Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 12

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 12
2 STÚDENTABLAÐ KJARTAN J. JÓHANNSSON alþingism.: V Akadmtísfít frdsf Við eigum að halda akademísku frelsi, þótt ljóst sé, að frjáls skóli eins og Háskóli íslandi geri meiri kröfur bæði til prófessora og stúdenta heldur en skóli, sem væri eins konar framhalds barnaskóli. Á síðasta alþingi voru endurskoðuð og færð saman í einn lagabálk þau lög, er áður giltu um háskólann. Var sú skoðun ríkjandi, að háskólinn ætti að vera eins frjáls og óháður ríkisvaldinu og auðið væri. Þá varð sú skoðun einnig ofan á, að hafa frelsi stúdenta sem mest, varast a. m. k. að setja í lögin frekari hömlur á frelsi þeirra en gilt höfðu. Þótt þetta væri afráðið á alþingi eftir miklar rökræður og vand- lega íhugun, er málið vafalaust tilfinningamál. Flest okkar hafa fundið til skyldleikans við forfeð- ur okkar, sem fluttust hingað til íslands til þess að njóta meira frelsis, en þeir áttu kost á í sínum fyrri heimkynnum. Ég man líka eftir gleði okkar, er við kynntumst frelsinu í háskólanum eftir prísundina, sem okkur fannst við hafa verið í í menntaskólanum. Ég skal ekki bera á móti því, að það tók suma okkar nokkurn tíma að átta okkur á því, að erfitt var með frelsið að fara, og læra þau vinnubrögð, sem okkur hentuðu bezt til þess að ná árangri. Ég er viss um, að þetta var dýrmæt reynsla, og er ekki í vafa um, að hún gerði okkur færari um að ráða fram úr þeim vanda og taka á okkur þá ábyrgð, sem lífið hefur síðan fengið okkur að glíma við. Flestir lærðu brátt að leggja svo mikið kapp á námið, að árangur hefði a. m. k. ekki getað orðið betri með neinum þvingunum. Þegar við hófum læknanám, var okkur sagt, að við værum allt of mörg; ef við hættum ekki af sjálfsdáð- um, yrði að setja einhverjar takmarkanir til þess að koma í veg fyrir offjölgun lækna. Sem betur fór réðu bjartsýnni og framsýnni menn því, að aðsókn að deildinni var ekki heft. Annars hefði orðið hér læknaskortur, eða við hefðum a. m. k. ekki getað verið án þeirra lækna, sem farið hafa til útlanda til framhaldsnáms. Frelsið hefur þarna orðið okkur til góðs, því að hinir mörgu læknar, sem sótt hafa framhaldsnám út yfir pollinn, hafa ekki aðeins gert sjálfa sig hæfari, heldur hafa þeir bætt menntun lækna og alla læknis- þjónustu hér á landi. Háskóli íslands hefur lengi haft lengra samfellt sumarleyfi en flestir aðrir háskólar. Þetta hefur auð- veldað námið fjárhagslega fyrir marga stúdenta, og í kaupbæti hafa þeir fengið náin kynni af atvinnulífi þjóðarinnar til sjós og lands. Kynni, sem hafa oft síðar komið að miklu gagni. Að öðru leyti hefur há- skólinn ekki farið út á þá braut að auðvelda stúdent- um að stunda vinnu með náminu, eins og sumir er- lendir háskólar gera, t. d. í Bandaríkjunum. Sumir stúdentar hafa samt af fjárhagsástæðum neyðzt til að nota sér það frelsi, sem háskólinn hefur veitt þeim, til þess að haga námi sínu öðruvísi en þeir helzt hefðu kosið. Það má alls ekki hindra, að þeir, sem með at- orku, dugnaði og sjálfsafneitun fara þá leið, geti það. Ég vil ljúka þessum orðum með þeirri ósk, að há- skólinn megi ávallt vera frjáls skóli með frjálsum nemendum.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.