Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 47

Stúdentablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 47
f4áskólaatmáll l)r. I'orkell Jóhannesson, rektor háskól- ans, lézt mánudaginn 31. okt., tæpra 65 ára að aldri. Hann var jarðsunginn iaugardaginn 5. nóv. A leið til kirkju var kistan borin í anddyri háskólans. I>ar flutti prófessor Olafur Björnsson kveðjuorð, en Karlakór stúdenta söng. Fjölmenni var við útförina. Rektorskjör fór fram í háskólanum laugardaginn 19. nóvember. Kjörinn var Armann Snæ- varr prófessor í lagadeild með yfirgnæf- andi meirihluta greiddra atkvæða. Háskólahátíðin 1960 fór fram laugardaginn 22. okt., og var forseti Islands viðstaddur þá athöfn. Hátíðin hófst með því að Dómkirkju- kórinn og Þorsteinn Hannesson, óperu- söngvari, flutti fyrri hluta Hátíðakant- ötu Háskóla Islands eftir dr. Pál ísólfs- son við Ijóð Þorsteins Gíslasonar. Þá flutti rektor magnificus, dr. Þorkell Jó- hannesson, setningarræðu, en að henni lokinni var fluttur síðari hluti kantöt- unnar. Rektor ávarpaði síðan hina nýju stúdenta og afhenti þeim háskólahorg- arabréf. Að síðustu var þjóðsöngurinn sunginn. 1. desember llátíðahöldin 1. desember hófust með guðsþjónustu í kapellu háskólans kl. 11. Prófessor dr. Þórir Kr. Þórðarson þjón- aði fyrir altari. Félag guðfræðinema sá um guðsþjónustuna. Jónas Ilaralz, ráðuneytisstjóri, flutti aðalræðu dagsins úr útvarpssal kl. 13.30. Kl. 15.30 hófst samkoma í hátíðasal liá- skólans. Karlakór stúdenta söng fyrst undir stjórn Höskuldar Ólafssonar, en síðan flutti form. stúdentaráðs, Árni Grétar Finnsson, stud. jur., ávarp. Þá fluttu ræður Bjarni Beinteinsson, stud. jur. og Sverrir Bergmann, stud. med. Gísli Magússon lék því næst ein- leik á píanó, og dr. Broddi Jóhannesson flutti ræðu. Nokkrir stúdentar fliittu þátt, sem Kristinn Kristmundsson, stud. mag. tók saman um Jón Eiríksson kon- ferenzráð. Að lokum söng karlakórinn nokkur lög. Utvarpað var frá dag- skránni. Kl. 18.30 hófst fullveldisfagnaður að Hótel Borg. Meðal gesta þar voru for- setahjónin, menntamálaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason og frú, ásamt ræðumönnum dagsins og prófessorum. Próf. Níels Dungal ílutti þar aðalræðuna. Jón Sig- urbjörnsson söng einsöng, og skemmti- þáttur var fluttur af Ómari Ragnarssyni. Karlakór stúdenta söng þvínæst undir stjórn Höskuldar Ólafssonar, en að því loknu var dansað. Kvöldvökur voru haldnar á Garði eins og árið þar áður. Voru 5 kvöldvökur haldnar um veturinn. Jónas Arnason kom í heim- sókn og las úr verkum sínum. Þá voru sýndar kvikmyndir, kappræður voru milli Sunnanmanna og Norðanmanna. og margt fleira var þar til gamans gert. Aður er getið um kvöldvöku þá, sem haldin var í samvinnu við bókmennta- kynninganefnd. Jafnan voru framreiddar veitingar, og spilað var á spil. Aðsókn var fremur dræm. Kvöldvökunefndin var svo skipuð: Bjarni Guðjónsson, stud. theol., Mar- geir Björnsson, stud. jur., Njörður Tryggvason, stud. polyt., Ólafur Sig- urðsson, stud. theol., Steingrínnir G. Kristjánsson, stud. jur., formaður og Vilborg Harðardóttir, stud. philol. Bókmenntakynningar Snemma á jólaföstu var haldin bók- menntakynning á Gamla-Garði, og hafði bókmenntakynninganefnd samvinnu við kvöldvökunefnd um framkvæmd hennar. llelgi Sæmundsson flutti erindi um verðlaunabók Björns Th. Björnssonar, og rakti liann helztu rök fyrir verðlauna- veitingunni. Höfundur las síðan kafla úr verkinu. Næsta kynning fór fram í febrúar, og voru þá verk Snorra Hjartarsonar tekin til meðferðar. Bókmenntakynninga- nefnd sá ein um hana, og fór hún fram í hátíðasal háskólans. Hannes Pétursson ræddi um Snorra og verk hans, en síðan fluttu leikarar og stúdentar nokkur Ijóð c STUDENTABLAÐ 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.