Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 17

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 17
STÚDENTABLAÐ 7 BENEDIKT BLÖNDAL stud. jur.: Rabbað víð Lúðvig Guðmundsson Daginn eftir háværasta fertugsafmæli á þessari öld gekk ég á fund LúSvígs Guðmundssonar skólastjóra þeirra erinda að rabba við hann. Ég var varla seztur, er Lúðvíg tók upp tóbaksdós- ir.-----„Þér kunnið auðvitað ekki að taka í nefið?“ -----og drjúgur til svarsins dró ég upp baukinn og sýndi honum.-------„Ég lærði þá list í sjötta bekk.“ Lúðvíg sló mér strax við. Hann lærði listina í öðr- um bekk! En tilefnið var, að þáverandi rektor Menntaskólans festi upp dekret í skólaganginum, þess efnis, að nemendum væri stranglega bannað að reykja á skólans lóð. Um neftóbak stóð þar ekkert. Næsta morgun mættu 18—20 annarsbekkingar búnir dósum og baukum og---------„mikið var hnerrað í 2. bekk þann dag. Síðan höfum við flestir tekið í nefið,“ sagði Lúðvíg. Talið barst nú að stúdentsárum Lúðvígs. Var hann viðriðinn stofnun stúdentaráðs og flest störf þess fyrstu 5—6 árin. Atti hann drýgstan þátt í stofnun hinnar merku og sögufrægu Mensa academica haust- ið 1921. ið rösklega fram í því að myrða þessa æðstu frelsis- vitund mannsandans. Skáldið F. Fridell lætur eina af persónum sínum, vélamann í verksmiðju, gera upp- reisn gegn vélinni, „eina virkilega guðdóminum á vorri tíð, sem gefur fólki hús og heimili, en slítur jafnframt hið mannlega út úr þeim.“ Oss stoðar ekki að gera slíka uppreisn. En vér verð- um að sigra vélina og vélgeng örlög. Til þess þurfum vér að vakna til menns/crar tilveru að nýju, til nýrrar vitundar um andleg rök og staðreyndir, sem liggja dýpra en þarmar og kynkirtlar, ofar en jörðin og hnettirnir, sem geimförin eiga að ná. Der hersker en ánd med evig magt, pröv kun pá at byde den trods! I grus mátte guldpaladsets pragt, i stöv mátte Neros koloss. (Henrik Ibsen). --------„Mensa“ var forum okkar stúdenta. Þar borðuðum við og drukkum kaffið okkar. Þar var rabbað og rifizt um allt milli himins og jarðar. Ekk- ert mannlegt var okkur óviðkomandi! Þar var oft deilt hart; þar sættust menn líka heilum sáttum og þar var stofnað til ævilangrar vináttu. En „mensa“ var ekki aðeins vettvangur okkar hinna yngri. Eldri stúdentar, bæði bæjarmenn og utan af landi, voru þar tíðir gestir, virðulegir klerkar, dómarar og lækn- ar; — þar urðu allir ungir. — í upphafi var stúdentaráðið ópólitískt. Niu stúdentar átti sæti í því, 2 frá hverri háskóladeild- anna fjögurra. Oddamaður fyrsta stúdentaráðsins var kjörinn við almenna atkvæðagreiðslu allra stúd- enta. Síðan var oddamaður valinn af fráfarandi stúd- entaráði og úr þess hópi. Með því var tryggt, að ávallt sæti einn maður í stúdentaráði, er kunnugur var störfum þess, og sköpuðust þannig tengsl milli stúdentaráðanna frá ári til annars.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.