Stúdentablaðið - 01.12.1954, Qupperneq 27
STUDENTABLAÐ
19
Stúdentar frá Mennta-
s\ólanum að Laugar-
vatni vorið 1954.
Fremri röð: Jóhannes Sigmundsson,
Hörður Bergmann, Tryggvi Sigur-
björnsson, Unnar Stefánsson, Sveinn
Sveinsson.
Aftari röð: Þórður Kr. Jóhannsson,
Óskar Ólafsson, Víglundur Þ. Þor-
steinsson, Árni Bergmann, Árni
Ólafsson. Þetta eru fyrstu stúdent-
arnir, sem Menntaskólinn að Laugar-
vatni útskrifar.
var það réttlætt með tvísýnum og ófriðvæn-
legum horfum í heimsmálum. Ófært væri að
landið yrði varnarlaust í hugsanlegum átökum
stórveldanna, var sagt til að sætta þjóðina við
hin grimmu örlög, sem hersetan hlýtur óhjá-
kvæmilega að vera.
Það má vera hverjum manni ljóst, hve geig-
vænleg hætta er fólgin í langvarandi dvöl hers-
ins í landinu fyrir allt sjálfstæði þjóðarinnar.
Það fer ekki hjá því að hersetan hefur sín áhrif
á landsbúa.
Er það ekki dálítið ískyggilegt, hve amerískir
siðir og tungutak ryður sér til rúms í daglegu
tali þeirra manna, sem mest umgangast
Ameríkumennina? Eg veit, að margir segja sem
svo, að hinar margumtöluðu innri varnir þjóð-
arinnar séu úr skorðum gengnar, og því sé
ekki nema von, hvernig komið sé. En stað-
reyndin er einfaldlega sú, að varla er við því
að búast að veikgeðja sálir fái staðizt hina ris-
miklu öldu amerískra áhrifa, sem flæðir inn
yfir land okkar.
Hefur það ekki löngum þótt aðalsmerki góðs
Islendings að vilja halda við fornum siðum,
óspilltum erlendis frá? Ber það ef til vill vott
um íhaldssemi að vilja spyrna við fótum?
Spurning dagsins í dag verður: Er ekki kom-
inn tími til að segja herverndarsamningnum
upp? Hvenær verður að teljast það friðvænlegt
í heiminum að hægt sé að segja honum upp?
Er ekki stundin einmitt komin? Þessar spurn-
ingar og aðrar líkar hljóta að rísa nú í dag.
Auðvitað er það mikils um vert að eiga vin-
áttu annarra þjóða. En aldrei má sú vinátta
verða of dýru verði keypt. Hún má ekki verða
á kostnað frelsis og fullveldis landsins. Við
verðum fyrst og fremst að treysta á sjálfa okk-
ur til að vernda sjálfstæði landsins, ekki munu
aðrir gera það betur.
I dag, 1. desember, minnumst við merks
áfanga í frelsisbaráttunni, áfanga, sem ekki
varð náð án mikilla fórna, í baráttunni fyrir
lífi og tilveru íslenzkrar þjóðar.
I dag treystum við heit okkar við frelsi og
sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar, minnugir þess,
ef við hvikum á verðinum um frelsi okkar, þá
er ógæfan vís.
Málið mjúka og ríka
Ástkæra ylhýra tnálið
og allri rödd fegra,
hlíð sem að harni kvað móðir
á hrjósti svanhvitu,
móðurmálið mitt góða,
hið mjúka og ríka,
orð áttu eins og forðum
mér yndi að veita.
Jánas HaUgrímsson.