Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 30

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 30
20 STÚDENTABLAÐ JÓHANN J. RAGNARSSON stud. jur.: Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta ^lokkadrœtiir siúdenia Um meira en tuttugu ára skeið hefur Vaka verið virkasta aflið í félagsmálum stúdenta. Þetta tímabil hefur Vaka ýmist með hreinan meirihluta í stúdenta- ráði eða í minnihlutaaðstöðu beitt kröfum sínum til aukinnar samheldni og samvinnu lýðræðissinna í Há- skólanum, stúdentum öllum til gagns og sóma. Þenn- an tíma allan, hafa Vökumenn jafnan hvatt lýðræðis- sinnaða stúdenta til samstarfs um hagsmunamál sín, svo og til baráttu gegn þeim sameiginlega óvini, sem einræði og ofbeldi er öllum frið- og frelsisunnandi mönnum. Þessi er stefna Vöku nú eins og áður. Vökumenn harma þá skammsýni, sem birtist í öllu starfi hinna svokölluðu „vinstri stúdenta“, og þó sér- staklega þann lærdómsríka ásetning þeirra að halda áfram samstarfi við kommúnista, sem margsinnis hafa sýnt fram á þrælslund sína við erlenda yfirboð- ara. Hefur þessi þjónkun kommúnista þó aldrei kom- um endurskoðun varnarsamningsins frá 1951. Skal endurskoðunin gerð með það fyrir augum, að herinn hverfi hið fyrsta úr landinu. En jafnframt æskjum við þess, að íslendingar hafi áfram samstöðu með öðrum vestrænum lýðræðisþjóðum, en þó einkum hinum Norðurlandaþjóðunum. Á meðan herinn dvelst hins vegar enn í landinu, ber stúdentum að standa í fylkingarbrjósti til verndar andlegum verðmætum þjóðarinnar, þ. e. tungu henn- ar, siðum og menningu. í dag er við minnumst fengins fullveldis, skulum við því treysta enn betur heit það, sem við gáfum við stofnun hins íslenzka lýðveldis 1944. Við skulum treysta heitið um að vernda frelsi og sjálfstæði ís- lenzku þjóðarinnar, minnugir þess, að verði hvikað á verðinum, þá er ógæfan vís. Fylkjum því liði og sláum skjaldborg um sjálfstæði landsins og menn- ingu þjóðarinnar. ið berlegar fram en nú, er þeir lofsyngja hin hræði- legustu ofbeldisverk á saklausu fólki, sem hefur unnið sér það eitt til saka að bera í brjósti sér sömu þrá til frelsis og sjálfstæðis og við sjálfir gerum. Vökumenn harma það og, að skammsýni þessara manna skuli einnig ná út yfir starf þeirra í stúdenta- ráði. Stúdentaráð á að vera vettvangur fyrir raun- hæfa baráttu í hagsmunamálum stúdenta, en ekki fyr- ir samningamakk fulltrúa í ráðinu um það, hverjir skuli eiga sæti í nefndum, sem stúdentaráði er nauð- synlegt að kjósa sér til aðstoðar við störf þess í þágu stúdenta. Vökumenn eru nú eins og áður einfærir um að koma stefnumálum sínum fram. Engu að síður vilja þeir gjarnan fá aðra lýðræðissinnaða stúdenta til samstarfs við sig um hin ýmsu vandamál. Þetta ber þó engan veginn að skilja svo, að Vökumenn muni nokkurntíma setjast að samningaborði með vinstri mönnum á sama hátt og þeir gera sín á milli, þ. e. höndli með menn og málefni. í slíku samningamakki mun Vaka aldrei verða þátttakandi. En Vökumenn harma lítihnennsku og niðurlægingu andstæðinga sinna, sem kaupa sér völd og áhrif, jafnvel með því að fórna grundvallarskoðunum sínum á hinum þýð- ingarmestu málum, fyrir ímynduð völd. Þetta á þó ekki við um alla. Til eru þau stúdentasamtök, innan þessa háskóla, sem í allt að 18 ár hafa leynt öllum sínum hugsjónamálum, öðrum en þeim, sem mótazt hafa frá degi til dags. Við slíka menn binda Vöku- menn litlar vonir. Sýnu meiri kröfur gera þeir til þeirra stúdenta, sem virzt hafa átt hugsjóna- og áhugamál, en vegna fylgisleysis hafa ekki haft bol- magn til að sjá þeim farborða. Ekki ber heldur að skilja þetta svo, að Vaka hygg- ist slá í neinu af grundvallarstefnumálum sínum til að þóknast andstæðingum sínum. Friður og sam- vinna verða ekki keypt því verði, að gefið verði eftir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.