Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Page 30

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Page 30
22 STÚDENTABLAÐ SIGURÐUR V. FRIÐÞJÓFSSON, stud. mag.: Eigum við oð kaupa okkur frið? Frá 1918 til 1944 var 1. desember þjóðhátíð- ardagur okkar Islendinga. Þann dag, 1918, náði íslenzka þjóðin langþráðu og torsóttu marki í frelsisbaráttu sinni. Til minningar um þann sigur gjörði þjóðin daginn að hátíðisdegi og helgaði hann frelsisbaráttu sinni. 17. júní 1944 vannst lokasigurinn í sjálfstæð- isbaráttunni. Islenzka lýðveldið var stofnað. Islendingar eignuðust nýjan þjóðhátíðardag. En 1. desember gleymdist ekki og mun aldrei gleymast meðan íslenzk saga er til. Islenzkum stúdentum, arftökum þeirra manna, er mest og bezt höfðu barizt fyrir íslenzkum málstað í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, var falið að annast hann. Þeir gerðu hann að sínum há- tíðisdegi. A síðustu árum hafa heyrzt um það raddir meðal stúdenta, að 1. desember eigi ekki leng- ur að helga sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Stúdentar eigi að helga hann sérhagsmunamál- um sínum, gera hann að fjáröflunardegi, merkjasöludegi. Róttækir stúdentar hafa jafn- an staðið manna fastast gegn slíkri vanhelgun dagsins. Þeir hafa aldrei svikizt undan merkj- um í baráttunni fyrir bættum hag stúdenta, en þeir gera sér ljóst, að annað er nauðsynlegra, að stúdentar eiga við fleiri skyldur að rækja en sjálfa sig. 1. desember er órjúfanlega tengdur sjálf- stæðismáli okkar Islendinga. Hann á að vera og má aldrei verða annað en baráttudagur fyrir sjálfstæðri tilveru þjóðarinnar. Og hann á að vera annað og meira en dagur minninga. Hann verður á hverjum tíma að helgast vandamálum líðandi stundar. Ekki er nóg að vita hvar skór- inn kreppti að fyrir hundrað árum. Stúdent- um sæmir ekki annað en horfast í augu við staðreyndir og þeim ber skylda til að leggja ótrauðir til baráttu, hvað sem í húfi er. Annars væru þeir verfeðrungar. Róttækir stúdentar gera sér ljóst hvaðan ís- lenzku stjálfstæði stafar mest hætta í dag. Þeir vita, að hin erlenda herseta í landinu er sú meinsemd, er skera verður burt, ef þjóðin á að geta lifað heilbrigðu menningarlífi. I kjöl- far hersetunnar streyma erlend áhrif inn í landið, efnahagsleg og andleg, og gegn þeim verður að berjast og það til sigurs. Undir forustu róttækra hefir meirihluti stúdenta nú tekið höndum saman og samein- ast til baráttu fyrir brottfluningi hins erlenda hers úr landinu. Stúdentar með ólíkar skoð- anir og lífsviðhorf hafa látið forn og ný deilu- mál víkja til hliðar fyrir þessu höfuðmáli. Það er nauðsynlegra og æðra öllu dægurþrasi. Og 1. desember helga stúdentar þessu máli svo sem vera ber. En þrátt fyrir þá einingu, sem náðst hefir, standa alltof margir stúdentar enn aðgerða- lausir utan þessarar baráttu, vitandi vits. Þótt þeir sjái hættuna, sem þjóðinni er búin og skynji nauðsyn skjótra aðgerða, kjósa þeir af ýmsum annarlegum ástæðum að sitja hjá. Sumir ganga jafnvel svo langt, að þeir ljá bin- um erlenda málstað lið. Opnum augum svíkja þeir sína eigin þjóð í tryggðum. Hvað veldur? Sjúklegt hugarfar, ofmat eigin hagsmuna og stundar gæða. Það er nauðsynlegt, að þjóðin geri sér grein fyrir því, að svo er málum komið, að ýmsir af uppvaxandi menntamönnum hennar og verð- andi andlegum leiðtogum, þora ekki að flíka

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.