Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 24

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 24
14 STÚDENTABLAÐ Það man eí kýrín, að kálfur hún uar Enn hefur háskólaráð neitað stúdentum um leyfi til að halda áramótafagnað í anddyri háskólans. A fundi þess 15. nóvember s.l. var m. a. rætt um stúd- entagarðavandamálið, skuldir þær, sem hvíla á Görð- unum, og hátt verð á fæði í matsölu Garðanna. Var háskólaráð á einu máli um það, að nauðsynlegt væri að létta skuldunum af Görðunum og reyna að lækka nokkuð fæðiskostnað stúdentá, en þetta verður ekki gert með orðum einum, til þess þarf fé. Stúdentar vilja efna til happdrættis til ágóða fyrir Garðana. Hét háskólaráð fullum stuðningi sínum í því efni, en þar kemur fleira til. Fá þarf gjaldeyris- og innflutningsleyfi fyrir happdrættisvinningi, en það hefur ekki fengizt enn og engin vilyrði um það. Allir vita, að happdrætti er engan veginn örugg fjárafla- leið. Samt efast stúdentar ekki um, að þeim muni vel takast sitt happdrætti, fái þeir það, sem til þarf. En mál þessi hafa beðið nógu lengi og ógerlegt um það að spá, hvenær happdrættið kann að komast af stað. Þess vegna bar fulltrúi stúdenta í háskólaráði þar fram þá tillögu, að stúdentum verði veilt leyji til þess að halda áramótafagnað í anddyri háskólans. Ágóða af honum skyldi varið til að greiða niður skuldir Garðanna eða til lœkkunar á fœðiskostnaði þar. Mið- að við hagnað þann, sem stúdentar höfðu á sínum tíma af samkomum þessum, er óhætt að áætla hagn- aðinn nú a. m. k. 40—60 þúsund krónur. Þarna er stúdentum auðveld leið til að koma einhverju af mál- um sínum fram háskólanum gjörsamlega að kostn- aðarlausu. En háskólaráð lætur sér sæma að loka henni án þess að benda á neina leið aðra. Urðu þrír háskólaráðsmenn til þess óhæfuverks að synja þessu erindi stúdenta, þrír sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, en fulltrúi stúdenta einn greiddi hagsmunum stúd- enta atkvæði. Rök andstæðinga stúdenta í máli þessu voru af ýmsu tagi. Fagnaðurinn átti jafnan að hafa farið illa fram, en að vísu hefðu stúdentar ekki átt sök á því, heldur alls konar lýður utan úr bæ. Allt of mörg- um hefði jafnan verið hleypt inn á fagnaðinn, en auðvelt ætti að vera að koma í veg fyrir það með sæmilegri dyravörzlu. Og krefja má gesti um stúd- entsskírteini við inngöngu, svo að bæjarlýðurinn vaði ekki inn öllum til ama. Að vísu er það flestra mál, er- komu í áramótafagnað stúdenta fyrrum, að skemmtilegri fagnaði hafi þeir sjaldan setið, en hverjum dettur í hug að trúa því? — Því var borið við, að gólf hefðu skemmzt af sígarettustubbum. Geta allir skoðað þær miklu skemmdir með því að líta á gólfin í dag. Auk þess reykja stúdentar tugum og hundruðum saman á öllum göngum háskólans daglega og sýnilega ráð fyrir því gert, því að ösku- bakkar eru í hverju horni. — Þá var því borið við, að hvergi sé næg fatageymsla í háskólanum fyrir yfir- hafnir allra þeirra, sem koma myndu á áramóta- fagnað. Einhvern veginn réðu stúdentar áður fram úr því, og var þó „eyðimerkurganga stúdentaráðs" haf- in, skyldi ekki enn mega finna einhverja smugu fyrir föt? — Ekki andmæltu menn því, að unnt væri að bægja frá slysahættu þeirri, er stafar af hálum stigum og lágu handriði. En hvað réði andstöðu þrímenninganna? Það skyldi þó aldrei hafa verið ótti, ótti við andúð bind- indismanna? Engin orð voru að því leidd, en þungur hefur áróður þeirra löngum verið stúdentum og ekki alltaf einkennzt af einlægni eða sannleiksást. Þeir telja það vansæmd fyrir háskólann, ef þar er haft vín um hönd. Má minna þá á það, að við alla erlenda há- skóla þykir sjálfsagt, að stúdentar haldi alls konar hátíðir, skemmtanir og jafnvel karnívöl í húsakynn- um skólanna. Hefur siður þessi tíðkazt frá alda öðli og aldrei heyrzt, að virðingu háskólanna hafi með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.