Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Page 16

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Page 16
6 STÚDENTABLAÐ fjarlæg mörk. Hinn rótgróni, evrópskri skilningur, að ríki beri ekki ábyrgð á neinu nema „hagsmunum sínum“, hefur í þjóðréttarfræðum og heimspeki síð- ustu alda losað sig við hvers kyns kröfur um tillit til annarra, æðri raka. í framkvæmd er þetta að jafn- aði falið í flugeldaeimi fagurra orða, nema á hættu- og styrjaldartímum. Þá kemur það fram grímulaust. Alræðishreyfingar og alræðisstjórnir nútímans standa fast á rótum slíkra viðhorfa, sem vestrænt lýðræði hefur þróað með sér. Sú pólitíska frelsishug- sjón, sem fæddist í blóði frönsku byltingarinnar, var borin í kufli þeirrar sannfæringar, að ríkisvaldið ætti að hlutast í öll mál þegnanna, andleg sem líkam- leg, því að ríkið var „skynsemin“ í framkvæmd. Auguste Comte dreymdi um það engu síður en Karl Marx, að lögmál þjóðfélagsins, sem væru í rauninni jafnvís og náttúrulögmálin, yrðu hamin og mann- félagið gert að sjálfgengri vél. Rationalísk vélhyggja er einkenni tímans og fer hraðvaxandi. Og nú eru „óvenjulegir tímar“ vegna milliríkjaátaka, sem vant- ar aðeins herzlumun til þess að verða styrjöld. Al- ræðisríki er sjálfu sér samkvæmara í vélhyggju og einskorðun við necessiías. Þar eru yfirburðir alræðis fólgnir. Lýðræðisþjóðir hryllir við tillitsleysi og járn- kaldri hörku slíks ríkisvalds, en vita í rauninni ekki sjálfar, á hvaða grunni þær standa né hvert stefnu- mark þeirra er. Og meðan þær stara á urðarmána og aðra váboða í austri, án þess að vita til átta um já- kvæð meginmið í þjóðfélagsháttum, réttarafstöðu og stjórnmálalegri hegðun, vex ríkisvélin, ekki sízt í skjóli þess valds og þeirra framkvæmda, sem styrj- aldarhættan gerir nauðsynlegt. 011 þjóðfélög tæknialdar stefna í sömu átt. Alræðis- ríkin hafa aðeins hrosshófinn beran, hann er þeirra andlit. Hvað er framundan? Demokratí, teknokratí eða demónokratí, lýðræði, vélræði eða drýsilræði, ríki, þar sem valdið táknar frelsi en ekki kúgun, mannfélag en ekki vélfélag, þar sem manneskjan er fyrst, ekki maskínan, þar sem mannlegir yfirburðir eru frjálsir en ekki andsetnir, blessun en ekki bölvun ? IV Frelsi heyrir ábyrgð og ábyrgð frelsi. Frelsi getur aldrei verið það að komast undan öllum lögum, held- ur hitt að fara að réttum lögum. Akademískt frelsi t. d. er ekki frjálsræði til hvers, sem vera skal, ekki að mega sofa, þegar kennsla fer fram, lesa þegar maður er „upplagður“ og slæpast endranær. Aka- demískt frelsi er frelsi til hugsunar, rannsókna og tjáningar, sem lýtur engu nema rökum vits og sam- vizku. Frjáls er ekki sú hugsun, sem er beizlislaus ótemja, heldur hin, sem er tamin í skefjum einbeiting- ar og ábyrgðar fyrir hugsjón sannleikans. Frelsi er siðgæðislegt hugtak. Hvar, sem gripið er niður í umræðum um það, verða fyrir siðgæðisleg viðhorf. En það leiðir aftur af sér spurninguna um það, hver maðurinn sé, hver séu innstu rök tilveru hans, hvaða miðum líf hans lúti, þegar dýpst er skyggnzt. Frelsi er tómt orð, unz spurt er: Frelsi til hvers? og þeirri spurningu svarað. Ábyrgð er tómt orð, unz svarað er, fyrir hverju ábyrgð skuli borin. Nútíminn miðar í orði kveðnu við manninn: Hann á að vera frjáls til þess að þroska mökuleika sína og ábyrgðin er fyrir honum, velferð hans, gildi hans. En hver er svo maðurinn? P. A. Sorokin, prófessor í þjóðfélagsfræði við Harvard-háskóla, segir: „Sál- fræði nútímans kennir, að maðurinn sé dýr, sem aðal- lega stjórnist af meltingu sinni og kynkirtlum .. . Af- leiðing slíkrar skoðunar er augljós. Ef maðurinn er ekkert annað en ónáttúrlegt dýr, hví skyldum vér þá virða hann? Hví skyldi ekki útrýma honum, ef það þykir henta?“ Það er þessi „vísindalegi“ skilningur á manninum, þessi dýrafræðilega lífsskoðun, arftaki guðfræðilegra skoðana, sem menn eru svo bróður- lega einhuga um að útrýma á öld sundrungarinnar, sem er ginnungagapið undir fótum, hemað af skæni innantómra orða. Vér tölum um andlegt frelsi. En ef maðurinn er dýr, þá er hann ekki andi og hefur engu frelsi að farga. Víðkunnur vísindamaður, G. Ström- berg, segir: „Ég geng svo langt að segja, að hafi mað- urinn ekki ódauðlega sál, sé þrælaþjóðfélagið bezta þjóðskipulagið, því að þá er hlutverk ríkisins það eitt að létta tilveru vora sem dýra, sjá um, að vér höfum fóður og þægilega aðbúð.“ Maðurinn er andi. Því er hann mennskur, því er hann frjáls, því afneitar hann sjálfum sér, er hann gefst upp fyrir nauðung eða prettast um ábyrgð sína. Og mannsandinn bendir út fyrir sjálfan sig. Þegar hann er með sjálfum sér, veit hann, að frelsi hans stendur rótum í æðri veruleik, sem er óháður ákvæð- um efnislögmála, og að hann er í ábyrgri afstöðu til æðri vilja. Vélriðin siðmenning nútímans hefur geng-

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.