Stúdentablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 44
34
STÚDENTABLAÐ
Stúdentaráð skipti svo með sér verkum, að Birgir ísl. Gunn-
arsson var kjörinn formaður, Leifur Jónsson ritari og Bogi
Melsted gjaldkeri.
Rússagildi
var haldið sunnudaginn 10. nóvember í Tjarnarcafé undir gær-
unni Árshátíð Stúdentafélags Háskólans. Magister bibendi
var cand. juris Ævar R. Kvaran. Einar Magnússon cand.
theol. flutti ræðu, Emil R. Hjartarson stud. med. fagnaði
rússum, en Ólafur B. Thors stud. jur. þakkaði af þeirra hálfu
hollar bendingar. Kristinn Hallsson óperusöngvari skemmti
með söng og tældi síðan sjálfan magister bibendi til að syngja
með sér gluntasöngva. Þá söng Sigurður Þórarinsson forsöng
í kvæði því, er hann orti á sumarnóttu norður í Mývatnssveit
fyrir löngu um allt það, sem felst í hjarta hans.
Skemmtanlr
hinar helztu voru áramótafagnaður, er haldinn var með Stúd-
entafélagi Reykjavíkur að Hótel Borg, og sumarfagnaður,
haldinn að Hótel Borg. Síðasta vetrardag sá stúdentaráð um
útvarpsdagskrá.
IV. heimsmeistaramót
stúdenta í skák var haldið í Reykjavík 11.—27. júlí s.l. Skák-
sveitir stúdenta frá 14 löndum tóku þátt í mótinu, og varð
sveitin frá Sovétríkjunum efst. Islendingar urðu áttundu í
röðinni. Skákstjóri var Pétur Sigurðsson háskólaritari, en
mótssjóri Grétar Haraldsson stud. jur.
í október í fyrra var skipuð framkvæmdanefnd til undir-
búnings mótinu og var hún þannig skipuð: Jaroslaw Sajtar,
fulltrúi FIDE. Kurt Vogel, fulltrúi IUS. Baldur Möller, full-
trúi Ríkisstjórnar íslands. Árni Snævarr, fulltrúi Bæjarstjóm-
ar Reykjavíkur. Pétur Sigurðsson, fulltrúi háskólaráðs. Jón
Böðvarsson stud. mag., fulltrúi Stúdentaráðs. Bjarni Felixson
stud. philol., fulltrúi Stúdentaráðs. Þórir Ólafsson stud.
oecon., fulltrúi Skáksambands íslands. Friðrik Ólafsson stud.
jur., fulltrúi Skáksambands íslands.
Pétur Sigurðsson var kosinn formaður nefndarinnar, en
Þórir Ólafsson ritari.
Rússar
innrituðust í haust sem hér segir: í guðfræðideild 3, lækna-
deild 42, laga- og hagfræðideild 42 (í lögfræði 24, í viðskipta-
fræði 18), heimspekideild 78 (þar af 6 í íslenzk fræði), verk-
fræðideild 14. Eru Rússar því alls 178, en stúdentar innritaðir
í Háskólann eru nú 766.
Vinnumiðlun
stúdenta starfaði enn. Var kjörin nefnd til að sjá um hana, og
voru í henni Jóhannes Iíelgason stud. jur. formaður, Magnús
Sigurðsson stud. jur. ritari og Auðunn Guðmundsson stud.
jur. Leysti nefndin vanda flestra þeirra stúdenta, sem til
hennar leituðu, en fleirum hefði hún getað útvegað sumar-
atvinnu en þess óskuðu.
Stúdentakórinn
virðist loksins lifnaður við. Nokkrir áhugasamir söngmenn
komu saman í haust og ákváðu að endurreisa stúdentakórinn.
Voru Unnar Stefánsson stud. oecon., Bolli Þ. Gústavsson stud.
theol. og Skúli Thorarensen stud. jur. kosnir í bráðabirgða-
stjórn kórsins. Söngstjóri hefur verið fenginn dr. Hallgrímur
Helgason tónskáld, og háskólaráð hefur veitt kómum nokkurn
fjárstyrk. Söngæfingar eru þegar hafnar, og fá stúdentar
væntanlega að heyra í kómum eftir jól.
Utanfarir
Bjarni Beinteinsson stud. jur., fyrrv. formaður stúdentaráðs,
sat reglulegan fund norrænna stúdentaformanna, er haldinn
var í Helsinki í byrjun febrúarmánaðar s.l. Sat hann og fund
framkvæmdanefndar IUS í Prag í marz.
Benedikt Blöndal stud. jur. og Kristján Baldvinsson stud.
med. sátu aukafund norrænna stúdentaformanna í Amster-
dam í byrjun september og 7. alþjóðaráðstefnu stúdenta
(ISC), er haldin var í borginni Ihadan í Nígeríu í september.
Stúdentaskipti voru engin á árinu.
Ferðaþjónusta stúdenta
Ferðaþjónustunni bárust fjölmargar fyrirspumir. Fóm
nokkrir stúdentar utan í sumar á vegum hennar, en margir
þeirra, sem til ferðaþjónustunnar leituðu, höfðu hug á að
njóta aðstoðar hennar næsta ár.
Kristmann Eiðsson stud. jur. og Þórir Einarsson cand.
oecon. veittu Ferðaþjónustunni forstöðu s.l. sumar.
Sendikennarar
Þessir sendikennarar erlendra háskóla starfa hér: Ivar Org-
land cand. philol. í norsku, Bo Almqvist fil. mag. í sænsku,
Erik M. B. Sþnderholm cand. mag. í dönsku, Hermann Höner
í þýzku, Hjalmar 0. Lokensgard í ensku.
Breytingar á kennaraliði
Með nýju háskólalögunum voru stofnuð ný prófessors-
embætti sem hér segir: í eðlisfræði við verkfræðideild, var
Þorbjörn Sigurgeirsson skipaður til þess starfa. í lyfjafræði