Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 39

Stúdentablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 39
STÚDENTABLAÐ 29 tyúdental ö(j c)i\jlzlzja Fólk vill helzt skera alla niður við sama trog og dæmir heilar stéttir eftir hegðun örfárra einstaklinga. Prófessorinn viðutan er til dæmis orðinn básúnaður persónugervingur um allan heim. Á sama hátt hefur sú sögn vaxið og breiðzt út, að stúdentar eyddu mest- um tíma sínum í fyllirí. En drekka háskólastúdentar meira en aðrar, sam- bærilegar stéttir þjóðfélagsins? Samanburður áfeng- isdrykkju stúdenta í Finnlandi og jafnaldra þeirra sýnir engan mun, er máli skiptir. Drykkjuskapur stúdenta er engu að síður girnilegt rannsóknarefni. Nýlega kannaði finnska stúdenta- sambandið efni þetta nokkuð þar í landi, en saman- burður við önnur lönd varð af skornum skammti, þar eð rannsókn á drykkjusiðum háskólastúdenta hefur að svo komnu máli aðeins verið gerð á nokkr- um Norðurlanda og í Bandaríkjunum. Engan sjáan- legan mun var að finna milli Norðurlanda. Hins veg- ar drekka tiltölulega fleiri stúdentar í Bandaríkjun- um en í Finnlandi. Þar á móti eru sterkir drykkir ólíkt vinsælli í Finnlandi en fyrir vestan Atlantsála: 72% bandarískra stúdenta drekka einkum bjór, en aðeins 4% hinna finnsku jafnaldra þeirra. Sú niðurstaða, að munur á drvkkjusiðum stúdenta og annars ungs fólks sé sáralítill, gæti auðvitað leitt til þeirrar ályktunar, að akademískt líf í sjálfu sér geri hvorki til né frá um það áfengismagn, sem hver hæfir menn, sem geti gegnt ábyrgðarstöðum í efna- hagslífinu. Góð þekking á „teoretiskri" hagfræði er þar auðvitað grundvallaratriði. En er ekki líklegt, að með því að gefa nemendum sínum kost á að beita þeim tækjum, sem hagfræðin veitir til úrlausnar raunhæfra vandamála, væri gildi viðskiptadeildar stórlega aukið til hagsældar allri þjóðinni? Auk þessa, sem hér hefur verið rætt, má á það benda, að stofnun sem þessi myndi eflaust styrkja þann fræði- lega grundvöll, sem íslenzkar hagfræðirannsóknir hljóta að byggjast á, ef þær eiga að verða til þess gagns, sem til er ætlazt. Fernando Garcia-Ramos stúdent viS verkfrœðiháskólann í Laguna á Kanaríeyjum: SVELGUR STÚDENT. maður torgar. Engu að síður eru undantekningar. Það hefur til dæmis komið í ljós, að leiðin í valda- stólana í stúdentafélögum er ólíkt greiðari þeim, sem drekka, en bindindisseggjunum. En þetta þýðir ekki, að atkvæði við stúdentakosningar falli í beinu hlut- falli við það áfengismagn, sem frambjóðendurnir hafa komið í lóg. Eftir skýrslunum að dæma, hefur það engin sjáanleg áhrif á vinsældir stúdenta, hvort þeir drekka meira eða minna. Þess vegna kynni að virðast, að stúdentakjósendur hafi í nokkrum mæli áhuga á að halda áköfum bind- indisseggjum utan dyra, þó að þeir kæri sig alls ekki um að kjósa fyllibyttur í þeirra stað. Það, sem há- skólaæskan virðist vilja, er einurigis að tryggja það, að frjálst sé að hafa áfengar veigar á borðum í mann- fagnaði stúdenta, og draga úr öllum öfgum. Ákveðin skoðun háskólastúdenta í Finnlandi á þessu efni verður bezt skýrð með þeirri staðreynd, að akademísk bindindisfélög hafa reynt að útiloka neyzlu áfengis í opinberum stúdentasamkvæmum. Af öllum stúdentum, sem skráðir eru í finnska háskóla eða hliðstæðar menntastofnanir neyta 60% áfengis. Þess vegna er ósennilegt, að sú lausn áfengisvanda- málsins verði fundin, sem eindreginn meirihluti stúd- enta kýs að sætta sig við. Aðstaða utanbæjarstúdentsins er sérstaks eðlis að svo miklu leyti, sem hann dregur dám af daglegum háttum í sinni sveit. Það er mál allra þjóða og kom einnig í ljós við rannsóknir okkar, að fjöldi drykkju- manna eykst í beinu hlutfalli við mannfjölda hvers staðar. Þar sem þorri finnskra stúdenta er við nám í Helsinki, hefur skráning í háskóla eða hliðstæðar menntastofnanir í för með sér hvarf frá fyrri siðum um notkun áfengis. En Helsinki virðist ekki mjög frábrugðin öðrum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.