Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Síða 38

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Síða 38
28 STÚDENTABLAÐ upp, að hafinn yrði til vegs sá siður að flytja þar messur á helgum dögum. Hvort þetta nær fram að ganga er undir okkur stúdentum komið. Við getum svarað því í verki, hvort hér er hægt að mynda stúd- entasöfnuð. Að sjálfsögðu yrðu guðsþjónustur þessar öllum opnar. Hér yrði þó sá munur á og því fyrir- komulagi, sem tíðkast í öðrum söfnuðum, að enginn prestur yrði ráðinn til þjónustu, heldur önnuðust stúdentar um allan ræðuflutning, en prestvígðir pró- fessorar þjónuðu fyrir altari. Ekki tel ég nauðsyn bera til, að væntanlegir prédikarar séu úr guðfræði- deild og skírskota þá til leikmannaprédikara, sem hvarvetna hleypa hressandi andblæ inn í kirkjulífið. Þá mundi stúdentakórinn koma að góðu haldi við flutning sálmalaga. Nú geri ég ráð fyrir, að mörgum þyki, að hér sé hróflað upp barnalegum skýjaborgum, sem engir möguleikar séu á að framkvæma. Á þessháttar skoð- unum strandar allt, sem til aukins félagsþroska má verða hér í Háskólanum. Menn tína til hnökra og agnúa á hverju slíku máli, sem imprað er á, aðrir halda að sér höndum og svæfa þau með algjöru hlut- leysi. Þetta tómlætisvíti ber mönnum að varast. Ibsen segir á einum stað í Pétri Gaut: „En meðal vor, þar sem myrkt er öll dægur, er máltækið: þursi, ver sjálfum þér — nægur.“ Því skulum við, í sönnum félagsanda, beita huga og hönd og koma í veg fyrir, að sami andi ríki með okkur og þursum Dofrans. — SIGURÐUR G. SIGURÐSSON stud. oecon. og SIGURPÁLL VILHJ ÁLMSSON stud. oecon.: Frá viðskiptadeild Et ekki tímabært, að viðskiptadeildin verði sjálfstœð deild innan Háskóla íslands? Viðskiptadeild Háskóla Islands var stofnuð árið 1941 á grunni Viðskiptaháskóla íslands. Allt frá upp- hafi hefur aðsókn að viðskiptadeildinni verið mjög mikil og er það til marks, að nú í vetur eru 94 stúd- entar skráðir í deildina. Viðskiptadeildin er ekki sjálfstæð deild, heldur er hún í samfloti við lagadeild. Skilyrði þess, að deildin verði sjálfstæð, er samkvæmt hinum nýju háskóla- lögum, að prófessorar við deildina verði þrír, en þeir eru nú aðeins tveir. Miðað við nemendafj ölda má það furðulegt teljast, að deildin skuli ekki þegar vera orðin sjálfstæð og má í því sambandi benda á það, að við verkfræðideild, sem telur miklu færri nemend- ur, eru nú starfandi fjórir prófessorar. I viðskiptadeildinni hefur frá upphafi verið lögð höfuðáherzla á kennslu í hagfræði, bæði þjóðhag- fræði og reksturshagfræði. Er það líka að öllu leyti eðlilegt, þar sem meginhlutverk viðskiptadeildarinn- ar hlýtur ávallt að verða það, að veita nemendum sínum fræðslu um meginþætti efnahagslifsins. Við flesta háskóla erlendis, þar sem kennsla í hag- fræði fer fram, munu vera starfrækt „hagfræðileg Iaboratorium“, ef svo mætti að orði komast. Vinna nemendur þar að úrlausnum hagnýtra hagfræðilegra vandamála undir stjórn kennara. Slík stofnun er því miður ekki til við háskóla vorn, en er engu að síður bráðnauðsynleg, og hlýtur að því að koma, fyrr eða síðar, að hún komizt á fót og þá undir umsjón við- skiptadeildar. Það er því augljóst, að stofnun nýs prófessorsembættis við viðskiptadeildina er fyllilega tímabær, þar sem hinn væntanlegi prófessor gæti tek- ið að sér stjórn þessarar stofnunar ásamt kennslu við deildina. Má í þessu sambandi benda á það, að nú vinna opinberir starfsmenn í hinum ýmsu stjórnar- deildum að fjölmörgum viðfangsefnum, sem eru þess eðlis, að þau gætu eins verið leyst í stofnun sem þess- ari. Á þennan hátt yrði hlutverk þessarar stofnunar tvíþætt; annars vegar ákjósanleg þjálfun fyrir nem- endur í meðferð raunhæfra vandamála, og hins veg- ar sparnaður fyrir hið opinbera, sem nú gæti á marg- an hátt létt af starfsmönnum sínum verkefnum, sem þeir hafa oft á tíðum takmarkaðan áhuga á. Háskóli Islands er musteri íslenzkrar menningar. Hann er óskabarn þjóðarinnar, sem hefur borið gæfu til þess að gegna því forystuhlutverki, sem honum var ætlað, með miklum sóma. Kröfur þær, sem gerðar eru til hans sem æðstu menntastofnunar á Islandi hljóta ávallt að vera miklar og eru eðlilega alltaf að aukast. Það ætti því öllum að vera ljóst, að framtíð sína á háskóli vor undir því, að hann geti orðið við réttmætum kröfum þjóðfélagsins. Gildi viðskipta- deildar er fyrst og fremst fólgið í því, að þaðan komi

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.