Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Page 28

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Page 28
18 STÚDENTABLAÐ HÖRÐUR BERGMANN stud. mag.: Félag róttækra stúdenta Stúdentar og sjálfstaeðismálið Það hefur borið á nokkrum vandræðum með þá hátíðisdaga okkar, sem skópust í sjálfstæðisbarátt- unni. 17. júní og 1. desember verða ýmsir til að gera sig hlægilega og umfram allt leiðinlega bæði í ræðu og riti, því að þeir hvorki þora né mega minnast á það, sem menn ættu að láta sig mestu máli skipta á slíkum dögum. Hnípin þjóð fær að heyra um vaska baráttu forfeðra sinna gegn valdi vondra Danakónga, ómetanleg bókmenntaafrek sín, eitthvað um Jesú Krist og fleira í þeim dúr. En á sjálfstæðisbaráttu líð- andi stundar má ekki minnast, ekki viðurkenna, að fullveldi þjóðarinnar hefur verið skert og að við bú- um við erlenda hersetu. Fulltrúar íhaldsstúdenta í Háskóla íslands þurfa jafnan á allmiklu hugarflugi að halda fyrir 1. desem- ber ár hvert til að koma í veg fyrir, að minnzt sé á verkefnin í sjálfstæðisbaráttu samtímans. Þeir hafa lagt til, að dagurinn yrði helgaður „kristni og kirkju“, en nú síðast hafa þeir haldið sig við „minn- ingu fullveldisins“ og „framtíðarhorfur þjóðarinn- ar“. Þeir halda sig við þátíð og framtíð, en forðast nútíð. Þegar vinstri félögin höfðu meirihluta í stúdenta- ráði sameinuðust þau um að gera 1. desember að bar- áttudegi fyrir brottflutningi ameríska hersins og endurvakningu hlutleysis á íslandi. Það hlutverk eitt hæfir þeim degi, sem haldinn er hátíðlegur vegna fengins fullveldis og yfirlýsingar um ævarandi hlut- leysi. Hernámsandstaða félaga frjálslyndra og jafnaðar- manna, meðan skoðanabræður þeirra á Alþingi voru trúir verndarar verndaranna, verður þeim alltaf til sóma, enda þótt sú sæmd sé þeim sjálfum minnst að þakka. Nú er hins vegar teikn á lofti um undanhald og svik hjá félögum þessum. Þau hafa hafnað samstarfs- boði frá nefnd þeirri, sem Rithöfundafélag íslands hefur kosið til að vinna að því að herinn verði flutt- ur á brott. Félögin hafa sem sagt neitað að beita áhrifum sínum til framgangs þeirrar stefnu, sem þau fylgdu í meirihluta í stúdentaráði og lýstu sig fylgj- andi fyrir síðustu kosningar til stúdentaráðs, þótt með hangandi hendi væri. Mórallinn hjá félögum þessum eða a. m. k. stjórn- um þeirra virðist því vera í stuttu máli: „Fyrirmynd- irnar á Alþingi svíkja, við svíkjum.“ Stjórnir þessara félaga virðast því líta á sig sem ábyrga gagnvart flokkapólitík fyrst og fremst, en síður gagnvart stúd- entum, því að vitaskuld hafa margir stúdentar fylgt þeim í trausti þess, að þeir stæðu fast á fyrri stefnu sinni um andstöðu við hersetu. Þessi afstaða vekur því meiri furðu þegar þess er gætt, að bæði heimssöguleg þróun og þróun innan- lands sýna nú betur en nokkru sinni fyrr fánýti her- stöðvanna á friðartímum og ógn þeirra í ófriði. Síð- ustu fregnir af tækni í eldflaugnagerð sanna þetta óþyrmilegar en gert hefur verið nokkru sinni fyrr. Innanlands hefur orðið ör þróun í þá átt síðastliðið ár að beina vinnuafli frá hernaðarframkvæmdum að framleiðsluatvinnuvegunum. Sú þróun hefur sýnt, að ekki er hætta á atvinnuleysi eða gjaldeyrisþurrð, þótt herinn yrði endursendur með hraði. Það eru því öll skilyrði til að fylkja stærri hluta þjóðarinnar en nokkru sinni fyrr til andstöðu við hersetu og fyrir hlutleysi íslendinga í friðsamlegri eða ófriðsamlegri eldflaugnaskotkeppni stórvelda. í kjölfar þessarar þróunar mun skapast það al- menningsálit, sem þarf til að knýja framsóknarmenn og krata til að framfylgja afdráttarlaust samþykkt Al- þingis frá 28. marz ’56 um brottflutning hersins og ákvæðum ríkisstjórnarsáttmálans um það sama. Við mótun þess almenningsálits ættu stúdentar að vera í fararbroddi eins og á árunum 1953—1956. Það eru þeir ekki, og margir hafa sofnað á verðin-

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.