Stúdentablaðið - 01.12.1960, Síða 28
Það var þessi veröld, sem Einar þráði og leitaði
að. Hún var sú Paradís, seni hann hafði litið í blik-
urn og broturn og saknaði með ólæknandi trega. Hún
varð æviviðfangsefni hans og lífsmið. Um hana háði
hann sína ævilöngu Jakobsglímu við Guð, sem ekki
lauk fyrri en á leiðarenda með játningunni:
Hafknörrinn glæsti og fjörnnnar flak
fljóta bæði. Trú þú og vak.
Marmarans höll verður moldarhrúga.
Musteri Guðs eru hjörtu, sem trúa
þó hafi þau ei yfir höfuð þak.
Lögfræðingurinn Einar Benediktsson er mesta
trúarskáld íslenzku þjóðarinnar á síðari öldurn, þeg-
ar frá er talinn klerkurinn Matthías Jochumsson. Ein.
ar er að sönnu ekki skáld trúarlærdómanna, heldur
þeirrar vizku hins óspillta hjarta, sem leitar hins
æðsta og sættir sig aðeins við hið fullkomna. Til þess
varði hann öllum vitsmunum sínum, skáldlegu inn-
sæi og hugarorku. Andspænis þessari sókn andans til
hæstu miða varð allt annað smávægilegt.
III
Einar Benediktsson var stórskáld og hefði orðið
það, með hvaða þjóð, sem var. Andagift, vegleiki og
tign eru auðkenni alls þess, er hann kvað og lét birta
eftir sig. Þar er hvergi klúr hending eða klaufaleg,
hvergi hégómlegt yrkisefni, hvergi hopað frá liálf-
unnu verki á meðan hann mátti valda vopnum sínurn.
Þetta merkir ekki, að Einar hafi kveðið um þau
yrkisefni ein, sem engir aðrir höfðu komið auga á,
né fengizt við. Einar yrkir að vísu margt slíkra
kvæða, en ])að er nokkuð fróðlegt lil íhugunar, að
meira en helmingurinn af öllum Ijóðum Einars er um
yrkisefni, sem önnur íslenzk skáld hafa kveðið um
og oft ágæta vel. Má þar til nefna hin fjölmörgu
yrkisefni Einars úr íslenzkri náttúru og sögu, ætt-
jarðarljóð hans, hvataljóð og ljóð um íslenzka lungu.
En allt, sem Einar tekur á, verður nýtt í höndum
hans, fær dýptir og víddir, sem honum einum var
auðið að skynja. Margt er það, sem efalaust átti sinn
þátt í því og stuðlaði að því, að Einar yrði svo stór-
brotið skáld og sá völundur listar sinnar, sem raun
varð á. Má þar fyrst nefna vitsmuni hans, skáldlega
stórsýn og innsæi, en hér kemur einnig til andríki
hans, orðsnilld og frábær verkkunnátta. Einar vissi
það allra skálda hezt sinnar tíðar, að skáldskapur er
íþrótt, list, sem verður að læra vandlega, eins og fram
kemur í ritdómi hans um Grím Thomsen árið 1895,
og fullkunnugt er það af öruggum gögnum, að Einar
lagði mikla stund á að nema list sína, var síbætandi
um verk sín og vinnubrögð og afar kröfuharður við
sjálfan sig. „Myndasmíðar andans skulu standa“
segir hann í Kvöld í Róm, en vissi gjörla, að til þess
að svo megi verða, verður að meitla þær og fága með
kunnáttusemi og nákvæmni myndhöggvarans. Stór-
fengleg skapandi hugsun orðbundin í fáguðu, há-
tiginmannlegu formi, var sú myndsmíð andans, sem
hann stefndi að í list sinni og kostaði sér öllum til.
Hann fór þar að eins og maðurinn, sem fann dýra
perlu og gaf fyrir hana aleigu sína. Í augurn Einars
átti sú list, sem þannig var unnin og keypt verði
slíkra árauna og fórna óforgengilegt og eilíft gildi
ofar örlögum einstaklinga, þjóða og landa, jafnvel
óháð veran eða tortímingu þessa heims. Því getur
hann sagt af fullri sannfæringu:
Perlan ódauðlega í luigans hafi
hefjast skal af rústum þjóða og landa.
Komi Hel og kasti mold og grafi,
kvistist lífsins tré á dauðans arin,
sökkvi jarðarknör í myrkvan marinn
— myndasmíðar andans skulu standa.
Snilligáfa Einars Benediktssonar beindi flugi hans
upp til þeirra hæða, þar sem mannlegur andi hefur
verið að glínra við hin torráðnustu, en jafnframt há-
leitustu rök lilveru sinnar, frá því er hann vaknaði til
vitundar um veru sína og stað sinn í þessum heimi.
Það er grunur minn, að einmitt af þessum sökum
komi sá tími, er mönnum skilst betur en samtíð Ein-
ars, að hann er karhnannlegast raunsæisskáld síns
tíma á Islandi. Hann rekur hugsanir sínar af ná-
kvænmi og harðfengilegri skerpu, raðar stórfeng-
legum sýnum og hleður hugmyndabjörgum, eins og
voldugur hyggingameistari. Hann krefur sér valds til
að rannsaka allt, skilja allt, en grunar um leið, að
trúin, hið dularfulla samband sálarinnar við höfund
sinn og allrar tilveru sé frumskilyrði þess, að skiln-
ingurinn verði
fær yfir sökkvifirnanna hyl
og fleygur á himin tinda.
28
STUDENTABLA0