Stúdentablaðið - 01.12.1954, Qupperneq 46
38
STÚDENTABLAÐ
ÁnnéSI Háskólons
Háskóli íslands
var settur fyrsta vetrardag að viðstöddum forseta
íslands, fulltrúum erlendra ríkja og fleiri tignarmönn-
um.
Hátíðin hófst með því, að Dómkirkjukórinn og Guð-
mundur Jónsson fluttu kafla úr háskólakantötu Páls
ísólfssonar við háskólaljóð Þorsteins Gíslasonar
undir stjórn tónskáldsins. Síðan flutti rektor
magnificus, dr. Þorkell Jóhannesson, setningarræðu
sína. Forseti heimspekideildar, dr. Einar Olafur Sveins-
son, kunngerði, að deildin hefði sæmt Árna Friðriks-
son dokorsgráðu. Að lokum ávarpaði rektor nýstúdenta
og afhenti þeim háskólaborgarabréf. Er vonandi að
það verði gert á sal eftirleiðis.
Enginn vísindalegur fyrirlestur var fluttur á háskóla-
hátíðinni að þessu sinni.
Rektorsskipti.
í haust lét dr. Alexander Jóhannesson af störfum
sem rektor háskólans, en við tók dr. Þorkell Jóhannes-
son. Dr. Alexander hefur verið rektor oftar og lengur en
nokkur annar maður. Liggja til þess þær ástæður, að
hann hefur reynzt allra manna ötulastur í baráttunni
fyrir vexti og viðgangi háskólans, og honum er manna
mest að þakka, hve mörg og stór spor hafa verið stigin
á undanförnum árum til að skólinn gæti sinnt með
sóma hlutverki sínu bæði sem vísinda- og kennlustofn-
un. Hinn nýja rektor bjóða stúdentar velkominn til
starfa.
Heiðursdoktorskjör.
2. júní s. 1. samþykkti guðfræðideild með samþykki
háskólaráðs, að sæma biskupinn yfir íslandi, Ásmund
Guðmundsson nafnbótinni doctor theologiae honoris
causa.
15. okt. s. 1. samþykkti heimspekideild að sæma Árna
Friðriksson mag. scient nafnbótinni doctor phil. honoris
causa í viðurkenningarskyni fyrir afrek hans á sviði
fiskirannsókna.
Doktorspróf.
12. des. s. 1. varði Guðni Jónsson skólastjóri doktors-
ritgerð sína, „Bólstaðir og búendur í Stokkseyrar-
hreppi‘.‘ Andmælendur af hálfu heimspekideildar voru
próf. dr. Þorkell Jóhannesson og dr. Björn K. Þór-
ólfsson.
Bjarni Jónsson læknir flutti doktorsvörn 14. febr.
s. 1. Nefnist ritgerð hans: „Studies on Hibb’s Spine
Fusion in the Treatment of Scolosis“. Andmælendur af
hálfu læknadeildar voru próf. dr. Snorri Hallgrímsson
og dr. Gísli Fr. Petersen.
Halldór Halldórsson dósent flutti doktorsvörn 12.
júní s. 1. Heitir ritgerð hans: íslenzk orðtök. Andmæl-
endur af hálfu heimspekideildar voru prófessorarnir
dr. Alexander Jóhannesson og dr. Einar Ól. Sveinsson.
Próf. Gylfi Þ. Gíslason varði doktorsritgerð við há-
skólann í Frankfurt í september. Heitir ritgerðin:
Die Entwiklung und Problematik der islandischen
Wáhrungspolitik und i'hre mitschaftlichen Grundlagen.
Prófessor honoris causa.
Forseti íslands hefur að tillögu menntamálaráðuneyt-
isins sæmt Pétur Sigurðsson háskólaritara prófessors-
nafnbót. Hefur Pétur gegnt starfi háskólaritara í aldar-
fjórðung og jafnframt unnið að fræðistörfum.
Stúdentaráðskosningar
fóru fram 30. okt. s. 1. Var kosningabaráttan hörð og
komu 7 blöð út fyrir kosningar. Hámarki náði kosn-
ingahríðin kvöldið fyrir kjördag, en þá var haldinn
framboðsfundur. Úrslit kosninganna urðu þau, að A-
listi, borinn fram af Félagi frjálslyndra stúdenta og
Stúdentafélagi lýðræðissinnaðra sósíalista hlaut 119 at-
kvæði og tvo menn kjörna, Skúla Benediktsson, stud.
theol., og Vilhjálm Þórhallsson, stud. jur., B-listi, listi
Þjóðvarnarfélags stúdenta hlaut 80 atkvæði og einn
mann kjörinn, Björn Ólafsson, stud. polyt., C-listi frá
Félagi róttækra stúdenta hlaut 125 atkvæði og kjörna
Jón Böðvarsson, stud. mag. og Árna Björnsson, stud.
mag. D-listi frá Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta
hlaut 283 atkvæði og kjörna Sverri Hermannsson, stud.
oecon., Jónas Hallgrímsson, stud. mag., Ragnhildi
Helgadóttur, stud. jur. og Ingólf Guðmundsson, stud.
theol.
Hið nýkjörna stúdentaráð skipti með sér verkum
og var Skúli Benediktsson kosinn formaður, Jónas
Hallgrímsson ritari og Árni Björnsson gjaldkeri.
Rússar
innrituðust í haust sem hér segir: Guðfræðideild 11,
læknisfræði 38, lögfræði 12, viðskiptafræði 27, íslenzk
fræði 12, heimspeki og B. A. 72 og verkfræði 10. Sam-
tals eru rússar því 182.
Convivium depositurorum
fór fram 25. okt. s. 1. Magister bibendi var próf.
Pétur Sigurðsson háskólaritari. Dr. Sveinn Þórðarson
skólameistari flutti ræðu, María Markan söng, Björn
Þórhallsson, stud. oecon., fagnaði rússum, en Othar
Hansson, stud. oecon. þakkaði fyrir þeirra hönd.
Stúdentafélag Háskólans stóð fyrir gildi þessu, svo
sem venja er til.