú stefna að fela slíkt erlendum stórveldum getur verið ákjósanleg þeim, er vilja leggja árar í bát og lifa sem þægilegustu lífi í friði og sátt við þá aðila, er kunna vilja seilast hér til yfirráða og íhlutunar. En hún er ekki hyggileg hverjum þeim, er ber ættjarð- arást og þjóðarmetnað í brjósti. Ef nokkur vill og getur verndað sjálfstæði okkar, þá er það íslenzka þjóðin sjálf, öðrum er ekki fyrir því trúandi. Það eru ekki mörg ár liðin frá því, er vart varð ágirndar erlendra hervelda á Islandi, til afnota í styrjöld eða stríðsundirbúningi. En á þeim fáu árum hefur mikið breytzt. Arið 1945 kom fyrst fram opinber krafa frá Bandaríkjun- um um herstöðvar til 99 ára. Þegar þessi krafa kom fram, hafði íslenzka þjóðin fengið nokkra reynslu af hernámi og hersetu, en það hernám hafði þó ekki staðið svo lengi, að það hefði þegar lamað siðferðisþrek þjóðarinnar sem miklu næmi. Málaleitan Bandaríkjanna var vís- að á bug einróma, enginn Islendingur fekkst til að mæla henni bót. Bandaríkin skiptu um að- ferð, tóku aðra, lítið eitt seinvirkari, en ör- uggari. Allir vita um árangurinn. Nú er banda- rískur her hér á landi, og bíður eftir ímynduðu stríði, sem enginn veit, hvenær á að koma. En það sem undarlegast er, nú virðast þeir til og ekki all fáir, sem mæla langvarandi erlendri hersetu bót, telja hana jafnvel lífsnauðsyn. Tím- að fundnar verði leiðir til þess að safna sam- an orku í stórum stíi beint úr sólarljósinu. Af töflunni er einnig ljóst, hversu litla orku kjarnorkusprengjur gefa frá sér miðað við orku þá, sem jörðin fær frá sólinni. Til þess að framleiða jafn mikla orku þyrfti að sprengja vetnissprengju á hverri sekúndu, en þrjár á dag myndu nægja orkuþörf mannkynsins. Af því, sem sagt hefur verið, er ljóst að enn hefur ekki verið fundin leið til þess að tryggja mannkyninu næga orku um ófyrirsjáanlega framtíð. Orkuþörf mannkynsins fer stöðugt vaxandi, en hagnýtanlegur orkuforði jarðar- innar ætti þó að nægja enn í nokkur hundruð ár. Ef dæma má út frá hinni öru tækniþróun síðustu áratuga, virðist lítill efi á því, að fram- búðarlausn verður fundin áður en tími þessi er útrunninn, annaðhvort með nýjum aðferðum til hagnýtingar kjarnorkunnar, ellegar stofnun stórra orkuvera til hagnýtingar sólarljóssins. Island stendur mjög vel að vígi hvað snertir orkulindir. Það ræður yfir einum tvöhundrað- asta hluta af virkjanlegu vatnsafli allrar jarð- arinnar cg öðru eins af hagnýtanlegri orku í hverum og laugum.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.