Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Page 26

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Page 26
18 STUDENTABLAÐ VILHJÁLMUR ÞÓRHALLSSON, stud. jur.: Fullveldi - Þessi tvö hugtök, sem ég nefni hér að ofan, eru í hugum Islendinga svo nátengd hvort öðru, að annars verður ekki getið nema á hitt sé minnzt. Við þau tengja Islendingar sögu alda- langrar frelsis- og fullveldis- baráttu — baráttu, þar sem kynslóð eftir kynslóð lagði fram fræknustu og beztu syni sína. En aldrei þótti frelsi og fullveldi of dýru verði keypt, né til of mikils kostað. Nei, maður kom í manns stað. Bar- áttan hélt áfram. Ekkert lát né undanhald varð á. Merki frels- is og fullveldis var borið fram til sigurs. Mörgum áföngum var náð í sjálfstæðisbaráttunni áður en fullur sigur vannst, stofnun lýðveldis á íslandi 1944. Sá áfangi, sem mikilvægastur verður að teljast í lokasókn- inni að fullu og óskoruðu sjálf- stæði Islands, náðist með sam- bandslögunum frá 1. desember 1918. Með sambandslögunum vorum við komnir yfir einn torfærasta hjallann á langri og ei’fiðri leið. Það er því ekki að ófyrirsynju, að Islend- ingar tengja bjartar og fagrar minningar við 1. desember. Þann dag er okkur ljúft að fagna frelsi og fullveldi. Þá minnumst við með virð- ingu þeirra manna, sem stóðu í stafni í sjálf- stæðisbaráttunni, þeirra manna, sem ótrauðir og eljusamir leiddu þjóðina í gegn um langa og stranga baráttu fyrir sjálfsögðum og eðli- legum rétti hennar til að lifa frjáls og óháð í eigin landi. Jafnframt höfum við oftlega þann dag bundizt heitum um að hvika hvergi fyrir 1. desember seilingaráformum erlends valds til íhlutunar um íslenzk málefni. íslenzkir stúdentar hafa jafnan haldið 1. desember hátíðlegan. Þeir hafa gengizt fyrir hátíðahöldum þann dag, ræðu- höldum, útgáfu blaðs o. fl. A þennan hátt minnast stúdentar og fagna fengnu fullveldi 1. desember 1918. Þá þykir rétt að rifja upp sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Harma lok þjóð- veldisins og hverja skerðingu á sjálfstæði þjóðarinnar. Þá er og getið þess,. sem vel hefur verið gert á liðnum öldum og heiðruð minning þeirra, er lögðu sig alla fram og spöruðu sig hverji, þegar frelsi og til- vera þjóðarinnar var í veði. En hin glæstu afrek feðra okkar mega ekki villa okkur sýn í hrifningu augnabliksins. Okkur dugar ekki að horfa um of á „feðranna frægð“. Við lif- um ekki í fortíðinni. Og ekki megum við heldur gleyma morgundeginum. Honum verðum við alltaf að vera viðbúin. Jafnframt því sem stúdentar minnast og fagna unnum sigrum nú í dag, þykir sjálfsagt að íhuga, hvernig högum þjóðarinnar er kom- ið, hvort sjálfstæði landsins sé tryggt. í dag dvelst fjölmennt lið bandarískra verka- manna og hermanna á Islandi samanborið við fámennið hér. Vopnaburður og hermennska hefur löngum verið Islendingum móti skapi. Þeim mun and- stæðara hlýtur það að vera þeim, að hér dvelst nú erlendur her. Þegar varnarliðið kom hingað á sínum tíma, Vilhjálmur Þórhallsson.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.