Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 27

Stúdentablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 27
fjarlægð, og oss, sem nú lifum, ætti að vera vorkunn- arlaust að deila hér ljósi og skugga með nokkru meiri sanngirni en þeim sem nær stóðu vettvangi, eimnitt af því, að vér teljum það nú til frægilegustu stór- virkja vorra, þegar oss lánast — með erlendu fjár- magni — að tína upp í slóðinni og gera að veruleika eitthvað af framkvæmdahugsjónum skáldsins Einars Benediktssonar. Það er ekki svo auðvelt að gleyma því, að Reykjavíkurhöfn er til fullsköpuð í ljóðum hans, löngu áður en fyrsti verkfræðingurinn dró fyrsta strikið að því mannvirki á blað. Það er líka þarflaust að gleyma því, að áratugum áður en íslend- ingar eignuðust sína „nýsköpunartogara“, svámu þeir um djúphöfin til fjærstu miða í skáldskap Einars Benediktssonar: Vissirðu hvað Frakkinn fékk til hlutar? Fleytan er of smá, sá grái er utar. Djarfmannleg eggjan, kveðin upp af skáldi, áður en athafnamennirnir og fésýslumennirnir rumskuðu. Það er ekki auðvelt að búa svo í Reykjavík eða nálgast hana, að Iíta ekki öðru hvoru til Gufuness og gleðjast við þá sýn, að þar er risin voldug verk- smiðja, sem nætur og daga malar frjósemd yfir ltlásnar og berar auðnir þessa lands og breytir van- yrktu túnunum í Vitazgjafa. En það er heldur hvorki auðgert né sanngjarnt að gleyrna því, að fyrir meira en hálfri öld ruddi Einar hugmyndinni braut inn í hugsun og vitund þjóðarinnar í ódauðlegu kvæði urn Dettifoss, og var auk þess kominn á flugstig með að hrinda hugsjón sinni í framkvæmd fyrir hartnær fjórum áratugum: Heill vatnsins jötunn, frjáls með breiðan barm. Þér bindur íssins hel ei fót né arm. Þín rödil er sótt í afgrunn iðurótsins, en uppheimsloginn brennur þér um hvarm. Þú gætir unnið dauðans böli bót stráð blómaskrauti yfir rústir grjótsins, steypt mynd þess aftur upp í lífsins mót með afli því, frá landsins hjartarót, sem kviksett er í klettalegstað fljótsins. Rafvæðing landsins er nú kjörorð hinna framsækn- ustu og það er prédikað eins og væri það spánný upp- götvun, að vart megi vænta þess að fólkið haldist í byggðum landsins, nema því aðeins að því veitist hlutdeild í afli og ljósi hinna miklu orkuvera. En allt þetta vissi Einar Benediktsson og sá fyrir löngu á undan öllum öðrum Islendingum. Það eru meira en 55 ár síðan hann kvað svo í kvæðinu um Dettifoss: Hve mætti bæta lands og lýðs vors kjör að leggja á bogastreng þinn kraftsins ör, að nota máttinn rétt í hrapsins hæðum, svo hafin yrði í veldi fallsins skör. — Og frjómögn lofts má draga að blómi og björk, já, búning lífsins sníða úr jökuls klæðum. Hér mætti leiða líf úr dauðans örk og ljósið tendra í húmsins eyðimörk við hjartaslög þíns afls í segulæðum. Fyrst í dag er þessi draumur Eiuars að rætast, af því að svo langan tíma hefur það tekið að fá almennt samkvæði þjóðarinnar um að gera það, sem honum var sjálfsagður hlutur og fær. II Það varð íslenzkum bókmenntum og skáldmennt ómetanlegt happ, að snilli Einars Benediktssonar batzt ekki við fésýslu og framkvæmdastörf, heldur leitaði sér fulluaðarúrlausnar í skáldskap hans. Þeir koma einhverntíma til sögunnar, sem fullvirkja Þjórsá með sín 550.000 túrbínuhestöfl, eins og áætl- anir Einars og félaga hans stóðu til 1919. Og vera má, að einhverntíma vinnist upp þeir miljarðar, sem þjóðinni glötuðust við að sú framkvæmd var tafin þá. En það getur dregizt, að sá komi til, sem yrki handa oss kvæðin, sem Einar hefði óorkt látin, ef hann hefði kostað sér öllum til hagnýtra framkvæmda og auðsöfnunar. En svo trúr er Einar sjálfum sér, að í hinum volduga óði sínum um orkuvæðingu lands- ins og ræktun, skipar hann því í öndvegið, sem ævi- langt var æðsta hugsjón hans og þrá: F.g þykist skynja hér, sem djúpl í dranm við dagsbrún tímans, nýja magnsins straum þá aflið, sem í heilans þráðum þýtur af þekking æðri verður lagt í taum. — Er hugarvatdsins voldug öld oss nær. þá veröld deyr ei, er hún guð sinn lítur, þá auga manns sér allri fjarlægð fjær, þá framsýn andans ljósi á eilífð slær og mustarðskorn af vilja björgin brýtur. STUDENTABLAÐ 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.