Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 43

Stúdentablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 43
stein þann, er vegendur brugðu strengjum um, þá er þeir undu þak af skála Gunnars til að fá hann sóttan. Þótti mönnum að vonum slíkur fróðleikur nokkurs virði. Frá Hlíðarenda var haldið til Bergþórshvols og staðurinn skoðaður undir handleiðslu leiðsögu- manns ferðarinnar, próf. Einars 01. Sveinssonar. Næsti viðkomustaður var Hvolsvöllur, en þar var matazt. A heimleið var komið við á Keldum. Þar undu menn lengi við fornar minjar og fagurt útsýni, lygnar keldur hið næsta, en fagra fjallasýn, ef fjær var litið. Veður var okkur hliðhollt alla ferðina, eða eins og bezt verður á kosið svo snemma vors, sólskin og heiðskírt. Komið var til bæjarins kl. 10 að kvöldi. Þátttakendur í ferðalaginu voru rúmlega þrjátíu, og bar mönnurn saman um, að þessi rannsóknarferð hefði tekizt með afbrigðum vel. Mímir gekkst fyrir annarri rannsóknarferð hinn 30. okt. s.l., og var þá farið til Viðeyjar. Farkostur var bátur Slysavarnafélagsins, Gísli J. Johnsen. Lagt var af stað kl. 2 e. h., og tók öll ferðin rúmlega þrjá tíma. Leiðsögumaður var Guðni Jónsson prófessor, og flutti hann í Viðeyjarkirkju greinargott og skemmtilegt erindi um sögu staðarins. Auk hans var fenginn til leiðsagnar Þórður Jóhannesson, maður, sem búið hefur í Viðey í tugi ára og kunni vel að greina frá staðháttum á þeim tíma, sem umsvif voru livað mest í Viðey á dögum Milljónafélagsins sáluga. Þótli mönnum hörmulegt, hversu mjög staðurinn hef- ur sett ofan nú í seinni tíð. Margir höfðu orð á því, liversu staðarlegt væri i Viðey, og allir virtust una þar vel þá stund, sem staðið var við. Má m. a. marka það af því, að einhver, sem hugsað varð til elliára, stakk upp á því, að þarna yrði stofnsett „Dvalarheim- ili aldraðra íslenzkumanna“, og hentu menn gaman að tillögu þessari. —- Þátttakendur í Viðeyjarferð voru rúmlega 40, og vissi ég ekki betur en allir kæm- ust heilir og ánægðir í höfn úr sjóferð þessari. Á síðasta starfsári voru haldnar tvær rannsóknar- æfingar, báðar í samvinnu við Félag íslenzkra fræða, eins og tíðkazt hefur undanfarin ár. Hin fyrri var lialdin 21. des. s.l., og fluttu þá skáldin Hannes Pét- ursson og Sigurður A. Magnússon erindi um nútíma- skáldskap. Hin síðari var haldin 2. apríl s.l. Þá flutti Bo Almqvist, sem er stúdentum að góðu kunnur, er- indi um kraftaskáld. Að erindum og umræðum lokn- um hafa menn setzt að mat og drykk og rabbað saman. Með þessu móti gefst eldri og yngri mönnum, er leggja stund á ísl. fræði, kostur á að hittast og kynnast og ræða hugðarefni sín. Er engum vafa bundið, að það er báðum aðilum bæði til gagns og ánægju. Félagsfundir hafa verið haldnir í Mími, eftir því sem tilefni hefur gefizt til, og er ekki ástæða til að fjölyrða um störf þeirra. Þó er rétt að geta þess, að félagsmenn hafa látið i ljós ánægju yfir því, að nú hefur verið stofnaður talsvert öflugur stúdentaskipta- sjóður við Háskólann. Nemendur í ísl. fræðum eiga margt að sækja til annarra landa, og þá sérstaklega til Norðurlanda, bæði að því er varðar málþróun og sameiginlega menningararfleifð, — að því svo ógleymdu, að nær öll hin elztu handrit íslenzkra bók- mennta eru geymd á erlendum söfnum. Erlendum stúdentum, sem leggja stund á íslenzku, er það án efa bæði kærkomið og gagnlegt að eiga þess kost að koma hingað og dveljast hér, þótt ekki sé nema stutt- an tíma. Eins og kunnugt er, hefur fyrirkomulagi á kosn- ingum til Stúdentaráðs verið breytt á þann veg, að hver deild kýs sér nú fulltrúa. Sú skipan ætti að verða til þess að efla heldur starfsemi deildafélaganna og gera þau að virkari hagsmunasamtökum en verið hefur. Til þess þarf þó aðstaða þeirra til félagsstarf- semi að batna. Húsnæðisleysi hefur verið einn helzti þröskuldurinn, en von er til þess, að úr því rætist að nokkru, þegar tekin verða í notkun þau tvö herbergi, sem deildafélögum eru ætluð í kjallara Háskólans. Væntir Mímir þess, að hann fái nokkra hlutdeild í þessu húsnæði. svo sem geymslustað fyrir plögg sín og samastað til minni háttar fundahalda. HARALDUR SVEINBJÖRNSSON: Frá verkfræðideild Eitt af verkefnum Félags verkfræðinema er að beita sér fyrir árlegu ferðalagi félagsmanna. Reynt er að hafa ferðalög þessi bæði til skemmt- unar og fróðleiks. Á síðasta ári skoðuðum við Garðskagavita og STIIDKNTABLAÐ 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.