Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Page 18

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Page 18
8 STÚDENTABLAÐ Háskólinn, en þó fyrst og fremst hagsmunamál stúdenta, voru baráttumál okkar. Pólitíkina diskuter- uðum við á „mensa“ og í stúdentafélögunum, Stúd- entafélagi háskólans og í Stúdentafélagi Reykj avíkur. — Þér voruð formaður Stúdentagarðsnefndarinn- ar? — Já, fyrstu fimm árin, en þá tók ég við stjórn Alþýðuskólans á Hvítárbakka. — Hvernig brást almenningur við Garðmálinu? — Þegar í byrjun var okkur ljóst, að til þess að ná eyrum og aurum almennings var nauðsynlegt að gera þetta mál, — og önnur mál, sem við höfðum á prjónunum, — að lands- og þjóðarmálum. Haustið 1922 hófum við því mikla áróðursherferð, sem stóð árum saman. Við höfðum forystu um hátíðahöld á fullveldisdeginum, 1. desember. Við stofnuðum til voldugs happdrættis til ágóða fyrir stúdentagarðinn. Kjörorðið var: Leggið stein í stúdentagarðinn! í maí 1923 gerðum við út leiðangur umhverfis land. Við fórum með „Esju“ gömlu, sem þá var glæný, fyrstu strandferð hennar, ef ég man rétt. Mestan hluta leiðar vorum við þrír saman, núverandi rektor háskólans var einn í hópnum. Allir vorum við brenn- andi í andanum! „Esja“ sleikti upp ótal hafnir, smá- ar sem stórar. Alls staðar boðuðum við akademikera og annað fínt fólk til fundar við okkur og fluttum hinn nýja fagnaðarboðskap. — -----Margt fleira ræddi ég við Lúðvíg um starfsemi stúdenta á þriðja tugi aldarinnar, en hann kom þar víða við, svo sem kunnugt er. Hann stofnaði t. d. Upplýsingaskrifstofu stúdenta og stýrði henni í 17 ár, fyrst 1920—1927 og síðar í tíu ár, eftir að hann fluttist aftur til bæjarins 1938. Saga upplýsinga- skrifstofunnar er merkileg saga, en hún er enn óskráð. Með henni opnaði Lúðvíg íslenzkum stúd- entum námsleiðir vítt um lönd, en fram til þess tíma höfðu nálega allir íslenzkir stúdentar, sem utan fóru, lagt leið sína til Hafnar og hafnað þar. Til þess að ná marki sínu fór Lúðvíg margoft utan og ferðaðist um mörg lönd, heimsótti háskóla og aðrar mennta- og fræðastofnanir, aflaði sambanda og viðaði að sér kynstrum af alls konar upplýsandi gögnum. — Lúð- víg stofnaði lánasjóð stúdenta hinn eldra, með fimm- tíukalli, sem hann sníkti út úr móður sinni. Sá fimm- tíukallinn bar ríkulegan ávöxt. Um síðir manna ég mig upp til að víkja að ýmsu, er mér nú liggur þungt á hjarta. Og mig langar að heyra álit Lúðvígs á akademísku frelsi, hvort honum finnist rétt vera að setja á stúdenta leikfimiskyldu, tímasóknakvaðir, misserapróf og allar þær ógnir aðr- ar, sem við látum okkur detta í hug, að þessir ótta- legu prófessorar hugsi um dag út og dag inn, þegar þeir ættu að sitja við að semja kennslubækur eða stunda fræði sín. — Hvað álítið þér um fimleikaskyldu stúdenta? — Mér hefur raunar skilizt, að þessari skyldu hafi aftur verið aflétt, a. m. k. að einhverju leyti. En hvað sem því líður, tel ég enga skyldukvöð eiga að ríkja hér. Stúdentar eiga að vera frjálsir að því að stunda eða stunda ekki hverja þá íþrótt, er vera skal. Allur þorri stúdenta hefur stundað leikfimi í tug ára sem skyldugrein, áður en þeir koma í háskólann. Hér morar allt í íþróttafélögum. Látum þau taka við þeim stúdentum, sem áhuga hafa á íþróttum. Þar getur hver valið sér vettvang við sitt hæfi. — Og svo er það þetta spursmál, sem brennur mér á vörum: Er rétt að setja á stúdenta tímasóknarkvað- ir og misserapróf, eins og einhverjum prófessoranna mun vera ofarlega í huga? — Vitanlega verður að gera ráð fyrir því, að sér- hver stúdent, sem innritast í háskólann til náms i ákveðinni sérgrein, meini það og ætli að stunda þá hina sömu sérgrein. Um tilhögun náms í sérgreininni verður að fara í meginatriðum skv. eðli og sérkröf- um greinarinnar. Liggur t. d. í hlutarins eðli, að undirbúningsnámið í læknisfræði, þ. e. efnafræði- námið og þá fyrst og fremst hið verklega, krefst 100% tímasóknar. Byrjunarnámið í öllum deildum hlýtur einnig að gera þá kröfu til stúdenta, að þeir sæki fyrirlestra og æfingar vel og reglulega. Þegar lengra líður á námið og sjálfstætt starf að sérefnuin vex, getur tímasóknarkvöð verið vafasamara fyrir- tæki. — Annars held ég, að þið stúdentar þurfið ekki að óttast þessa grýlu. Enginn prófessor, sem er góður kennari, prédikar yfir auðum bekkjum. Hjá honum er aldrei messufall. Hjá prófessor Haraldi Níelssyni var aldrei messufall í háskólanum í mínu ungdæmi. Nú, — en ef einhver prófessor í einhverjum háskóla skyldi nú, — þrátt fyrir gáfur, lærdóm og vísinda- afrek, — vera svo lélegur kennari, að fáir eða engir stúdentar vilji á hann hlýða, ja, hvað á þá að gera? Með tímasóknarskyldu væri ekkert áunnið og enginn

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.